Fréttatíminn


Fréttatíminn - 13.11.2015, Side 2

Fréttatíminn - 13.11.2015, Side 2
Hrafn Jónsson.  NeyteNdamál BreytiNgar á matseðli domiNos Brotthvarf gráðaostsins leggst illa í fagurkera „Þetta var því miður óhjákvæmileg ákvörðun. Ástæðan var einfaldlega sú að það seldist ekki nógu mikið af gráðaostinum,“ segir Anna Fríða Gísladóttir, markaðsstjóri Dominos á Íslandi. Dominos hefur tekið gráðaost af matseðlinum á veitingastöðum sínum – aðdáendum ostsins til mikillar armæðu. Einn þeirra er Hrafn Jónsson kvikmyndagerðarmaður, pistla- höfundur á Kjarnanum og annál- aður fagurkeri: „Það er algjörlega galið að [Dominos] sé búið að taka gráðaost af matseðlinum. Hvað gengur ykkur til? Er þetta ekki siðmenntað samfélag?“ spyr hann fyrirtækið á Twitter. Ekki náðist í Hrafn í gær vegna málsins. Anna Fríða segir að Dominos hafi fengið slæm viðbrögð frá nokkrum viðskiptavinum, enda séu unnendur gráðaostsins fastir í trúnni og vilji sitt. „Það er leiðinlegt ef einhver saknar gráðaostsins en þetta er því miður staðan í dag. Við erum opin fyrir því að taka hann inn aftur ef margir óska þess.“ -hdm Pítsugerðarfólkið á Dominos setur ekki lengur gráðaost á pítsurnar. Ljósmynd/Hari 4 milljarðar króna af nýju hlutafé kom inn í tölvu-leikjafyrirtækið CCP. Að baki fjár- festingunni standa einn stærsti framtaks- sjóður heims, New Enterprise Associates, sem leiðir fjárfestinguna, og Novator Partners, fjárfestingafélag Björgólfs Thors Björgólfssonar. Heiða valin kona ársins Ritstjórn Nýs Lífs hefur valið leikkonuna Heiðu Rún Sigurðardóttur konu ársins 2015. Heiða leikur eitt af aðalhlutverk- unum í einni vinsælustu þáttaröð í ensku sjónvarpi um þessar mundir, Poldark. „Fyrir mér er þetta mikill heiður sem ég þakka innilega fyrir. Það gleður mig að „Mér finnst að það eigi að reka Gísla Martein úr Sjálfstæðis- flokknum, hann á ekki heima þar. Maður á náttúrlega ekki að tala illa um fólk en þetta var mjög vanhugsað hjá honum,“ segir Önundur Erlingsson, bifvélavirki í Neskaupstað. Ummæli Gísla Marteins Baldurssonar þar sem hann velti því upp hvort íbúar þar eystra ættu að skipta með sér 2,5 milljarða kostnaði við snjóflóðavarnar- garða og flytja í bæinn hafa valdið mikilli hneykslan. Hitamælirinn Álit landsbyggðarfólks á Gísla Marteini einhverjum þyki aðdáunarvert að fylgja draumum sínum og sjá þá rætast. Ég er mjög metnaðargjörn og finnst það sem ég hef afrekað frábært en mér finnst ég alltaf geta gert betur,“ sagði Heiða, eða Heida Reed eins og hún kallast ytra. Íshellirinn verðlaunaður Íshellirinn í Langjökli, öðru nafni Into the Glacier, er handhafi nýsköpunarverðlauna SAF árið 2015. Verkefnið sem hlýtur verðlaunin í ár er afar metnaðarfullt, ein- stakt á heimsvísu og mikil lyftistöng fyrir ferðaþjónustuna á Vesturlandi sem og landinu öllu, segir í tilkynningu. Sigurður Skarphéðinsson, framkvæmdastjóri Into the Glacier, segir nýsköpunarverðlaun SAF vera mikla hvatningu fyrir starfsemi fyrirtækisins en Into the Glacier hefur nú þegar tekið á móti 20.000 gestum og enn er mikil ásókn í ferðir. e ins og komið hefur fram er mikill skortur á þessum fyrstu kaups íbúðum og við vitum að það er ekki verið að byggja mikið af þannig íbúðum,“ segir Aron Ólafsson, formaður Stúdentaráðs HÍ, en hann lýsti framtíðarsýn