Fréttablaðið - 22.12.2014, Blaðsíða 68
22. desember 2014 MÁNUDAGUR| SPORT | 60
HANDBOLTI Konrad Wilczynski
hefur starfað með íslenskum þjálf-
urum meira og minna undan farin
tólf ár og því þarf það ekki að
koma á óvart að hann ætli sér að
ráða Íslending til að þjálfa austur-
ríska liðið SG Handball West Wien
þegar Erlingur Richardsson lætur
af störfum í sumar. Wilczynski
sagðist í samtali við Fréttablaðið
vera gáttaður á því hversu marg-
ir góðir þjálfarar hafa komið frá
Íslandi.
„Okkur í Austurríki hefur ekki
tekist að búa til svo góða þjálfara,“
segir hann en Wilczynski er í dag
framkvæmdastjóri West Wien,
eftir að hafa lagt skóna á hilluna
í sumar.
„Ég hef sjálfur langa og góða
reynslu af íslenskum þjálfurum og
mér líkar við viðhorf þeirra. Þeir
virðast geta starfað hvar sem er
og með hverjum sem er. Við erum
ekki komnir langt á veg í ráðn-
ingar ferlinu en höfum þó feng-
ið um 50 umsóknir inn á borð til
okkar sem við munum skoða betur
í janúar,“ segir hann.
Spilandi þjálfari kemur til greina
Wilczynski segir þó að hann hafi
einsett sér að ráða íslenskan þjálf-
ara. „Við munum líta fyrst til
Íslands áður en við skoðum aðra
þjálfara. Ég þekki marga íslenska
leikmenn og þjálfara og hef rætt
við þá um marga þjálfara. Ég tel
að ég sé með um tíu nöfn íslenskra
þjálfara sem koma mögulega til
greina í starfið.“
Hann segir einnig að spilandi
þjálfarar komi til greina, þó svo
að honum hugnist það síður. „Ég
útiloka ekki neitt en þeir eru afar
fáir sem geta sinnt báðu. Dagur
gerði það vel [hjá Bregenz] og ef
við finnum einhvern sem kemur til
greina munum við skoða það eins
og allt annað.“
Erlingur hefur undanfarið eitt
og hálft ár starfað hjá West Wien
en það er hans fyrsta þjálfarastarf
utan Íslands. Wilczynski telur að
hann passi vel við þjálfarastarfið
hjá Füchse Berlin.
„Ég hef fulla trú á því. Ég studdi
hann heilshugar í öllu ferlinu og
ræddi margoft við Bob Hanning
[framkvæmdastjóra Füchse Berl-
in] um Erling. Félögin eru lík að
því leyti að bæði vilja huga vel
að ungum leikmönnum en vera í
toppbaráttu í sínum deildum. Það
er þó vitaskuld þannig að það er
allt miklu stærra í Berlín og því
verður þetta mikil áskorun fyrir
hann. Ég hef þó engar áhyggjur af
öðru en að Erlingi farist starfið vel
úr hendi.“
Alls verða fjórir íslenskir þjálf-
arar starfandi á HM í Katar í
næsta mánuði en auk Arons Krist-
jánssonar, þjálfara íslenska liðs-
ins, verða Dagur Sigurðsson
(Þýskaland), Guðmundur Guð-
mundsson (Danmörk) og Patrekur
Jóhannesson (Austurríki) í eldlín-
unni með sín lið.
Árangurinn engin tilviljun
„Þetta er afar spennandi og
athyglis vert að íslenskir þjálfarar
hafi náð jafn langt á alþjóðlegum
vettvangi. Það sýnir hversu mik-
ils virt það er á Íslandi að vera
handboltaþjálfari og hversu marg-
ir hafa einsett sér að ná langt og
tekið þjálfaraferilinn föstum
tökum. Þeir hafa lagt virkilega
mikið á sig til að ná svona langt og
því er þetta engin tilviljun.“
eirikur@frettabladid.is
Með tíu Íslendinga í sigtinu
Konrad Wilczynski, framkvæmdastjóri austurríska félagsins West Wien, ætlar að leita fyrst til Íslands í leit
sinni að eft irmanni þjálfarans Erlings Richardssonar. Hann dáist að viðhorfi og metnaði íslenskra þjálfara.
