Fréttablaðið - 22.12.2014, Page 20
22. desember 2014 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 20
Red Wing 49.990.-
Libertine-Libertine 16.990.-
Norse Projects 23.990.-
Norse Projects 8.990.-
NÁTTÚRA Hraunið sem renn-
ur frá eldstöðinni í Holuhrauni
þekur nú 80 ferkílómetra lands
á svæðinu norðan við Dyngju-
jökul. Aukin jarðskjálftavirkni
hefur mælst norðan Tungnafells-
jökuls síðustu daga, en svæðið
hefur verið virkt síðan umbrotin
í norðvestanverðum Vatnajökli
hófust um miðjan ágúst. Ekki er
útilokað að virknin gæti endað
með litlu eldgosi.
Ármann Höskuldsson, eld-
fjallafræðingur hjá Jarðvísinda-
stofnun, segir, spurður um þróun
eldgossins þessar vikurnar, að
hægt og bítandi dragi úr allri
virkni á svæðinu eins og vís-
bendingar í nær öllum gögnum
frá Bárðarbungu sýni.
„Þetta er allt að draga sig
saman, allt sem er að gerast er
í kringum gígana og engar lang-
ar opnar hraunrásir lengur sem
þýðir að eldgosið er allt að hægja
á sér. Það þýðir líka að gosið getur
verið í þessum gír í mörg ár. Þetta
er ekkert að klárast á morgun eða
næstu daga. Það góða er að gasút-
streymið er miklu minna, sem eru
bestu fréttirnar þó að logi þarna
eitthvað fram á næsta ár,“ segir
Ármann.
Hraunrennsli er aðallega í norð-
ur frá gígunum og stór hluti norð-
urjaðarsins er virkur. Hrauná
nær nú í 14 kílómetra fjarlægð frá
gígunum, til norðausturs.
Spurður um virknina í Tungna-
fellsjökli, og hvort hún hafi ein-
hverja sérstaka þýðingu, segir
Ármann erfitt um það að segja.
„Það virðist eins og hann sé að
taka við einhverju frá Bárðar-
bungu; eitthvert hliðarskot sem
erfitt er að segja til um hvernig
endar. Það gæti endað með Fimm-
vörðuhálsgosi eða einhverju í lík-
ingu við það. Þó að það sé sig í
Bárðarbungu þá þarf hún greini-
lega að koma meiru frá sér en hún
losar út í Nornahraunið,“ segir
Ármann.
Nú eru rétt rúmlega fjórir
mánuðir síðan jarðhræring arnar
hófust við Bárðarbungu.
Gögn sýna að mesta virkn-
in í kvikuganginum, eða mesta
orkulosunin, var vikuna áður en
sprungugosið hófst eða á meðan
gangurinn var að ryðjast fram.
Orkulosunin í ganginum núna
er 10.000 sinnum minni en þá
var. svavar@frettabladid.is
Nornahraun nær yfir
80 ferkílómetra lands
Virknin á gosstöðvunum í Holuhrauni minnkar jafnt og þétt. Gæti þó haldið
áfram næstu árin, segir eldfjallafræðingur. Smágos í Tungnafellsjökli er hugsan-
legt en þar er aukin jarðskjálftavirkni. Nornahraun stækkar, en hægt núorðið.
NORNAHRAUN Hraunið þenur sig aðallega út til norðurs þessa dagana. MYND/JÍ/GROPEDERSEN
Vonarskarð heitir svæðið milli Tungnafellsjökuls og Vatnajökuls (Bárðar-
bungu). Á þessu svæði eru þrjár megineldstöðvar. Vestast er Tungnafells-
jökull sem virðist nokkuð gömul eldstöð og allmikið rofin. Í toppi hennar
er lítil askja en yfirborðsjarðhiti hefur ekki fundist. Í miðið er Vonarskarð,
sem grípur inn í austurhlíðar Tungnafellsjökuls. Austast er Bárðarbunga og
er hún yngst þessara þriggja megineldstöðva.
