Fréttablaðið


Fréttablaðið - 14.11.2014, Qupperneq 62

Fréttablaðið - 14.11.2014, Qupperneq 62
14. nóvember 2014 FÖSTUDAGUR| LÍFIÐ | 42 „Ode to Viceroy með Mac Demarco, flott lag sem ég var að finna.“ Arngrímur Jón Sigurðsson, myndlistarmaður. FÖSTUDAGSLAGIÐ „Ég er sjómaður en hef verið frá vinnu utan heimilis síðan í febrú- ar. Dæturnar hafa þurft á mér að halda,“ segir Kristinn Freyr Þórs- son sjómaður sem missti konu sína, Ólöfu Birnu Kristínardóttur, í byrj- un september. Dæturnar, Kristín Helga og Ólöf Erla, eru þriggja og eins árs. Ólöf Birna hafði hormónatengdan sjúkdóm sem fyrst varð vart þegar hún fór á pilluna, að sögn Kristin Freys. „Hún fór seint til læknis og var þá komin með æxli í brjósti og nára en með réttum lyfjum var hún nær laus við þau árið 2010,“ lýsir hann og heldur áfram: „Þegar hún varð ólétt fyrst varð hún að hætta á lyfjunum og æxlin komu aftur, læknarnir lögðu ekki í að taka þau, enda voru þau til friðs. Á meðgöngu yngri dótturinnar seig á ógæfuhlið- ina, æxlin stækkuðu og fjölguðu sér og áformað var að nema þau burtu, barnið var tekið sjö vikum fyrir tímann en læknar töldu skurðaðgerð of áhættusama. Þá fóru að mynd- ast sár í húðinni með sýkingum og blæðingum. Samt var Ólöf ótrúlega kraftmikil og jákvæð. Það bjóst eng- inn við að þetta færi svona.“ Bjartsýnin jókst í ágúst er lækn- arnir náðu að loka sárinu, að sögn Kristins Freys. „Við skruppum þá á æskuslóðir Ólafar Birnu í Hrúta- firðinum. 27. ágúst, daginn sem við komum til baka, hélt hún að hún væri með ælupest en konu frá Heimahlynningu leist ekki á blik- una og fór með hana upp á Kvenna- deild. Daginn eftir var hún komin í öndunar vél og stuttu seinna var hún dáin. Það var rosalegt áfall.“ Fram undan eru flutningar til Eyja hjá Kristni Frey og dætrum því þar er öll fjölskyldan hans. „Ég reikna með að fara á sjóinn aftur,“ segir hann. „Ef það gengur ekki upp fer ég að læra eitthvað annað.“ Á sunnudaginn verða styrkt- artónleikar vegna þessarar litlu fjölskyldu í Guðríðarkirkju í Grafar holti, á vegum Kirkjukórs Lágafellssóknar. Þeir nefnast Jóla- ljós. Fjöldi mætra tónlistarmanna kemur þar fram og má nefna Ragga Bjarna, Bjarna Ara, Birgi Haralds- son rokkara og Kristínu R. Sigurð- ardóttur sópransöngkonu. gun@frettabladid.is Halda styrktartónleika eft ir sviplegt dauðsfall Kristinn Freyr Þórsson var grunlaus um að konan hans væri við dauðans dyr þegar hún var lögð inn á Landspítalann í ágúst en nokkrum dögum síðar var hún öll og tvær dætur þeirra móðurlausar. Styrktartónleikar haldnir á sunnudaginn. Á GÓÐRI STUND Ólöf Birna, Kristinn Freyr og dæturnar á góðri stundu. „Þetta er ótrúlegt því að draum- urinn minn um að fara til Japans og draumurinn minn um að gera K-Pop hefur nú orðið að veru- leika,“ segir tónlistarkonan Stein- unn Harðardóttir, eða dj. flugvél og geimskip, sem heldur til Tókýó um helgina til að taka þátt í Hokuo Music Fest. Um er að ræða norræna tónleika sem hafa verið haldnir í Japan und- anfarin ár þar sem norræn fyrir- tæki og tónlistarmenn fá tækifæri til að hitta japanskt bransafólk. Tónleikunum fylgja viðskiptaráð- stefna og vinnustofur en Steinunn mun taka þátt í K-Pop- og J-Pop- vinnustofu þar sem tónlistarmenn frá Norðurlöndunum og Asíu munu hittast og semja popp saman í kór- eskum og japönskum stíl. „Mér finnst þetta bara mjög skemmtilegt því ég hef alltaf elsk- að K-Pop og langað að vita hvernig á að búa það til. Veit nú ekki alveg með J-Pop, það er alveg gaman en ekki jafn skemmtilegt og K-Pop,“ segir Steinunn, sem segist nú vera stödd í draugahúsi úti á landi þar sem hún vinnur í nýju efni. - þij Heldur til Japans að gera asískt popp Draumur dj. fl ugvélar & geimskips um að gera K-Pop í Tókýó hefur loksins ræst. MIKILL K-POP-AÐDÁANDI Steinunn semur nú tónlist í draugahúsi. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Samsýning annars árs nemenda myndlistar- deildar LHÍ verður opnuð í Húsdýragarðin- um í dag. „Nemendur fara út fyrir skólann til þess að vinna þetta verkefni. Við völdum dýra- garðinn vegna þess að hann hefur bæði sam- félagslegt og uppeldislegt gildi, en mörg þeirra komu í garðinn sem börn og eiga minningar þaðan,“ segir Ólafur S. Gíslason, kennari og leiðbeinandi í verkefninu. Verkin tíu unnu nemendur á sínum for- sendum og tengdust þau ýmist dýrunum beint eða samskiptum manna og dýra. Aðrir unnu með umhverfi dýranna. Ein gerði húfu úr mannshári fyrir kind og snýr þannig ferl- inu við og önnur bjó til sápu úr kindamör. Annar gerði kvikmynd þar sem hann upp- götvar garðinn aftur sem fullorðinn, eftir að hafa kynnst honum sem barn,“ segir Ólafur. Margar spurningar vöknuðu hjá nemendum við vinnslu verksins. „Margir höfðu áhuga á vitund dýra og hvernig þau upplifa sig við þessar aðstæður og það vakti margar tilfinn- ingar. Því má segja að verkin séu tilfinninga- verk.“ - asi Tilfi nningaverk sýnd í Húsdýragarðinum Annars árs nemendur myndlistardeildar Listaháskólans halda sýningu í Húsdýragarðinum. ÓVENJULEG STAÐSETNING Ólafur segir að nemendur hafi unnið verkefnið á sínum forsendum og stað- setningin hafi vakið minningar hjá mörgum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Ein gerði húfu úr mannshári fyrir kind og snýr þannig ferlinu við og önnur bjó til sápu úr kindamör. Það bjóst enginn við að þetta færi svona. KRISTINN FREYR, KRISTÍN HELGA OG ÓLÖF ERLA Fram undan eru flutningar til Eyja því þar er fjölskylda Kristins Freys. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Heillandi og margslungin saga. „Einn athyglisverðasti höfundur sinnar kynslóðar á Íslandi.“ WORLD LITERATURE TODAY SELD TIL BRETLAN DS! 6. SÆTI METSÖLU LISTI EYM UNDSSON INNBUND IN SKÁLD VERK & HLJÓÐ BÆKUR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.