ÞEKKIR VEL TIL ÍSLENDINGA Konrad Wilczynski lagði skóna á hilluna í vor en hér er hann í leik með austurríska landsliðinu
gegn Íslandi á æfingamóti í Þýskalandi í byrjun ársins. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
Konrad Wilczynski er einn farsælasti handboltamaður
sem Austurríki hefur alið en þessi vinstri hornamaður
spilaði lengst af með Bregenz í föðurlandinu og svo
Füchse Berlin í Þýskalandi. Hann hóf ferilinn með upp-
eldisfélaginu West Wien, þar sem hann starfar nú sem
framkvæmdastjóri eftir að hafa
leikið síðustu ár leikmannaferils-
ins í austurrísku
höfuðborginni.
Allt frá
2002 hefur
Wilczynski
starfað með
þremur ís-
lenskum þjálf-
urum. Fyrstu
fjögur árin hjá Bregenz
þar sem Dagur Sigurðsson
var spilandi þjálfari og svo
áfram frá 2008 til 2010 eftir
að Dagur tók við austurríska
landsliðinu. Á þeim árum var
Dagur einnig ráðinn þjálfari Füchse Berlin en þangað
fór Wilczynski árið 2006 og spilaði í fimm ár við góðan
orðstír. Meðal annars varð hann markakóngur þýsku
deildarinnar 2007-8.
Stuttu eftir að Wilczynski sneri aftur til Vínarborgar
árið 2011 var Patrekur Jóhannesson
ráðinn þjálfari austurríska landsliðsins
og lék Wilczynski með því þar til að
hann lagði landsliðsskóna á hilluna
eftir EM í janúar á þessu ári.
Wilc-
zynski
átti
stóran
þátt í að
ráða Erling
Richards son til West
Wien í fyrra og ætlar
að hefja samstarf við
enn einn íslenska þjálfarann í
sumar, þegar Erlingur heldur til
Füchse Berlin í Þýskalandi.
Hefur starfað í tólf ár með íslenskum þjálfurum
FÓTBOLTI Þó svo að Borussia Dort-
mund hafi unnið sinn riðil í Meist-
aradeild Evrópu og sé komið í
sextán liða úrslit keppninnar
gengur nákvæmlega ekkert upp
hjá félaginu heima við.
Um helgina tapaði liðið 2-1 gegn
Werder Bremen og Dortmund
verður því í 17. og næstneðsta sæti
deildarinnar yfir jólin sem er ótrú-
leg staðreynd.
Hið eina jákvæða sem þjálfari
liðsins, Jürgen Klopp, gat tekið úr
leiknum var sú staðreynd að nú er
komið frí í deildinni til 31. janú-
ar. Sá tími verður væntanlega vel
nýttur til þess að rífa liðið upp á
nýjan leik.
„Ekki meiri fótbolti árið 2014.
Það eru bestu fréttir dagsins. Öll
gagnrýni sem við höfum fengið er
fullkomlega réttmæt. Við lítum út
eins og hálfvitar á vellinum og það
er engum nema okkur sjálfum að
kenna,“ sagði Klopp bugaður eftir
leikinn.
„Við getum núna undirbúið
okkur í þrjár vikur og svo verð-
ur farið í að laga það sem þarf að
laga. Það er svo sannarlega mikið
sem við þurfum að vinna í.“
Dortmund spilar gegn Bayer
Leverkusen 31. janúar. - hbg
Við lítum út eins og hálfvitar
Stórlið Dortmund fer í jólafríið í næstneðsta sæti þýsku úrvalsdeildarinnar.
BUGAÐUR Klopp var ekki upplitsdjarfur eftir leik. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
HANDBOLTI Íslenska kvennalandsliðið í handknattleik
fer ekki auðveldu leiðina á heimsmeistaramótið sem
haldið verður í Danmörku að ári.
