Fréttablaðið - 22.12.2014, Blaðsíða 6
22. desember 2014 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 6
M e ð í s l e
n s k um
r jóma
G A M A L D A G S
MENNING Um helmingur lands-
manna ætlar að borða hamborgar-
hrygg í aðalrétt á aðfangadag sam-
kvæmt nýrri könnun MMR. Aðrir
algengir aðalréttir eru lambakjöt,
rjúpur og kalkúnn.
Alls 50,4 prósent aðspurðra sögð-
ust ætla að borða hamborgarhrygg,
8,7 prósent rjúpur og 8,5 prósent
kalkún. Svínakjöt, annað en ham-
borgarhryggur, verður á borðum
4,5 prósenta aðspurðra en 17,2 pró-
sent sögðust ætla að borða eitthvað
annað en fyrrgreinda kosti.
MMR kannaði einnig hvað fólk
ætlar að borða eftir aldri, búsetu
og stuðningi við stjórnmála-
flokka.
„Þeir sem tilheyrðu aldurs-
hópnum 50-67 ára borða síður
hamborgarhrygg á aðfangadags-
kvöld en aðrir hópar. Þeir sem til-
heyrðu aldurshópnum 50-67 ára
voru hins vegar líklegri til að
borða lambakjöt en aðrir,“ segir
í tilkynningu MMR.
Samkvæmt könnuninni borða
íbúar á landsbyggðinni frekar
lambakjöt á aðfangadag en íbúar
höfuðborgarsvæðisins. Ham-
borgar hryggur er þó vinsælast-
ur hjá báðum hópum.
„Lambakjöt nýtur meiri vin-
sælda sem aðalréttur á aðfanga-
dag á meðal stuðningsfólks
Fram sóknarflokksins en stuðn-
ingsfólks annarra flokka. Stuðn-
ingsfólk Vinstri-grænna sagðist
frekar ætla að borða rjúpur sem
aðalrétt á aðfangadag en stuðn-
ingsfólk annarra flokka.“
- hg
Lambakjöt nýtur meiri vinsælda á aðfangadag hjá stuðningsmönnum Framsóknarflokksins en öðrum:
Hamborgarhryggurinn enn langvinsælastur
BANDARÍKIN Tveir lögreglumenn
voru skotnir til bana við skyldu-
störf í New York á laugardagskvöld.
Barack Obama, forseti Bandaríkj-
anna, fordæmdi í gær morðið á lög-
reglumönnunum.
Obama sagði að lögreglumenn-
irnir myndu ekki eiga afturkvæmt
til ástvina sinna „og það er með
engu móti hægt að réttlæta það,“
sagði hann.
Talið er að mennirnir hafi verið
skotnir einungis vegna þess að þeir
voru einkennisklæddir í lögreglu-
búningum. Byssumaðurinn hafði
nokkru áður birt hatursummæli
um lögregluna á netinu.
Í yfirlýsingu sinni sagði Obama:
„Ég fordæmi morðin á lögreglu-
mönnunum í New York-borg. Lög-
reglumenn sem þjóna og vernda
samfélag okkar stefna sér í hættu
fyrir okkur á hverjum einasta degi
og verðskulda virðingu okkar og
þakklæti,“ sagði Obama, en forset-
inn er nú í fríi á Havaí.
Byssumaðurinn heitir Ismaaiyl
Brinsley og er 28 ára gamall. Hann
hafði birt skilaboð á samfélags-
miðlum um að hann hygðist myrða
lögreglumenn í hefndarskyni fyrir
Eric Garner, svartan mann sem
féll þegar lögreglumenn reyndu að
handtaka hann fyrir að selja sígar-
ettur í New York.
Fyrr í mánuðinum ákvað dóm-
stóll að ekki yrðu gefnar út ákær-
ur vegna mannsins. Í nóvember
ákvað dómstóll einnig að ekki yrðu
gefnar út ákærur á hendur hvítum
lögreglumanni sem skaut Michael
Brown, óvopnaðan 18 ára ungling,
til bana í Ferguson í Missouri.
Bill Bratton, lögreglustjóri í New
York, sagði í yfirlýsingu vegna
atviksins að mennirnir hefðu verið
skotnir fyrirvaralaust. „Þeir voru
einfaldlega teknir af lífi. Þeir voru
valdir vegna einkennisbúninganna
þeirra og vegna þess að þeir kusu
að gegna því hlutverki að halda
borginni öruggri,“ sagði Bratton.
