Fréttatíminn - 13.11.2015, Qupperneq 6
TAXFREE
SÓFAR
Allir sófar á taxfree tilboði*
CLEVELAND
Tungusófi. Hægri eða vinstri tunga.
Dökk- eða ljósgrátt slitsterkt áklæði.
Stærð: 231 × 140 × 81 cm 96.766 kr. 119.990 kr.
ELLY
Þriggja sæta sófi. Litir: Ljós- og dökkgrár, gráblár,
sand bleikur og dustygrænn. Stærð: 183 x 82 x 85 cm 80.637 kr. 99.990 kr.
COSTA
Tungusófi. Vinstri tunga. Hvítt eða svart bongo áklæði.
Stærð: B:340 D:240/163 cm
322.573 kr. 399.990 kr.
Þú finnur nýja
sófaTAXFREE
blaðið á
husgagnahollin.is
* Taxfree tilboðið gildir bara á sófum
og jafngildir 19,35% afslætti.
Að sjálfsögðu fær ríkissjóður viðisauka-
skatt af söluverði. Afslátturinn er alfarið
á kostnað Húsgagnahallarinnar. Gildir
ekki á Kamma afmælissófanum.
www.husgagnahollin.is
558 1100
TAXFREE
SÓFAR
Allir sófar á taxfree tilboði*
Reykjavík, Akureyri og Ísafirði www.husgagnahollin.is
Húsgagnahöllin 50 ára
* Taxfree tilboðið gildir bara á sófum og jafngildir 19,35% afslætti.
Að sjálfsögðu fær ríkissjóður viðisaukaskatt af söluverði. Afslátturinn er alfarið á kostnað Húsgagnahallar-innar. Gildir ekki á Kamma afmælissófanum.
CLEVELAND
Tungusófi. Hægri eða vinstri tunga. Dökk- eða ljósgrátt slitsterkt áklæði.Stærð: 231 × 140 × 81 cm 96.766 kr. 119.990 kr.
Í myndinni
fer fót-
brotinn
drengur í
gegnum
heil-
brigðis-
kerfið eins
og um
barn með
geðröskun
væri að
ræða.
Arngrímur Jóhannsson flugstjóri, var á meðal gesta í útgáfuhófi Óttars
Sveinssonar í gær. Arngrímur er á batavegi eftir að hafa lent í flugslysi í
sumar. Ljósmynd/Hari
Bækur Útkalli í hamfarasjó eftir óttar sveinsson komin Út
Arngrímur í útgáfuhófi með
gömlum togarajöxlum
Á þriðja hundrað íslenskir sjómenn horfðust í augu
við dauðann á Nýfundnalandsmiðum í febrúar 1959 í
hrikalegu sjóveðri og ísingu. Togarinn Þorkell máni frá
Reykjavík lá eins og ísborg á hliðinni og skipverjar töldu
víst að síðasta stundin væri runnin upp enda öldurnar á
við átta hæða hús. Vírar og kaðlar voru eins og tunnu-
botnar vegna ísingarinnar. Áhöfn togarans brá á það
örþrifaráð að losa sig við björgunarbátana og logskera
davíðurnar burt til að létta skipið.
Þetta er efniviður nýjustu bókar Óttars Sveinssonar,
Útkall í hamfarasjó. Í útgáfuhófi síðdegis í gær, fimmtu-
dag, voru meðal annarra Þórður Guðlaugsson, sem var
yfirvélstjóri á Þorkeli mána, Valdimar Tryggvason, loft-
skeytamaðurinn á sama skipi og stýrimaðurinn af Marz,
Albert Stefánsson, sem kom Þorkeli mána til bjargar
á örlagastundu. Einnig mættu aðstandendur, börn sjó-
mannanna af Júlí frá Hafnarfirði, sem fórst með 30
manns í þessu veðri, og að síðustu Arngrímur Jóhanns-
son, síðar þekktur sem flugstjóri, þá loftskeytamaður
á Harðbaki frá Akureyri, en hann lenti í sömu hremm-
ingum því einnig var barist upp á líf og dauða um borð í
Harðbaki, Júní, Marz, Norðlendingi, Bjarna riddara og
fleiri togurum. Í sama örlagaveðri barst tilkynning frá
danska skipinu Hans Hedtoft; „SOS, við sökkvum“.
v iðbrögðin voru miklu sterkari en við áttum von á. Við auglýstum símanúmer sem við buðum fólki
að hringja í til að sýna málefninu stuðning.