Dregið var í umspilinu um laust sæti í gær. Ísland
var í neðri styrkleikaflokki og því mátti búast við
erfiðum andstæðingi.
Hann fékk íslenska liðið líka en stelpurnar spila
gegn Svartfjallalandi sem var ríkjandi Evrópumeistari
þar til í gær.
Ísland á þó seinni leikinn heima 13. eða 14. júní
en liðið verður að ná hagstæðum úrslitum í
Svartfjallandi – sá leikur fer fram vikuna á
undan. - hbg
Stelpurnar mæta Svartfj allalandi
KAREN KNÚTSDÓTTIR
HANDBOLTI Kiel og Rhein-Neckar
Löwen eru jöfn í efstu sætum þýska
handboltans eftir tap Kiel, 26-22,
gegn Flensburg um helgina.
Aron Pálmarsson skoraði fimm
mörk fyrir Kiel í leiknum. Kiel og
Löwen eru með 32 stig og Flensburg
er með 29.
Geir Sveinsson er heldur betur að
gera fína hluti með Magdeburg en
hans lið er í fjórða sæti deildarinnar
eftir 28-19 sigur gegn Erlangen.
Það gengur ekki eins vel hjá liði
Dags Sigurðssonar, Füchse Berlin, en
liðið er í frjálsu falli niður töfluna og
er komið í tíunda sæti eftir tap, 30-
25, gegn Bergischer. Arnór Þór Gunn-
arsson er í stuði í liði Bergischer en
hann skoraði átta mörk í leiknum.
Hans lið er í þrettánda sæti.
Rúnar Kárason og félagar í Hann-
over-Burgdorf eru í ellefta sæti þýsku
deildarinnar eftir tap, 36-30, gegn
Hamburg um helgina. Rúnar skoraði
eitt mark í leiknum. - hbg
Aron skoraði fi mm mörk í tapleik
Í STUÐI Aron er kominn aftur af
stað eftir meiðsli og er að spila vel.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
HANDBOLTI Noregur tryggði sér
í gær Evrópumeistaratitilinn
eftir þriggja marka sigur, 28-25,
á Spáni í frábærum úrslitaleik í
Búdapest.
Það gekk brösuglega hjá norsku
stúlkunum framan af en þær
náðu að berjast inn í leikinn og
voru aðeins tveimur mörkum
undir í hálfleik, 12-10.
Hálfleiksræða hins íslenska
þjálfara norska liðsins, Þóris
Hergeirssonar, hefur verið af
dýrari gerðinni því allt annað var
að sjá til norska liðsins í síðari
hálfleik.
Norsku stelpurnar voru miklu
grimmari í öllum sínum aðgerð-
um og voru fljótlega komnar með
frumkvæðið í leiknum. Spenna
var undir lokin en taugar norsku
stelpnanna brustu ekki. Linn-
Kristin Riegelhuth Koren átti
stórkostlegan leik í liði Noregs en
hún skoraði tíu mörk. Nora Mörk
skoraði sjö mörk en hún spilaði
frábærlega á þessu móti.
Nerea Pena var sterkust í liði
Spánverja með tíu mörk.
Þetta er í sjötta sinn sem Nor-
egur hampar Evrópumeistaratitl-
inum en EM hefur verið haldið
ellefu sinnum.
Þetta er í annað sinn sem Nor-
egur vinnur Evrópumótið undir
stjórn Þóris en liðið gerði það
einnig árið 2010. Fyrir tveimur
árum tapaði norska liðið síðan í
úrslitum fyrir Svartfjallalandi.
Fráfarandi meistarar Svart-
fjallalands unnu ekki til verð-
launa á mótinu að þessu sinni,
töpuðu bronsleiknum, 25-23, fyrir
Svíum.
Isabella Gullden átti enn einn
stórleikinn fyrir Svía í gær er
hún skoraði sjö mörk. - hbg
Þórir Evrópu-
meistari
GLEÐI Þórir fagnar gullverðlaununum í
gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
SPORT