Fréttatíminn - 13.11.2015, Qupperneq 48
Prumpureikningurinn er opinn
A
Amma mín heitin var vön að
segja við mig; engin er það synd
þótt búkur leysi vind. Ég var
ungur drengur þegar hún sagði
þetta við mig og sjálfsagt hefur
hún kennt í brjósti um mig vegna
þess að ég var síprumpandi og
viðurkenndi alltaf glæpinn. Eitt
hvað sem ég fékk bágt fyrir frá
hinum í fjölskyldunni sem létu
mig, litla drenginn, ekki í friði
fyrir vikið. Ég hef tekið þessa
möntru ömmu og gert hana að
hálfopinberum leiðarvísi mínum
um lífið og hvernig ég ætla að
eyða þessum árum mínu hérna á
Terra firma. Sem þýðir sirkabát
að ég prumpa nokkurn veginn
um það leyti sem smáþarm
arnir segja til – nema kannski í
veislu hjá forsetanum. Ég er ekki
viss um að ömmu hefði þótt það
málið. Hún var reyndar meiri
Vigdísarkona en Óla en ég freta í
það minnsta kosti ekki svona al
mennt við matarborðið. Tel enda
að amma myndi ekki samþykkja
slíkt neðrabúkstal við þegar
aðrir eru að reyna að borða. Ég
hef líka ekkert lært frá æskuár
unum og viðurkenni nær undan
tekningalaust glæpinn þegar upp
kemst. Því sjaldnast á sá sem
fyrst finnur fnykinn sökina.
Prump er líka eitt það fyndn
asta sem til er. Bara að hugsa
um að þessi fýluatóm voru
að koma út um rassinn fyrir
nokkrum sekúndum er auðvit
að ógeðslegt en um leið alveg
ógeðslega fyndið. Fátt finnst mér
skemmtilegra en að prumpa í
góðu partíi og ég læt alltaf vaða
um borð í flugvélum. Annað væri
líka bara hættulegt. Bílaprump
eru sérstaklega skemmtilegt
sem og allir staðir þar sem menn
sleppa ekki svo auðveldlega
burtu. Sjónvarpssófinn – dásam
legur staður til að prumpa og
ekki skemmir fyrir að fá um
leið meira pláss í téðum sófa að
launum.
Það er reyndar eitt tímabil í
lífi flestra þar sem reynt er að
þagga svolítið niður í anusnum.
Það eru fyrstu vikur tilhuga
lífsins. Þær eru nær undantekn
ingalaust prumpfrír tími. Þannig
var það auðvitað með mig og
mína ástkæru eiginkonu. Alltaf
kemur þó að skuldadögum og ég
get mér til að fyrsta fýlubomban
sé nær undantekningalaust,
séu bæði kynin á annað borð í
sambandinu, á ábyrgð þess sem
geymir bæði X og Y litningana.
Og allt í einu, algerlega fyrir
varalaust, er prumpupartíið
byrjað. Það er prumpað hræði
legu framhjáskituprumpi eftir
matinn og hljóðlátar bombur
er látnar falla í sjónvarpssóf
anum. Það verður allt vitlaust í
prumphernaði þangað til nokk
urs konar valdajafnvægi kemst á.
Kalt stríð. Það er að segja haldi
sambandið út þessa stríðshrjáðu
daga sem enginn virðist muna
hvar og hvenær byrjuðu. Ja,
nema ég. Því það ótrúlega gerð
ist á eftirtilhugalífsdögum okkar
hjóna að það var ekki síprump
andi drengurinn úr Sælavog
inum sem byrjaði. Nei, það var
svellharða stúlkan úr sveitinni
sem opnaði reikninginn. Það var
heldur ekki neitt sætt púff við
eldhússtörfin heldur. Það var
laumuleg hljóðlát púffbomba
sem ég mun muna til æviloka.
Betri helmingurinn segist
reyndar núna, tæpum tuttugu
árum seinna, segist ekkert muna
en ég – ég man. Svona nokkru
gleymir enginn sem fyrir verður.
Setjum sviðið: Rétt rúmlega
tvítugir myndlistarnemar byrja
að draga sig saman eins og ger
ist á þessum árum. Ég, fordekr
aður drengur úr Kópavoginum
sem býr enn í foreldrahúsum og
hefur aldrei kveikt á þvottavél.
Hún, bóndadóttir úr Þingeyjar
sýslum sem hefur nokkurn
veginn séð um sig sjálf frá því
að skólaskyldu lauk. Sumsé tals
verður þroskamunur á. Þetta var
á síðkvöldi í kjallara foreldra
húsanna, Kópavogsmegin í Foss
vogsdalnum, þar sem unglinga
herbergið mitt var á síðustu
árum síðustu aldar. Við síðung
lingarinir erum með kósíkvöld.
Vídeómynd í VHS tækninu sem
við horfum á undan sæng, einni
sæng. Þá er sem mér skyndilega
hitnar um lærið. Í fyrstu átta ég
mig ekki á neinu og skil ekkert
þessa aukningu á líkamshita.
Sér í lagi á svona staðbundu
svæði – svo átta ég mig hvað var
hvað. Undirsængurprump – með
leiser nákvæmni.
Daman opnaði prumupreikn
inginn með einhverjum stórkost
legasta hætti í manna minnum.
Ég bjó auðvitað engan veginn
yfir nægilegum þroska til að átta
mig á hvers konar ástarjátning
þetta var í raun og veru. Sá bara
skotleyfið. Nokkuð sem ég hef
nýtt mér til þessa dags. Hef
þannig lítið þroskast á þessum
árum, andlega í það minnsta.
Prumpa bara og prumpa – svo
þegar ég fæ augngotur eða
harkalegt tiltal er svarið alltaf
hið sama.
Þú byrjaðir.
Te
ik
ni
ng
/H
ar
i
Haraldur
Jónasson
hari@
frettatiminn.is
HELGARPISTILL
48 viðhorf Helgin 13.-15. nóvember 2015
Skoda Octavia
Ambiente 1.6 TDI
2.490.0002011
94
VW Take up!
Peugeot 206
Active
Mitsubishi Colt
Toyota
Corolla
1.650.000
2.190.000
950.000
890.000
2014
2013
2007
2005
16
22
172
67
Audi A4
2.0 TDI AT
3.950.0002012
69
VW Polo
1.2 Trendline
Hyundai I30
MM Pajero
Intstyle 3.2
Honda Civic
1.8i ES
2.050.000
1.790.000
8.290.000
1.190.000
2014
2012
2014
2006
15
96
125
40
Klettháls 13 · HeklaNotadirBilar.is · 590 5040
Afskornar
frostrósir
Götuprýði
Raf / Bensín
Ekinn þús. km.
Myndir á vef
Dísil
Fjórhjóladrif
Metan & bensín
Sjálfskiptur
Beinskiptur
Rafmagnsbíll
30