Vonarskarðseldstöðin er yfir 10 kílómetrar í þvermál og má rekja öskju-
rima í henni vestanverðri sem gengur upp í lághlíðar Tungnafellsjökuls.
Ljóst er af þeim litlu rannsóknum sem fram hafa farið að askjan er nokkur
hundruð þúsund ára gömul. Á suðurrimanum eru áberandi líparítmynd-
anir sem hafa myndast við gos undir jökli.
Heimild: Haukur Jóhannesson, ÍSOR.
Tungnafellsjökull er gömul eldstöð
Það virðist eins og hann sé að taka við
einhverju frá Bárðarbungu; eitthvert hliðar-
skot sem erfitt er að segja til um hvernig
endar. Það gæti endað með Fimmvörðuháls-
gosi eða einhverju í líkingu við það.
Ármann Höskuldsson,
eldfjallafræðingur hjá Jarðvísindastofnun.
FANGELSISMÁL Fangelsin á Íslandi
geta ekki mannað stöður í veikinda-
forföllum. Þetta varð meðal annars
til þess að enginn fangavörður var á
Kvíabryggju á tímabili á þriðjudag í
síðustu viku. Þetta staðfestir Garð-
ar Svansson, trúnaðarmaður fanga-
varða á Kvíabryggju.
Í fangelsinu eru alla jafna varð-
stjóri og fangavörður á dagvakt, auk
forstöðumanns, og einn fanga vörður
á næturvakt með 22 fanga. Þennan
dag var aftur á móti bara einn á
vakt ásamt forstöðumanni. „Og sá
sem var á vaktinni þurfti að fara
með mann til læknis. Á meðan var
enginn, hvorki varðstjóri né fanga-
vörður, á staðnum, bara forstöðu-
maðurinn,“ segir Garðar. Stofnanir
Fangelsismálastofnanir eigi, vegna
niðurskurðar, erfitt með að kalla inn
aukamannskap í forföllum. Þetta
ógni öryggi fangavarða. „Virkilega,
því fangelsi landsins eru klárlega
undirmönnuð,“ segir hann.
Birgir Guðmundsson, forstöðu-
maður fangelsisins, segir ekkert
meiri manneklu í fangelsinu þessa
dagana en venjulega. Ekki vinni
margir á Kvíabryggju þannig að
það sé ekki alltaf hægt að kalla inn
á aukavaktir. „En þá er það þannig
að ég er bara á staðnum í staðinn,“
segir Birgir. Hann kannast við
það að hafa verið einn í fangelsinu
á þriðjudag í síðustu viku í fáeina
klukkutíma. „Það er bara alvanalegt
hér. Hér er ekki öryggisfangelsi.“
Birgir telur fangelsið nægilega
mannað, nema helst á nóttunni. „Þar
sem maður er hálfan sólarhringinn
einn,“ segir Birgir.
Margrét Frímannsdóttir er for-
stöðumaður bæði á Litla-Hrauni
og á fangelsinu að Sogni. Hún segir
starfsmannamál þar í góðu horfi.
„Við getum alltaf mannað allar
vaktir hér. Aukavaktir eru alltaf
mannaðar,“ segir hún. Litla-Hraun
og Sogn sé í raun og veru einn og
sami vinnustaðurinn, fangaverðir
á Litla-Hrauni taki vaktir á Sogni
og öfugt. Starfsmannahópurinn sé
því mjög stór í heildina. „Ég er með
mjög fínt og gott starfsfólk,“ segir
Margrét. - jhh
Vegna manneklu þarf forstöðumaður fangelsisins að Kvíabryggju reglulega að gæta fanganna sem þar eru einsamall:
Mannfæð er á vöktum vegna manneklu í fangelsinu
Í FANGAKLEFA Fangelsið á Kvíabryggju
er ekki öryggisfangelsi og því eru herbergi
fanganna ekki rammgerð. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR