Fréttatíminn


Fréttatíminn - 13.11.2015, Síða 4

Fréttatíminn - 13.11.2015, Síða 4
K O N TO R R E Y K JA V ÍK - A LV / 1 5 0 12 Hér er engan veginn um ein- hverja 15% lækkun á verði á öllum vörum að ræða í kjölfar afnáms tolla. Það er beinlínis verið að blekkja neyt- endur með þessu tali um 15% verðlækkun. veður Föstudagur laugardagur sunnudagur N 13-20 m/s A-til ANNArs hægAri. skýjAð og sNjókomA N-til eN slyddA á Ausfjörðum. höfuðborgArsvæðið: Norðaustlæg átt og bjartviðri. KólNar. NA 5-13 m/s. Él N- og A-lANds eN bjArtviðri s- og v-lANds. áfrAm svAlt. höfuðborgArsvæðið: Na-læg átt, léttsKýjað og frost . vAxANdi A-læg átt og úrkomu víðA um lANd. hlýNAr. höfuðborgArsvæðið: Na-gola eN hvessir síðdegis. bjartviðri. vetur í kortunum Nú er útlit fyrir breytingar framundan, en þrálatar suðlægar áttir gefa eftir og við tekur norðanátt með tiltölulega köldu lofti. undanfarið hefur kólnað en nú hvessir austantil á landinu og má búast við stormi og talsverðri ofankomu um tíma þar í dag. á sunnan- og vestanverðu land- inu styttir upp í norðanáttinni. á morgun dregur smám saman úr vindi en áfram verður einhver éljagangur norðanlands og austan. á sunnudag hvessir aftur úr austri og vissara að fylgjast með veðurspam ef ætlunin er að ferðast a milli landshluta. 0 -1 -3 2 3 -2 -2 -1 1 4 0 0 -4 -2 3 elín björk jónasdóttir vedurvaktin@vedurvaktin.is Gagnrýndu ríkisstjórnina björk guðmundsdóttir tónlistarkona og andri snær Magnason rithöfundur héldu blaðamannafund í gamla bíói á airwaves-hátíðinni þar sem þau mótmæltu áformum um sæstreng frá íslandi til bretlands. á fundinum bað björk heimsbyggðina um stuðning gegn stóriðjustefnu ríkisstjórnar íslands. 16%færri umsóknir um námslán vegna náms á íslandi hafa borist líN í ár en á sama tíma í fyrra. Munar þar 1.000 nemendum. 16,7milljarða hagnaður varð á rekstri ís- landsbanka fyrstu níu mánuði ársins, samanborið við 18,2 milljarða á sama tímabili í fyrra. 3.120íslenskir ríkis-borgarar fluttu frá landinu á fyrstu níu mánuðum ársins, um 1.130 fleiri en fluttu til lands ins á tíma bil inu. Mikil ólga vegna kynferðisbrota tveir menn hafa verið kærðir fyrir kyn- ferðisbrot gegn tveimur konum í síðasta mánuði. í kjölfar umfjöllunar frétta- blaðsins um málin voru mennirnir nafn- greindir á samfélagsmiðlum og myndir birtar af þeim. Mörg hundruð manns mótmæltu fyrir framan lögreglustöðina við Hverfisgötu á mánudag, meðal annars því að mennirnir hafi ekki verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald. vilhjálmur h. vilhjálmsson, verjandi annars mannsins, hefur kært konurnar fyrir rangar sakargiftir og krefur fréttablaðið um leiðréttingu á fréttaflutningi sínum. verjandi kvennanna hyggst kæra vil- hjálm fyrir að ljóstra upp viðkvæmum upplýsingum um málið. 68% af rekstrarkostnaði strætó í fyrra var greiddur af hinu opinbera, sveitar-félögum á höfuðborgarsvæðinu og úr ríkissjóði. Þ etta er mjög villandi frétta-flutningur,“ segir Ingibjörg Sverrisdóttir, rekstarstjóri Zöru á Íslandi. „Þessi 15% tollur leggst eingöngu á vörur sem framleiddar eru utan Evrópska efnahagssvæðisins, vörur sem framleiddar eru innan þess bera ekki tolla. Í búð eins og Zöru, sem er spænskt fyrirtæki, er minni- hluti varanna framleiddur utan EES þannig að hér til dæmis er engan veginn um einhverja 15% lækkun á verði á öllum vörum að ræða í kjölfar afnáms tolla. Það er beinlínis verið að blekkja neytendur með þessu tali um 15% verðlækkun.“ Frosti Ólafsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, segir vissulega rétt að vörur framleiddar innan Evrópu beri ekki tolla hérlendis, en mikið af þeim vörum sem fluttar séu hingað frá Evrópu sé framleitt utan hennar og tollað samkvæmt því. „Það er vissulega þannig að þessir tollar koma mjög mismunandi út eftir því hvert upprunaland vörunnar er og hvaða leið fatnaðurinn fer til Íslands. Og það er auðvitað vert að hafa í huga í þessu sambandi að tollaafnámið þýðir ekki flata verðlækkun upp á 15% á öllum fatnaði og skóm en hins vegar þýðir þetta verðlækkun á ákveðnum vörum og þar með hagsbót fyrir neytendur.“ Í frétt frá Viðskiptaráði kemur fram að ýmsar verslanir hafi tekið þá ákvörðun að lækka vöruverð sem toll- unum nemur nú þegar, þótt þeir verði ekki afnumdir fyrr en um áramót, til að tryggja jafna veltu. Þekkt er að fyrir boðaðar verðlækkanir haldi kaupendur að sér höndum og bíði eftir að þær verði að veruleika þannig að samdráttur verði í sölu. Frosti telur það mjög af hinu góða fyrir neytendur að verslanir bregðist við með þessu móti og segir fulla ástæðu til að ganga hratt til verks og flýta boðuðu tollaaf- námi sem á að koma til framkvæmda um áramótin 2016/2017 og koma þannig til móts við bæði verslanirnar og neytendur. „Þar má til dæmis nefna barna-, bygginga-, heimilis-, íþrótta- og snyrtivörur ásamt heimilistækjum og myndavélum og við teljum fulla ástæðu til að hvetja stjórnvöld til að flýta framkvæmd þess afnáms svo ekki komi til þess samdráttar í sölu sem jafnan verður eftir að slíkt hefur verið boðað.“ friðrika benónýsdóttir fridrika@frettatiminn.is  neytendamál aFnám tolla veldur misskilningi fram hefur komið í fréttum að tollur sem afnuminn verður um áramót af fatnaði og skóm sé 15% en sú er alls ekki raunin í öllum tilfellum. Kaupmenn ósáttir við villandi fréttaflutning Afnema á tolla af nokkrum vöruflokkum um áramótin, þar á meðal fatnaði og skóm og komið hefur fram í fréttum að þeir séu 15% af vöruverði. sú er þó alls ekki raunin í öllum tilfellum og verslunarmenn telja mjög villandi að setja dæmið þannig upp, það veki vonir viðskiptavina um 15% lækkun á öllum vörum. 4 fréttir helgin 13.-15. nóvember 2015
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.