Fréttablaðið - 26.11.2015, Qupperneq 1
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —2 7 7 . t ö l u b l a ð 1 5 . á r g a n g u r f i M M t u d a g u r 2 6 . n ó v e M b e r 2 0 1 5
Fréttablaðið í dag
skoðun Björn B. Björnsson skrifar
um krónuna og kjörin. 24-30
sport Matthías stefnir á EM. 32-34
Menning Gamanleikurinn Kate
verður frumsýndur í kvöld. 40-48
lÍfið Vegamót verða aftur
skemmtistaður. 54-58
plús 2 sérblöð l fólk l lÍfið
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015
er komin út!
Jólagjafa
handbókin
NÝJUNG
ISIO skvísa
Einstök blanda úr 4 olíum
OPIÐ TIL
21
Í KVÖLD
KOMDU Í
HLÝJUNA
Lögreglukona mætti búin belti með skammbyssu þar sem aðstoða þurfti eftir árekstur. Hún er sögð hafa komið vopnuð af flugverndaræfingu.
lögregluMál Stefnt er að því að
skammbyssum verði komið fyrir í
sérstökum vopnakassa í lögreglu
bílum lögreglunnar á höfuðborgar
svæðinu um miðjan desember.
Þessi breyting er endir á þriggja ára
þjálfunaráætlun lögreglunnar sem
lýkur 10. desember. Eftir þann tíma
verður hafist handa við að koma
vopnum fyrir í bílunum.
Til þessa hefur sérsveitin verið
eina lögregluliðið á höfuðborgar
svæðinu með vopn á sér og eru sér
sveitarmenn sérþjálfaðir til þess
að beita vopnum við lögreglustörf.
Á síðustu árum hafa hins vegar
almennir lögregluþjónar stundað
skotvopnaæfingar.
Að sögn Ásgeirs Þórs Ágeirssonar,
yfirlögregluþjóns hjá lögreglunni á
höfuðborgarsvæðinu, er tilgangur
inn með breytingunum meðal
annars að minnka viðbragðstíma
vopnaðra lögreglumanna þar sem
það getur tekið sérsveit ríkislög
reglustjóra nokkurn tíma að mæta
á vettvang. Ásgeir hefur tekið þátt í
valdbeitingarþjálfun embættisins.
Ásgeir segir að meðal breytinga
í desember sé að skjólbúnaði verði
komið fyrir í bílunum og tekur
dæmi um hjálma og skotvesti.
Lögregluþjónar munu ekki koma
til með að hafa aðgang að skamm
byssunum nema þar til bær yfir
maður láti þeim í té aðgangskóða
að vopnakassanum eftir að hann
hefur verið upplýstur um málavexti.
Í vikunni sást til lögregluþjóns
með skammbyssu á vettvangi
umferðarslyss á Norðurlandi.
„Sama dag fór fram flugverndar
æfing á Akureyrarflugvelli. Þegar
slíkar æfingar eru í gangi þá eru lög
reglumenn sendir vopnaðir á vett
vang í þeim tilgangi að æfa sig í að
fást við vopnaða einstaklinga,“ segir
Daníel Guðjónsson, yfirlögreglu
þjónn hjá lögreglunni á Norður
landi eystra, um málið.
„Byssan var ekki hlaðin og
umræddur lögreglumaður var á
æfingunni. Það varð þetta alvar
lega slys og það þurfti að losa hann
af æfingunni og hann var sendur á
vettvang til að loka fyrir umferð,“
segir Daníel. – ngy / sjá síðu 4
Lögreglan í Reykjavík fær byssur
Koma á skammbyssum fyrir í vopnakassa í lögreglubílum í borginni í desember. Yfirlögregluþjónn segir
meðal annars verið að stytta viðbragðstíma. Lögregluþjónar hafa verið á skotvopnaæfingum undanfarið.
viðskipti Ef af umsaminni yfirtöku
Pfizer á frumlyfjahluta Allergan verður
má áætla að hlutur Björgólfs Thors
Björgólfssonar í lyfjasamsteypunni
nemi 210 milljörðum króna.
Á mánudaginn var greint frá því
að samið hefði verið um kaup á
frumlyfjahluta Allergan fyrir 160
milljarða Bandaríkjadala, jafnvirði
21 þúsund milljarða íslenskra króna.
Breska blaðið The Telegraph segir
að hluthafar í Allergan muni fá 11,3
hluti í nýja fyrirtækinu fyrir hvern
hlut sinn. Samkvæmt því eignast
hluthafar í Allergan 44 prósent í nýju
samsteypunni. Í sumar kom fram að
hlutur Björgólfs Thors í Allergan
væri eitt prósent. Því má áætla að
hlutur hans eftir samruna nemi 0,44
prósentum.
Sé reiknað með að heildarverð
mæti samsteypunnar nemi mark
aðsvirði Pfizer, 202 milljörðum
Bandaríkjadala, og verðmæti samn
ingsins 160 milljörðum Bandaríkja
dala verður samsteypan samtals
362 milljarða Bandaríkjadala virði.
Má þá áætla að 0,44 prósenta eignar
hlutur Björgólfs Thors nemi samtals
1,59 milljörðum Bandaríkjadala,
eða jafnvirði 210 milljarða íslenskra
króna.
Björgólfur Thor á hlutinn í Aller
gan í gegnum hlut sem hann hélt í
Actavis þegar hann samdi um upp
gjör við kröfuhafa sína. – sg
Björgólfur Thor á allt að 210 milljarða í samsteypu
Lögreglumenn á
Íslandi vilja áfram
vera vopnlausir en vilja
geta unnið störf sín vel og
geta komið sjálfum sér og
öðrum í þjóðfélaginu til
bjargar.
Ásgeir Þór Ágeirsson,
yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á
höfuðborgarsvæðinu
Í sumar var greint frá því að eignarhlutur
Björgólfs í Allergan næmi einu prósenti.
3
0
-1
1
-2
0
1
5
1
0
:1
2
F
B
0
7
2
s
_
P
0
7
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
2
C
-4
F
5
0
1
7
2
C
-4
E
1
4
1
7
2
C
-4
C
D
8
1
7
2
C
-4
B
9
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
7
2
s
_
2
5
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K