Fréttablaðið - 26.11.2014, Page 46
26. nóvember 2014 MIÐVIKUDAGUR| LÍFIÐ | 26
„Ég hitti á þetta tómarúm á milli
dægurtónlistar og klassískrar
tónlistar,“ segir Ólafur Reynir
Guðmundsson, lögfræðingur og
tónlistar maður, sem hefur nú gefið
út sinn fyrsta geisladisk, Upphaf.
„Ég hef tekið eftir því að stemn-
ingin minnir fólk á kvikmyndatón-
list. Jónas Sen sagði í gagnrýni sinni
að þetta væri afar þægilegt og rynni
ljúflega niður en það er nákvæm-
lega það sem ég vildi gera.“
Ólafur er kannski ekki dæmigerð-
ur tónlistarmaður þar sem hann
vinnur sem lögfræðingur hjá fjár-
málaráðuneytinu. „Þetta er bara
góð blanda en mér tekst reyndar
ekki mikið að semja þar,“ segir hann
og bætir við að ástríða hans fyrir
tónlistargerð hafi eiginlega kvikn-
að þegar hann stundaði nám við
Harvard-háskóla. „Þá leigði ég mér
risavaxið rafmagnspíanó, fór að
leika mér á hljóðfærið og það kall-
aði á einhverja þörf fyrir að semja,“
segir Ólafur, sem fór brátt að spila
í veislum og á mannamótum til að
prófa hugmyndir sínar áfram. Þessi
fyrsta plata hans markar síðan
umgjörð um það sem hann hefur
starfað við í tónlistinni undanfarin
ár. - þij
Þá leigði ég mér
risavaxið rafmagnspíanó,
fór að leika mér á hljóð-
færið og það kallaði á
einhverja þörf fyrir að
semja.
Harvard-maður hjá fj ármála-
ráðuneytinu gefur út sólóplötu
Ólafur Reynir Guðmundsson lögfræðingur fékk ástríðu fyrir tónlistargerðinni í Harvard.
RENNUR ÞÆGILEGA NIÐUR Tónlist
Ólafs minnir á kvikmyndatónlist.
Aerial inniheldur valin verk eftir
Önnu frá undanförnum árum og
flutningur verkanna er í höndum
tónlistarhópsins CAPUT undir
stjórn Guðna Franzsonar, Sin-
fóníuhljómsveitar Íslands undir
stjórn Ilan Volkov, meðlima úr
Sinfóníuhljómsveit Íslands, Duo
Harpverk, Nordic Affect, Tinnu
Þorsteinsdóttur og Önnu Þor-
valdsdóttur.
Anna hlaut tónlistarverðlaun
Norðurlandaráðs árið 2012 fyrir
verk sitt Dreymi. Á meðal ann-
arra listamanna sem Univers-
al Music Classics gefur út eru
Sting, Tori Amos, Andrea Bocelli
og Ólafur Arnalds.
Anna gefur út Aerial
Tónskáldið Anna Þorvaldsdóttir hefur sent frá sér plötuna Aerial á vegum út-
gáfunnar Deutsche Grammophon/Universal Music Classics. Í tilefni þess var
efnt til hófs í Björtuloft um og mættu þangað góðir gestir.
GYÐA OG FLEMMING Kennararnir frá
Akranesi, Gyða Bentsdóttir og Flemm-
ing Madsen, létu sig ekki vanta.
SIGURÐUR OG HRAFN Sigurður Hall-
dórsson og Hrafn Ásgeirsson sam-
fögnuðu Önnu.
Í PARTÍI Tui, Páll Ragnar Pálsson og Ásmundur
Jónsson hjá Smekkleysu mættu í Hörpu.
ÞORLEIFUR OG ARNBJÖRG Leikstjór-
inn Þorleifur Örn Arnarsson og Arnbjörg
María Daníelssen.
ÞRJÁR Í HÓFI Berglind Tómasdóttir,
Tinna Þorsteinsdóttir og Elísabet
Ragnarsdóttir voru á meðal gesta.
Í BJÖRTULOFTUM Ármann Agnarsson og tónskáldið Anna Þorvaldsdóttir í útgáfu-
hófinu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
KOL RESTAURANT · SKÓLAVÖRÐUSTÍGUR 40 · SÍMI 517 7474 · KOLRESTAURANT.IS
JÓLA-
STEMNINGIN
ER Á KOL
…og matseðillinn er kominn í léttan jólabúning
SJÖ RÉTTA JÓLAMATSEÐILL
VILLIBRÁÐAR TERRINE
Vanillueplachutney, grillað brauð
RAUÐRÓFUGRAFIN BLEIKJA
Piparrót, dill
TVÍREYKT HANGILÆRI
Söltuð og reykt svínalund, 30 mánaða íslenskur cheddar
VILLIBRÁÐARSÚPA
Blóðbergs- og trufflu mascarpone, blaðlaukur, bláber
HUNANGSGLJÁÐUR GRILLAÐUR GRÍSAHNAKKI
Brúnkál, hunang, hvítlauks-timian kartöflur, rifsber, sinnepsfræ
eða
NÆTURSALTAÐUR ÞORSKUR
Grillað toppkál, blaðlaukur, quinoa, beurre blanc
MÖNDLUKAKA
Kirsuber, möndlur, chantilly rjómi
SÚKKULAÐI BROWNIE
Brownie, hvítt bakað súkkulaði, jólaís
Aðeins í boði fyrir allt borðið
Verð 8.490 kr. á mann
7.490 sun-mið
Borðapantanir í síma 517 7474 eða
info@kolrestaurant.is
Vikan á Twitter Coke Light og gömul kommóða
Halldór
Armand
@HalldorArmand
Ég kaus BF– Wow
Air stjórnmálanna– en núna
sýnist mér þau vera hrædd
v/breytingar og íhaldssöm
alveg eins og allir hinir. Er
það svo?
Jón Örn
Loðmfjörð
@lodmfjord
Það er alltaf verið
að segja mér að followa eitt-
hvað lið. Ég verð skelkaður.
Hættu að þröngva uppá mig
mannleg samskipti, ungfrú
tækniöld.
Þorsteinn
Guðmundsson
@ThorsteinnGud
Keypti gamla
kommóðu í dag. Líður dálítið
eins og ég þurfi að kynnast
henni áður en ég set nær-
fötin mín í hana.
Salka Sól
Eyfeld
@salkadelasol
Aspartame
fíkillinn ég, hef ákveðið að
hætta að drekka cokelight
til óákveðins tíma. Opinbera
það hér í von um andlegan
stuðning #nocokeforyou
Áslaug Arna
Sigurbjörns-
dóttir
@aslaugarna
Á afmæli á fyrsta í aðventu,
hugmynd frá vin var að halda
Aðventupartý. Veit ekki alveg
hvernig það virkar … Kveikja á
kerti og drekka bjór?
LÍFIÐ