Fréttablaðið - 26.11.2015, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 26.11.2015, Blaðsíða 38
Fólk| tíska systurnar Sigríður Ásdís og Ásgerður Ólína Jónasdætur hafa verið að hanna skartgripi úr íslensku hráefni síðastliðin fimm ár undir merk- inu Vala Design. Þær fara sérstaklega í Reynisfjöru við Vík í Mýrdal til að tína steina. „Við notum dökka sjávarslípaða steina og meðhöndlum þá ekkert frekar nema gera úr þeim perlur. Við reynum að nota aðeins náttúrulegar vörur og höfum verið að prófa okkur áfram með laxaroð, íslenskt hraun og íslensku ullina,“ segir Sigríður Ásdís sem alltaf er kölluð Sigga Dís. Margþætt Merking völu Þær systur segjast báðar lengi hafa haft töluverðan áhuga á hönnun og handverki og mikið verið að föndra og vinna í höndunum frá því þær voru börn. „Við fórum svo báðar í hönnunarnám í framhalds- skóla en áhuginn á skartgripagerð kviknaði þegar ég fór að vinna hjá fatahönnuði sem var líka að hanna skartgripi. Þá kynntumst við Lína systir þessari grein betur,“ lýsir Sigga Dís. Aðspurð að því hvaðan nafnið Vala komi segir hún að með því hafi þær slegið þrjár flugur í einu höggi. „Við notum steinvölur í hönnun- inni, hver gripur í fyrstu línunni sem við gerðum var nefndur eftir verum úr Völuspá og svo heitir mamma okkar Alda Vala.“ Minnir á ísland Þrátt fyrir að nota frekar gróft hráefni er skartið frá Völu fínlegt. Mikil áhersla er lögð á íslenskt hráefni í hönnuninni en ef það er ekki í boði er alltaf einhver vísun í íslenskt landslag eða Ísland. „Til dæmis minnir uppáhaldssteinninn okkar þessa dagana mikið á Jök- ulsárlón eða jöklana okkar. Við höfum einnig verið að nota hrafntinnu sem við flytjum inn af því að hún er friðuð hér. Einnig höfum við notað roð og þá aðallega laxaroð. Við notum líka íslenska ull, höfum þæft hana og notað hana meðal annars í nælur og hluti tengda heimilinu, til dæmis kertaglös, kaffikönnukápur og ýmislegt fleira.“ Sigga Dís segir mikla vinnu vera á bak við hvern skartgrip en helsta erfiðisvinnan er að búa til perlur úr steinunum. „Þá erum við að bora í blágrýti sem hefur alveg gríðarlega hörku. Einnig er svolítið mál að velja steinana og para þá saman. Það er mikil vinna á bak við þetta þó þetta séu bara steinar. Með tímanum hefur okkur tekist að skipuleggja vinnuna betur og borum meira í einu og búum svo til gripina í kjöl- farið.“ ÝMislegt í gangi Ýmsir fylgihlutir eru í vinnslu hjá Siggu Dís og Línu, svo sem treflar úr ull og roði, stúkur og eyrnaskjól. „Treflarnir hafa verið í undirbúningi í tvö ár og eru loksins að komast í framkvæmd núna. Svo erum við alltaf að búa til nýja gripi og prófa okkur áfram með hráefnin. Við erum til dæmis að búa til perlur úr roði sem kemur virkilega skemmtilega út og það sem við höfum gert af því hefur selst upp,“ segir Sigga Dís og nefnir að það sé auðveldara að prófa nýja hluti og sjá hvernig þeir leggjast í fólk eftir að þær opnuðu sjálfar verslun en systurnar reka verslunina N25 á Njálsgötu ásamt öðrum hönnuði.  n liljabjork@365.is sjávarslípaðir steinar og ull íslensk hönnun Skartið frá Völu Design er gert úr íslenskum afurðum, sjávarslípuðum steinum, hrauni og ull. Alls kyns fylgihlutir eru væntanlegir. hanna saMan Systurnar Sigga Dís og lína hafa verið að hanna hálsmen, armbönd, eyrnalokka og nælur úr íslensku hráefni síðast- liðin fimm ár undir merkinu Vala Design. MYND/VIlHElM MYNDIR/ÞóRIR JENSSoN Falleg hönnun Von er á nýjum gripum frá Völu, meðal annars treflum úr ull og laxaroði. Amma óþekka J. K. Kolsöe Nína S. Hrafnhildur Schram Viltu vera vinur minn? Bergrún Íris Sævarsdóttir Stúlka með höfuð Þórunn Jarla Valdimarsdóttir 2. 3. 4. Týnda hafið Johanna Basford Hundadagar Einar Már Guðmundsson Sorcerer’s Screed Skuggi Eitthvað á stærð við alheiminn Jón Kalman Stefánsson Litabókin hans Nóa Nói 6. 8. 9. 10. 1. METSÖLULISTI BÓKABÚÐAR MÁLS OG MENNINGAR 12. - 18. nóv 2015 5. 7. Syndarinn Ólafur Gunnarsson 3 0 -1 1 -2 0 1 5 1 0 :1 2 F B 0 7 2 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 2 K _ N Ý.p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 2 C -F 7 3 0 1 7 2 C -F 5 F 4 1 7 2 C -F 4 B 8 1 7 2 C -F 3 7 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 7 2 s _ 2 5 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.