Yfir 2.000 símtöl bárust og við bentum
ráðherra á að allt þetta fólk hefði verið að
reyna að ná í hann út af úrræðaleysi í geð-
heilbrigðismálum barna og unglinga,“ segir
Sara Líf Sigsteinsdóttir, varaformaður ung-
mennaráðs UNICEF á Íslandi, en aðgerðin
er liður í Heilabroti, átaki ungmennaráðs
UNICEF sem fór fram á dögunum.
Mörg börn á biðlistum
„Við bentum ráðherranum á að það væri
mikilvægt og verðmætt að hafa börn með í
ráðum, til dæmis þegar samin væri ný geð-
heilbrigðisstefna eins og nú væri verið að
gera. Þau hefðu aðra sýn en þeir sem eru
fullorðnir,“ segir Sara Mansour, formaður
ungmennaráðs UNICEF á Íslandi. Um leið
og ungmennin afhentu ráðherra símann í
gær áttu þau fund með honum þar sem þau
kynntu Heilabrot og hvers vegna þau fóru
af stað með átakið. Fram kom að biðlistar
væru alltof langir og börn þyrftu að bíða
lengi eftir nauðsynlegri aðstoð. Ráðherra
tók ungmennaráðinu vel, sagði framtak
þess frábært og að hann væri mikill stuðn-
ingsmaður þess að umræða um geðheil-
brigðismál yrði opnari.
Stuttmynd sem vakti athygli
Stuttmyndin Heilabrot sem markaði upp-
haf átaksins vakti gríðarlega athygli en hún
var öll unnin af ungmennaráði UNICEF á
Íslandi, í samstarfi við unga kvikmynda-
gerðarmenn í Esja Production. Í myndinni
fer fótbrotinn drengur í gegnum heilbrigð-
iskerfið eins og um barn með geðröskun
væri að ræða. Hann kemur inn á bráða-
móttöku og þarf á læknishjálp að halda en
er sagt að koma aftur eftir nokkra mánuði.
Stuttmyndin var í október sýnd í framhalds-
skólum um land allt og vakti mikla athygli.
Einum Facebook-pósti með stiklu úr mynd-
inni var meðal annars deilt yfir 800 sinnum
og stiklan þar spiluð 56.000 sinnum.
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
heilBrigðismál 22% íslenskra Barna glíma við geðsjÚkdóm
Minna ráðherra á neyð
barna með geðsjúkdóma
Ungmennaráð UNICEF á Íslandi afhenti í gær, fimmtudag, Kristjáni Þór Júlíussyni heilbrigðis-
ráðherra risavaxinn síma með 2.192 ósvöruðum símtölum til að minna hann á að kalli margra
barna um hjálp vegna geðræns vanda væri ósvarað.
Ungmennaráð UNICEF á Íslandi afhenti ráðherra síma með 2.200 ósvöruðum símtölum í gær, fimmtudag. Með því vilja
ungmennin vekja athygli á því að börn í vanda eigi alls ekki heima á biðlistum.
Í myndinni Heilabrot
kemur fram að:
18.000 íslensk börn glíma við
geðrænan vanda, það eru 22%
allra barna á Íslandi.
Aðeins 20% þeirra fá hjálp við
hæfi
400 börn sem fengið hafa til-
vísun bíða nú eftir þjónustu og
meðferð hjá Þroska- og hegð-
unarstöðinni.
6 fréttir Helgin 13.-15. nóvember 2015