Fréttatíminn - 13.11.2015, Side 8
Andri Þór Guðmundsson.
M esta skákveisla ársins í heiminum hefst í Reykjavík í dag, föstudag, og stærsti skák-viðburður á Íslandi síðan 1972 er Fischer og
Spassky mættust í heimsmeistaraeinvíginu fræga. Evr-
ópumót landsliða í skák fer fram í Laugardalshöllinni
og stendur til 22. nóvember. Heimsmeistarinn í skák,
Norðmaðurinn Magnus Carlsen, fer fyrir landsliði
Norðmanna. Magnað er einnig, að sögn Hrafns Jökuls-
sonar upplýsingafulltrúa, að Friðrik Ólafsson, fyrsti
stórmeistari Íslendinga, skuli tefla á mótinu í íslensku
gullaldarliði. Gunnar Björnsson, forseti Skáksambands
Íslands, hefur unnið þrotlaust að þessum stórviðburði í
mörg ár, segir Hrafn.
Auk Carlsen heimsmeistara og Mariya Muzychuk,
heimsmeistara kvenna, keppa margar stórstjörnur
skáklistarinnar á mótinu og má þar nefna Anish Giri,
Levon Aronian, Alexander Grischuk, Vassily Ivanchuk,
Peter Svidler, Alexei Shirov, Nigel Short, Ivan Sokolov
og Luke McShane.
Íslendingar mega tefla fram tveimur liðum í opnum
flokki og er Friðrik Ólafsson, fyrsti stórmeistari Ís-
lands, í „gullaldarliðinu“ ásamt Helga Ólafssyni,
Jóhanni Hjartarsyni, Jóni L. Árnasyni og Margeiri Pét-
urssyni. Hin íslenska sveitin er skipuð Hannesi Hlífari
Stefánssyni, Héðni Steingrímssyni, Hjörvari Steini
Grétarssyni, Henrik Danielsen og
Guðmundi Kjartanssyni.
Alls senda 35 lönd lið til
keppni í opnum flokki og 30
í kvennaflokki, og er helm-
ingur af tuttugu stigahæstu
skákmönnum heims skráður
til leiks. Af 178 keppendum
í opnum flokki eru 133
stórmeistarar, og í kvennaflokki eru 13 stórmeistarar
meðal 146 keppenda.
Á Evrópumótinu eru tefldar 9 umferðir og er hvert
lið skipað fjórum liðsmönnum, auk varamanns. Rússar
mæta með sterkustu sveitina á pappírnum, en meðal-
stig liðsmanna eru 2743. Næstir koma grannar þeirra
í Úkraínu (2725) og Aserbaídsjan (2707). Íslenska
sveitin er í 24. sæti af 36 á stigalistanum með 2557
meðalstig og gullaldarliðið hefur 2525.
Evrópumót landsliða var fyrst haldið í Vínarborg
árið 1957 og fer nú fram í 20. skipti. Sovétmenn urðu
Evrópumeistarar 9 skipti í röð og Rússar hafa unnið
titilinn þrisvar. Rússnesku stórstjörnunum hefur þó
mistekist að sigra á EM á síðustu þremur mótum, að
sögn Hrafns, en Aserar eru ríkjandi Evrópumeistarar,
sigruðu í Varsjá 2013.
Í kvennaflokki eru sveitir Georgíu, Rússlands og
Úkraínu langstigahæstar. Úkraína sigraði á Evrópu-
mótinu fyrir 2 árum, en áður höfðu rússnesku stúlk-
urnar sigrað þrjú ár í röð. Heimsmeistari kvenna, Mar-
iya Muzychuk, teflir með úkraínska liðinu, og munu,
að sögn Hrafns, langflestar af sterkustu skákmönnum
heims leika listir sínar í Laugardalshöllinni.
Íslenska kvennaliðið er númer 29 af 30 í styrk-
leikaröð EM kvenna. Lenka Ptacnikova fer fyrir ís-
lensku sveitinni sem jafnframt er skipuð
Guðlaugu Þorsteinsdóttur, Elsu
Maríu Kristínardóttur, Hrund
Hauksdóttur og Veroniku
Steinunni Magnúsdóttur.
Jónas Haraldsson
jonas@fréttatiminn.is
Viðskipti 59% Meiri rekstrarhagnaður
Besta afkoma Ölgerðarinnar frá upphafi
Rekstrarhagnaður Ölgerðarinnar
Egils Skallagrímssonar fyrir fjár-
magnskostnað var 59% meiri árið
2014 en árið áður, samkvæmt
nýbirtum ársreikningi. EBITDA
(afkoma áður en tekið er tillit til
vaxtagreiðslna, vaxtatekna, skatt-
greiðslna og afskrifta) var 1.642
milljónir króna en var 1.204 millj-
ónir árið 2013. Velta á rekstrar-
árinu, sem lauk 28.2. 2015, var 19,6
milljarðar króna og jókst um 6,5%
milli ára, að því er fram kemur í til-
kynningu. „Þetta er besta afkoma
Ölgerðarinnar frá upphafi og við
erum afskaplega stolt af þessum
frábæra árangri,“ segir Andri Þór
Guðmundsson, forstjóri Ölgerðar-
innar.
Launagreiðslur til starfsmanna
námu 2,5 milljörðum króna en alls
störfuðu 334 starfsmenn hjá fyrir-
tækinu og fjölgaði störfum um 14.
Hagnaður fyrirtækisins fyrir tekju-
skatt reyndist 600 milljónir króna.
Tekjuskattur var tæpar 400 millj-
ónir króna en hann var að mestu
tilkominn vegna ákvörðunar ríkis-
skattstjóra um öfuga samruna.
Heildareignir Ölgerðarinnar voru
13 milljarðar króna og vaxtaber-
andi langtímaskuldir 7,4 milljarðar.
eVrópuMót skáksVeitir frá 35 lönduM keppa hér
Stærsti skákviðburður
á Íslandi síðan 1972
Magnús Carlsen heimsmeistari leiðir lið Norðmanna og heimsmeistari kvenna er í sveit Úkraínu.
Friðrik Ólafsson er í gullaldarliði Íslendinga sem senda tvær sveitir.
Magnús Carlsen heims-
meistari leiðir lið Norð-
manna.
Friðrik Ólafsson er í „gullaldarliði“ Íslendinga ásamt Helga Ólafssyni, Jóhanni Hjartarsyni, Jóni L. Árnasyni og Margeiri Péturs-
syni. Hér stendur Friðrik hjá Hannesi Hlífari Stefánssyni sem teflir í hinni íslensku sveitinni.
Mariya Muzychuk, heims-
meistari kvenna, teflir
með úkraínska liðinu.
Ert þú að flytja?
Leigir bílinn og ekur sjálf/ur
www.cargobilar.is
8 fréttir Helgin 13.-15. nóvember 2015