Fréttatíminn - 13.11.2015, Side 40
Umsóknarfrestir 2016
Rannís auglýsir umsóknarfresti í menntahluta Erasmus+
Nám og þjálfun – umsóknarfrestur 2. febrúar 2016
Nám og þjálfun veitir starfsfólki menntastofnana og fyrirtækja á öllum skólastigum,
sem og nemendum í starfsmenntun og á háskólastigi, tækifæri til að sinna námi,
starfsþjálfun og kennslu í 33 Evrópulöndum.
Fjölþjóðleg samstarfsverkefni – umsóknarfrestur 31. mars 2016
Samstarfsverkefni eru 2-3 ára þematísk verkefni sem eiga að stuðla að nýsköpun í
menntun á öllum skólastigum og yfirfærslu þekkingar og reynslu á milli Evrópulanda
(minnst 3 samstarfslönd).
Sjá nánar á www.erasmusplus.is
Þorvaldur Davíð Kristjánsson og Ágústa Eva Erlendsdóttir á tökustað Ég man þig
á Hesteyri í vikunni.
T
ökur á kvikmyndinni Ég man
þig, sem er gerð eftir sam-
nefndri bók glæpasagnahöf-
undarins Yrsu Sigurðardóttur,
hófust á mánudaginn á hinum
afskekkta stað Hesteyri í Jökulfjörðum.
Blaðamaður á bókað flug til Ísafjarðar með
Yrsu, eiginmanni hennar Ólafi Þórhallssyni
og Skúla Malmquist, framleiðanda hjá Zik
Zak. Þetta verður í fyrsta sinn sem Yrsa er
viðstödd tökur á kvikmynd, hvað þá tökur á
mynd sem er gerð eftir hennar eigin bók.
Blanda af glæpasögu og spennusögu
Ég man þig kom út árið 2010 og er ein albesta
og vinsælasta bók Yrsu. Hér á Íslandi hefur
hún selst í tæplega 30 þúsund eintökum og
úti í heimi hefur hún komið út á yfir 20 tungu-
málum. Gagnrýnandi breska dagblaðsins
The Independent lýsti verkinu þannig: „Bók-
in vekur manni hroll alveg inn að beini og hér
sýnir Yrsa að hún er ekki aðeins drottning ís-
lensku glæpasögunnar heldur er hún jafn góð
og Stephen King í því að skapa óhugnað og
ótta hjá lesandanum.“ Svo mörg voru þau orð.
Að sögn Yrsu er Ég man þig annars vegar
glæpasaga og hins vegar spennusaga, eða
draugasaga. Uppbygging þessara sagna
er ólík, þar sem glæpasagan byrjar oftast á
„einhverju hrikalegu“ og svo dregur úr lát-
unum, á meðan spennusagan byrjar rólega
en magnast smám saman upp í hæstu hæðir.
Þegar Yrsa skrifaði bókina reyndi hún að
halda spennustiginu háu allan tímann og er
ekki ofsögum sagt að það hafi tekist hreint
prýðilega. Bókin fjallar um þau Garðar, Líf
og Katrínu sem gera upp hús á Hesteyri um
miðjan vetur. Með tímanum vakna upp grun-
semdir um að þau séu ekki einu gestirnir í
þessu eyðiþorpi. Ungur læknir frá Ísafirði
dregst á sama tíma inn í rannsókn á sjálfs-
morði eldri konu.
Ekki hrædd við neitt
Flugið til Ísafjarðar gengur vel framan af en
þegar nálgast flugvöllinn þarf að gera tvær
tilraunir til aðflugs vegna mikils vinds. Vélin
hossast upp og niður og blaðamanni er hætt
að standa á sama. Rígheldur sér í annan sæt-
isarminn og bölvar sjálfum sér fyrir að hafa
tekið að sér þetta heldur óvenjulega verkefni,
að ganga með Yrsu um Hesteyri og fylgjast
með tökunum. Á sama tíma situr Ólafur,
maðurinn hennar, fyrir framan mig og les
blaðið í rólegheitunum og réttir Yrsu það svo
í mestu látunum þegar hann er búinn að lesa.
Hún setur yfirveguð á sér gleraugun, hefur
lestur og kippir sér ekkert upp við hristing-
inn. Síðar segir hún mér að hún sé öllu vön
eftir að hafa flogið margoft austur á land þar
sem hún starfaði við gerð Kárahnjúkavirkj-
unar, en rithöfundurinn frægi starfar sem
verkfræðingur í hálfu starfi.
„Ég er ekki hrædd við neitt,“ segir Yrsa
þegar við sitjum saman á kaffihúsinu Bræðra-
borg á Ísafirði eftir flugið, spurð hvort hún
sé hrædd við drauga. „En mér finnst þetta
ofboðslega skemmtilegt konsept, þróun
draugasagna. Þetta voru eiginlega smásögur
hér áður fyrr. Draugurinn var þarna og drap
þig eða hræddi þig en bar ekki neina sögu.
Draugar eru þannig konsept alveg til í kring-
um 1960. Eftir það fer draugurinn að hafa
erindi. Er kannski að reyna að fá úrlausn á
gömlu óréttlæti. Þá fyrst er þetta orðið kons-
ept sem er hægt að gera heilu bíómyndirnar
með og heilu bækurnar,“ útskýrir Yrsa.
Labbaði upp í kirkjugarð
Hún segir að sögusviðið Hesteyri hafi á
sínum tíma valið sig sjálft. „Við fórum þangað
með vinafólki okkar til að labba. Ég var búin
að eiga mér þann draum að skrifa hryllings-
sögu. Þá var þetta bara svo augljóst, þetta
var þannig staður. Þannig að ég varð eftir og
þau löbbuðu um allt á meðan ég labbaði upp í
kirkjugarð.”
