Fréttatíminn


Fréttatíminn - 13.11.2015, Side 54

Fréttatíminn - 13.11.2015, Side 54
Nánari upplýsingar: www.transatlanticsport.is Júlíus, 588 8917 – jg@transatlantic.is Reunion Resort Golf Villas, Orlando, Florida Innifalið: Flug með Icelandair, akstur til og frá flugvelli, gisting í 8 nætur, 7 daga golf á þremur 18 holu völlum og morgunmatur. Dagsetningar: 16. og 30. okt. og 6. nóv. 2015 Verð m.v. 4 saman frá 269.900 kr.  Óskalisti hlauparans Fimmtugsafmælinu fagnað í New York maraþoninu Sjúkraþjálfarinn Eygló Traustadóttir eyðir frístundum sínum í að hlaupa, hjóla og synda. Hlaupið á þó hug hennar allan og hún stefnir ekki á að keppa í járnkarli, þó svo að vera með bak- grunn í öllum keppnis- greinum. Eygló var meðal keppenda í New York maraþoninu sem fram fór í byrjun mánaðarins ásamt systur sinni, frænku og frænda svo úr varð hin skemmtilegasta fjölskylduferð. Eygló dreymir um að taka þátt í fleiri hlaupum og væri alveg til í gjafabréf upp í hlaupaferð í jólapakkann. É g æfði sund þegar ég var ung og þó hófust æfingar stundum á útihlaupi sem mér dauðleiddist,“ segir Eygló. „En eftir að ég eignaðist börnin mín varð einhvern veginn auð- veldasta hreyfingin að fara bara út að hlaupa. Ég fann þá hvað útiveran gerði mér gott.“ Eygló hefur þó þurft að glíma við ýmis meiðsli tengd hlaupum. „Ég lenti í ýmsum óhöppum og fór meðal annars í aðgerð árið 2011 og ég bjóst því ekki við að geta hlaupið heilt maraþon.“ Það átti þó eftir að breytast og er það systur Eyglóar að þakka. „Erla systir mín fagnar fimmtugsaf- mælinu nú í nóvember og hún fékk þá frábæru hugmynd að taka þátt í mara- þoni í tilefni stórafmælisins.“ New York maraþonið varð fyrir valinu því það er þekkt fyrir mikið stuð og stemningu, en þátttakendur eru í kringum 50.000 og götur borgarinnar eru fullar af fólki, auk þess sem svið eru sett upp um alla borg þar sem ýmsir tónlistarmenn og skemmtikraftar stíga á stokk. Fjölskyldan slóst með í för „Við höfum hvorugar verið að hlaupa lengi en við höfðum rúm tvö ár til að undirbúa okkur. Við æfðum reyndar mikið sitt í hvori lagi, ég hjá ÍR skokki og hún hjá Laugaskokki.“ Fleiri úr fjöl- skyldunni áttu eftir að bætast í hópinn og tóku dóttir Erlu og frændi systranna einnig þátt í hlaupinu. „Það var alveg dásamlegt að fara svona mörg saman. Ekkert okkar hafði hlaupið heilt mara- þon áður en við vorum staðráðin í hafa gaman,“ segir Eygló. Alls fóru 10 fjöl- skyldumeðlimir til New York í byrjun mánaðarins, ferðin varð því sann- kölluð fjölskylduferð. „Foreldrar okkar og aðrir fjölskyldumeðlimir slógust í för með okkur og þau voru frábært klapplið og þetta var alveg stjarnfræði- lega gaman.“ Góður tími bara bónus Alls tóku um 20 Íslendingar þátt í maraþoninu og var Eygló með þriðja besta tímann af íslensku keppendun- um, 3 klukkustundir og 47 mínútur, og lenti í 288. sæti í sínum aldursflokki. „Það gekk nánast allt upp hjá mér. Ég fékk engar blöðrur og lenti ekki í neinu veseni, en aðalmarkmiðið var að klára hlaupið, tíminn var bara bónus. Það hefði þó mátt vera nokkrum gráðum kaldara, en það hefur var óvenju heitt miðað við árstíma.“ Eygló ætlar að halda áfram að hlaupa í vetur, í hvaða veðri sem er. „Ef maður æfir í hópi bíða manns alltaf æfingafélagar ef maður bara klæðir sig og kemur sér af stað.“ Góðir hlaupaskór „Það skiptir máli að kynna sér hlaupaskó og ég hef verið að sjá sífellt fleira fólk koma til mín í sjúkraþjálfun með álagsmeiðsli eftir lélega skó. En góðir hlaupaskór þurfa ekki endilega að vera mjög dýrir. “ Hlaupa- eða gönguferð „Gjafakort í styttri og lengri ferðir finnst mér mjög aðlaðandi. Það er alveg ótrúlega margt í boði, innan- og utan- lands, og hægt að gefa gjafabréf upp í slíka ferð. Mér finnst það að minnsta kosti mjög spennandi kostur.“ Erla María Markúsdóttir erlamaria@frettatiminn.is Eygló Traustadóttir var meðal 50.000 þátttakenda í New York maraþoninu sem fram fór þann 2. nóvember síðast liðinn. „Hlaupið leið ótrúlega hratt og það var mikið stuð á götum úti, en áætlað er að um tvær milljónir hafi fylgst með hlaupinu,“ segir Eygló. Ljósmynd/Úr einkasafni. Fjórir fjölskyldumeðlimir þreyttu maraþonið, öll í fyrsta skipti og náðu þau öll settu markmiðið: Að klára hlaupið. Frá vinstri: Afmælisbarnið Erla Traustadóttir, Árni Ragnarsson, Eygló Traustadóttir og Þórdís Stella Þorsteinsdóttir, dóttir Erlu. Ljós- mynd/Úr einkasafni. Jólaóskalisti hlauparans Hlaupaúr „Eftir því sem maður hleypur meira eykst löngunin til að eignast hlaupaúr sem mælir vegalengdir, tíma, hlaupaleiðir og fleira, það getur verið hvetjandi að fylgjast með þessu öllu.“ Ef maður æfir í hópi bíða manns alltaf æf- ingafélagar ef maður bara klæðir sig og kemur sér af stað. 54 jólagjafir útivistarfólks Helgin 13.-15. nóvember 2015

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.