Fréttatíminn - 13.11.2015, Qupperneq 18
Þ
Þrátt fyrir nær tvöfalt meiri launahækkanir
hérlendis en á hinum Norðurlöndunum undan-
farin 15 ár hefur kaupmáttur aukist helmingi
minna hér en þar. Uppsafnað munar ríflega
14% í hreinum kaupmætti á þessum árum. Á
þetta er bent í samkomulagi sem heildarsam-
tök launafólks og atvinnurekenda á almennum
og opinberum vinnumarkaði gerðu í október-
lok og var ekki vanþörf á, miðað við þróun
kjarasamninga hér á landi. Þar kom enn
fremur fram að verðbólga á Ís-
landi hefur verið þrefalt meiri
en á hinum Norðurlöndunum
síðustu fimmtán árin. Frá
aldamótum hefur gengi krón-
unnar fallið um 50% en gengi
mynta hinna Norðurlandanna
haldist nær óbreytt gagnvart
evru. Vegna mikillar verðbólgu
og efnahagslegs óstöðugleika
á Íslandi hafa vextir að jafnaði
verið þrefalt hærri en á hinum
Norðurlöndunum.
Þessa óheillaþróun þarf að stöðva. Fyrr-
greint samkomulag aðila vinnumarkaðarins
er nauðsynleg aðgerð í þá veru. Innistæðulaus
krónutöluhækkun launa er ekki aðeins gagn-
laus heldur beinlínis skaðleg vegna verðból-
guáhrifa sem snerta alla. Það er aukning kaup-
máttar sem skiptir máli.
Samkomulagið, sem gert var undir forystu
ríkissáttasemjara, nær til nær til 70% launafólks
sem á aðild að stéttarfélögum en að því standa
Alþýðusamband Íslands, Samtök atvinnulífs-
ins, Bandalag starfsmanna ríkis og bæja, Sam-
band íslenskra sveitarfélaga, Reykjavíkurborg
og samninganefnd ríkisins fyrir hönd fjármála-
ráðuneytisins. Það felur í sér mörkun sameig-
inlegrar launastefnu til ársins 2018 til að stöðva
svokallað höfrungahlaup á vinnumarkaði. Nýtt
samningalíkan gerir ráð fyrir því að svigrúm
til launahækkana verði skilgreint út frá sam-
keppnisstöðu gagnvart helstu viðskiptalönd-
um, fyrirtæki sem framleiða vöru og þjónustu
til útflutnings eða í samkeppni við innflutning
móti svigrúm til launabreytinga. Þá er gert
ráð fyrir jöfnun lífeyrisréttinda á almennum
og opinberum markaði en jafnframt að opin-
berum starfsmönnum verði tryggð hlutdeild í
launaskriði á almennum markaði. Með þessum
hætti er stefnt að því að kjarasamningar miði
að því að auka kaupmátt á grundvelli stöðugs
gengis. Með auknu samstarfi verði minni átök
á vinnumarkaði sem hafi í för með sér aukinn
efnahagslegan og félagslegan stöðugleika.
Áhersla er lögð á sameiginlega ábyrgð
enda er hlutverk vinnumarkaðar stórt, ásamt
efnahagsstefnu stjórnvalda og peningastefnu
Seðlabankans þegar kemur að stöðugleika.
Þess vegna er þessi formlegi vettvangur mik-
ilvægur þar sem forystufólk vinnumarkaðar,
ríkisstjórnar og Seðlabankans geta stillt saman
strengi. Fyrir löngu var tímabært að koma á
þeim samráðsvettvangi. Vinnudeilur og þrálát
verkföll undanfarinna missera – og lagasetning
á verkföll – hafa enn og aftur sýnt okkur hve
knýjandi þörfin er á breyttum vinnubrögðum.
Viðsemjendur beggja vegna borðs hafa gert
sér grein fyrir þessu en erfitt hefur reynst að
koma í veg fyrir höfrungahlaupið svokallaða,
sem litlu skilar þegar til lengri tíma er litið,
nema verðbólgu sem étur upp þá kjarabót sem
um var samið.
Enn eru þeir þó til sem virðast vilja halda sig
við gamla og úrelta fyrirkomulagið. Í kjölfar
fyrrgreinds samkomulags hinna stóru aðila
vinnumarkaðarins lagði Verkalýðsfélag Akra-
ness fram stefnu í Félagsdómi gegn hópnum
sem að því stendur. Haft var eftir Vilhjálmi
Birgissyni, formanni félagins, að það væri mat
þess að samkomulagið skerti samningsrétt og
frelsi stéttarfélaganna. Það sé andstætt lögum
um stéttarfélög og vinnudeilur þegar fyrirfram
sé búið að ákveða hvað megi semja um.
Sjálfsagt er að láta reyna á slíkt fyrir félags-
dómi en ekki verður annað séð en það sé í þágu
félagsmanna Verkalýðsfélags Akraness, eins
og annarra, að fremur sé stefnt að auknum
kaupmætti en viðbótarkrónum sem brenna
upp á verðbólgubáli.
Aðilar beggja vegna borðs eru með hagdeild-
ir sem vita um hvað er að semja, hvert svig-
rúmið er til launabreytinga. Kjarasamningar
sem leiða til verðbólgu og rýrnunar krónu eru
engum í hag. Samningarnir eiga, eins og nýtt
líkan gerir ráð fyrir og fram kemur hér að ofan,
að miða að auknum kaupmætti á grundvelli
stöðugs gengis.
Skikki komið á við gerð kjarasamninga
Höfrungahlaupið hamið
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
LóABORATORíUM LóA hjáLMTýsdóTTiR
Skeifunni 17, 108 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjóri: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is Fréttastjóri: Hösk-
uldur Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is. Auglýsingastjóri og stjórnarformaður: Valdimar Birgisson valdimar@frettatiminn.is. Framkvæmdastjóri: Teitur Jónasson
teitur@frettatiminn.is. Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti.
J
Ó
N
S
S
O
N
&
L
E
’M
A
C
K
S
•
jl
.i
s
•
S
ÍA
Í fullkomnu
flæði
Sous Vide er matreiðsluaðferð sem felst í því að
sjóða í lofttæmi við lágan og jafnan hita. Með því
að elda við fullkomið hitastig – ekki of lengi og ekki
of stutt – er hægt að hámarka bragðgæði matarins.
Með Sous Vide-amboðinu frá Sansaire geta áhuga-
menn jafnt sem atvinnumenn náð fullkomnu valdi á
hitastiginu og „súvídað“ í hvaða íláti sem er. Maður
þarf ekki einu sinni að eiga pott.
laugavegi 47 www.kokka.is kokka@kokka.is
18 viðhorf Helgin 13.-15. nóvember 2015