Yrsa segir hræðsluna við hið óþekkta
vera miklu öflugri en hræðsla við, til dæmis
krabbamein. „Þú getur gert hluti til að draga
úr áhættunni á því en með hið óþekkta þá
er alveg sama hvað þú gerir, það hefur sinn
gang. Það er skemmtilegt að setja persónur
í aðstæður þar sem þær geta ekkert gert og
verða að sætta sig við það.”
Vildi ekki að bókin kæmi út
Þegar hún skrifaði Ég man þig átti hún ekki
von á því að sá dagur rynni upp að bókin yrði
kvikmynduð. „Ég var svo óánægð með hana
og vildi ekki að hún kæmi einu sinni út, hvað
þá að það yrði gerð bíómynd eftir henni. En
þegar hún var keypt [kvikmyndarétturinn]
þá gerði maður sér grein fyrir því að það
gæti orðið af því. En það er ekkert öruggt í
þessum bransa. Þetta er langt ferli þar sem
ýmislegt getur gerst á leiðinni. Maður er
löngu búinn að læra það að maður kaupir
ekki frumsýningarkjólinn strax og maður
er kominn með „option“ [búinn að selja
kvikmyndaréttinn],“ segir hún en nokkrum
sinnum hefur slíkur réttur verið keyptur af
bókum hennar án þess að kvikmynd hafi
orðið að veruleika.
Yrsa bætir við: „Ég held að það séu fáir sem
eru að skrifa bækur sem vonast til að það
verði bíómynd úr henni. Hún er svo lítill hluti
af þessu og það þarf svo margt að gerast til að
hún verði að veruleika. En þegar ég skrifa sé
ég allt sem ég er að skrifa fyrir mér í höfðinu.
Þetta er mjög myndrænt þar, þannig að ég er
svo sem búin að sjá þessa mynd, eins og ég
skrifaði hana,” segir hún og brosir.
Afmæliskaka og eyrnatappar
Jæja, næst á dagskrá er að koma sér á Hest-
eyri, þar sem um 30 manna tökulið er statt
án sambands við umheiminn, því hvorki net
né símasamband er á staðnum. Við tökum
nokkra vatnsflöskukassa með okkur og
stóra súkkulaðiköku merkta Helgu Rakel
Rafnsdóttur, skriftu, í tilefni 40 ára afmælis
hennar. Eyrnartappar eru einnig með í poka
en tökuliðið sefur nánast í einum hnappi
í tveimur húsum á eyrinni, læknishúsinu
svokallaða og skólahúsinu, og grunar Skúla
framleiðanda af fenginni reynslu sinni úr
bransanum að margir eigi erfitt með svefn
vegna hrotanna í næsta manni. Vegna þess
að ekkert rafmagn er á staðnum snæddi töku-
liðið kvöldmatinn við kertaljós kvöldið áður,
auk þess sem hver og einn geymir lítil höfuð-
ljós við koddann, ef ske kynni að hann þyrfti
að fara á klósettið í myrkrinu.
Á sjóveikitöflum í rússíbanareið
Við skellum okkur um borð í bátinn Bjarnar-
nes sem ætlar að ferja okkur yfir. Ferðalagið
tekur um þrjú korter og minnir helst á rússí-
Ættu ekki að verða
fyrir vonbrigðum
Þorvaldur Davíð Kristjánsson
og Ágústa Eva Erlendsdóttir
leika Garðar og Líf í Ég man
þig. Í stuttu spjalli í lækn-
isbústaðnum segja þau að allt
hafi gengið mjög vel til þessa.
„Æfingaferlið með Óskari var
skemmtilegt. Það var líka gott
að byrja á því að koma á Hest-
eyri til þess að fá fílinginn,”
segir Þorvaldur Davíð, sem
lék einnig undir stjórn Óskars
Þórs í Svartur á leik.
Ágústa Eva er einnig ánægð
með æfingaferlið og bætir við
að Hesteyri sé mjög fallegur
staður. „Þetta er miklu fallegra
en maður gerði sér grein fyrir
en það er mjög kalt líka.“
Þorvaldur Davíð heldur
áfram: „Hún Yrsa náði að lýsa
þessu umhverfi vel í bókinni.
Það hefur hjálpað til að hafa
bókina til að miða við, þó að
handritið sé ólíkt að mörgu
leyti, eins og gerist oft þegar
bíómyndir eru gerðar eftir
bókum. En við ætlum að reyna
að gera lesendur ánægða.“
Ágústa Eva segir sinn kar-
akter vera svolítið breyttan frá
því sem er í bókinni. „Ég vona
að enginn verði fúll en fólkið
sem er búið að lesa bókina ætti
ekki að verða fyrir vonbrigðum
þó að ýmis atriði séu öðruvísi.“
Þorvaldur Davíð segist hafa
lesið allar bækur Yrsu nema
Auðnina. „Það eru rosalega
margir sem hafa lesið þessa
bók. Ég man þegar ég var á
litlu kaffihúsi á Spáni. Þar voru
nokkrar bækur, til dæmis eftir
Hemingway og fleiri þekkta
höfunda og svo var þessi bók
þarna, Ég man þig, í hillunni,“
segir hann og Ágústa bætir við:
„Ég gat bara lesið þessa bók á
daginn. Ég gat ekki lesið hana
á kvöldin.“
Framhald á næstu opnu
Yrsa gekk beint í flasið á tökufólki þegar hún steig
á land á Hesteyri – og beint inn í töku með leik-
konunni Önnu Gunndísi.
40 viðtal Helgin 13.-15. nóvember 2015