Eftir að hafa myrt lögreglumenn-
ina hljóp byssumaðurinn að neðan-
jarðarlestarstöð þar sem hann
svipti sig lífi. Lögreglustjórinn
segir að áður en Brinsely myrti lög-
reglumennina hafi hann ráðist að
fyrrverandi unnustu sinni í Balti-
more og sært hana.
Bill de Blasio, borgarstjóri í New
York, hvatti alla þá sem sjá ein-
hvers konar hótanir á samfélags-
miðlunum til þess að tilkynna slík-
ar hótanir til lögreglu.
Lögreglumenn voru síðast myrtir
í New York árið 2011.
jonhakon@frettabladid.is
Barack Obama fordæmdi
morð á lögreglumönnum
Tveir lögreglumenn í New York voru myrtir á laugardagskvöld. Málið vekur óhug vestra. Obama forseti segir
að lögreglumenn, sem hætti lífinu fyrir öryggi borgaranna, eigi að njóta virðingar hjá almenningi í hvívetna.
WILLIAM J. BRATTON Lögreglustjórinn í New York segir að lögreglumennirnir hafi verið teknir af lífi. Hér sést Bratton með Bill
de Blasio borgarstjóra á blaðamannafundi. NORDICPHOTOS/AFP
JÓLABORÐ Samkvæmt könnuninni er
hamborgarhryggur vinsælastur hjá þeim
sem eru með 400-599 þúsund krónur í
heimilistekjur á mánuði.
Lög reglu-
menn sem
þjóna og
vernda samfé-
lag okkar,
stefna sér í
hættu fyrir
okkur á hverjum einasta
degi og verðskulda virð-
ingu okkar og þakklæti.
Barack Obama, forseti Bandaríkjanna.
Fjölskylda Browns hafnar öllu ofbeldi
Fjölskylda Michaels Brown, sem féll fyrir hendi lögreglumanna, fordæmdi
árásina á lögreglumennina tvo um helgina. „Við höfnum öllu ofbeldi
gagnvart lögreglumönnum. Slíkt er ekki hægt að líða. Við verðum að vinna
saman að því að stilla til friðar í samfélaginu,“ sagði í yfirlýsingu frá fjöl-
skyldunni. „Við hugsum til fjölskyldna lögreglumannanna og biðjum fyrir
þeim á þessum erfiðu tímum,“ segir jafnframt í yfirlýsingunni.
1. Íslensk kona var handtekin í Hol-
landi fyrir smygl. Hvaða eiturlyfi
smyglaði hún?
2. Gísli Rafn Óskarsson starfar fyrir
alþjóðleg hjálparsamtök. Hvað heita
þau?
3. Við hvaða erlenda plötufyrirtæki
gerði hljómsveitin Kaleo útgáfusamn-
ing?
SVÖR
SKATTAR Persónuafsláttur ein-
staklinga hækkar um 0,8 prósent
fyrir árið 2015 eða um 404 krónur
á mánuði. Skattleysismörk verða
142.153 krónur að teknu tilliti til
fjögurra prósenta lögbundinnar
iðgjaldsgreiðslu launþega.
Fram kemur hjá fjármálaráðu-
neytinu að tekjuskattur verður
áfram lagður á í þremur þrepum.
Á fyrsta þrepinu, launum upp að
309 þúsund krónum á mánuði, er
lagður á 22,86 prósenta skattur.
Af næstu 527 þúsund krónum
eru reiknuð 25,3 prósent og 31,8
af efsta þrepinu. Við bætist svo
útsvarsprósenta sveitarfélaga. - sa
Persónuafsláttur óbreyttur:
Tekjuskattþrep
eru áfram þrjú
VIÐSKIPTI Bandaríska prentara-
fyrirtækið Xerox hefur valið
Advania sem Samstarfsfélaga
ársins 2014 (Partner of the year).
Aðeins eru þrjú ár síðan Advania
og Xerox hófu samstarf.
Nokkrar ástæður eru gefnar
fyrir því að Advania hlaut þenn-
an titil. Frammistaða fyrirtæk-
isins fór langt fram úr því sem
vonast hafði verið eftir auk þess
að hafa fundið eigin lausnir á
þeim verkefnum sem fyrirtæk-
ið stendur frammi fyrir. Adv-
ania hefur einnig stefnt að því að
verða leiðandi í hérlendum prent-
lausnum. - jóe
Valið Samstarfsfélagi ársins:
Viðurkenning
fyrir Advania
VERÐLAUNAÐIR Hluti starfsmanna
prentsviðs Advania. MYND/ADVANIA
VEISTU SVARIÐ?
1. MDMA 2. NetHope 3. Atlantic Records