stúdenta á húsnæðismál á fundi Samtaka Iðnaðarins í gær, fimmtudag. Sjá ekki fram á að eignast húsnæði „Margir stúdentar hafa af því áhyggjur hvað taki við eftir foreldrahús, stúdenta- garða og leiguhúsnæði og könn- un okkar sýnir að 74% nemenda telja sig ekki geta verið komna í eigið húsnæði fimm árum eftir að hafa klárað nám. Þetta er áhyggjuefni því þetta þýðir að ungt fólk getur fest á leigumarkaðnum því það getur ekki lagt til hliðar. Og það vill enginn vera á leigumarkaðinum á Íslandi í dag sem er svo óstöðugur að fólk þarf að flytja á hverju ári. Sveigjanlegri kröfur Aron segir landslag fólks sem út- skrifast úr háskólanámi í dag vera allt annað en áður og fólk hafi auk þess aðrar hugmyndir um húsnæði í dag. „Í dag eru mjög margir einstak- lingar enn einhleypir á þessum árum sem fyrsta íbúðin er keypt. Þessi sístækkandi hópur þarfnast miklu minni íbúða en þeir sem eru að byggja upp fjölskyldu. Fyrsta íbúð þarf ekki endilega að þýða 2 svefnherbergi og þar að auki er ungt fólk í dag alveg tilbúið að fórna fermetrum, geymslum og bílskúrum til að geta eignast íbúð. Fólk er ekki að sækjast eftir þessu í dag. Ég er samt ekki að tala um að nú eigi bara að gera gáma fyrir ungt fólk heldur viljum við benda á að í dag eru uppi aðrar hugmyndir um húsnæði en áður, við erum sveigjanlegri.“ Halla Harðardóttir halla@frettatiminn.is  HúsNæðismál Breyttir tímar kalla á Nýtt Búsetuform Ungt fólk þarf hvorki bílskúr né geymslu 74% nemenda við Háskóla Íslands sjá ekki fram á að geta keypt sér íbúð fimm árum eftir útskrift. Aron Ólafsson, formaður Stúdentaráðs HÍ, lýsti framtíðarsýn stúdenta í húsnæðismálum á fundi Samtaka iðnaðarins í gær, fimmtudag. Hann segir ungt fólk í dag vera sveigjanlegt þegar kemur að húsnæði, ekki allir vilji eða þurfi rými á borð við bílskúr eða geymslu. Auk þess útskrifist mun fleiri einhleypir í dag, sem kalli á enn minni íbúðir. Lítið og vel nýtt húsnæði er nýja búsetuformið. Greint var frá helstu niðurstöðum úr árlegri greiningu Samtaka iðnaðarins á íbúðamarkaði á fundi í gærmorgun, fimmtudag. Íbúðum í byggingu fjölgar og framleitt magn verður í takti við þörf næstu ára. Enn er þó áskorun að mæta uppsafnaðri þörf á markaðnum.  Greining SI sýnir að framboð á nýju húsnæði á næstu þremur árum verði í takti við áætlaða þörf fyrir nýjar íbúðir á þessu árabili  Uppsafnaðri þörf síðustu ára hefur þó ekki verið mætt. Skorturinn setur þrýsting á verð.  Mikil nauðsyn á samhæfðum aðgerðum til að stytta framleiðslutíma  Frá 2005 hefur ungu fólki (25-43 ára) sem býr hjá foreldrum sínum fjölgað um 60%. Hugmyndir Stúdentaráðs að lausnum:  Fella niður stimpilgjöld af fyrstu íbúð.  Skoða að bjóða ungu fólki skattlaust ár til að auðvelda fyrstu kaup.  Einfalda byggingaregluverkið þannig að hægt sé að bjóða ódýrt, lítið og vel nýtt húsnæði.  Slaka á kröfum um greiðslumat. Búseta stúdenta í dag (Meðalaldur 27,6 ár) Foreldrahús 24% Stúdentagarðar 15% Leiguhúsnæði 26% Eigið húsnæði 29% Annað 5% Aron Ólafsson, formaður Stúdentaráðs HÍ, lýsti framtíðarsýn stúdenta á húsnæðis- mál á fundi Samtaka Iðnaðarins í gær, fimmtudag. Ég er samt ekki að tala um að nú eigi bara að gera gáma fyrir ungt fólk. 2 fréttir Helgin 13.-15. nóvember 2015

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.