Fréttatíminn - 13.11.2015, Side 56
Lyf á hagstæðu verði
Opið alla virka daga frá 08.00 til 20.00
Persónuleg og góð þjónusta í nágrenni við þig
Opið um helgar Laugardaga frá 10-18Sunnudaga frá 13-18
Nýtt sjálfstætt starfandi apótek í Suðurveri
Sími 511-0200 - farmasia@farmasia.is
Óskalisti björgunarsveitarmannsins
Með meirapróf uppi á jökli
Útivistaráhugi Ragnheiðar Guðjónsdóttur kviknaði í skátunum og þaðan lá leiðin í björgunar-
sveitina. Ragga er lærður ljósmyndari og fjölmiðlatæknir en starfar sem leiðsögumaður á Lang-
jökli þar sem hún leiðir áhugasama ferðamenn um leyndardóma íshellisins í jöklinum. Það skiptir
miklu máli að vera vel útbúinn á jöklinum og á óskalista Röggu fyrir jólin eru meðal annars dún-
lúffur og góð skíðagleraugu.
Ragga starfar sem leiðsögumaður og bílstjóri hjá Into the Glacier, sem sér um leiðsögn í íshellinum á Langjökli, sem opnaður
var síðasta sumar. „Ég elska að finna fyrir frið og ró þegar ég kemst upp á jökul.“ Ljósmynd/Úr einkasafni.
É g er í Björgunarsveit Hafn-arfjarðar og starfa þar sem bílstjóri og sérhæfður leitar-
maður,“ segir Ragga, Ragnheiður
Guðjónsdóttir, en flest hennar
áhugamál tengjast útivist á einn
eða annan hátt. „Ég hef mikinn
áhuga á ferðalögum og breyttum
bílum. Svo á ég son, Elmar Óðin,
sem verður þriggja ára í febrúar og
eyði miklum tíma með honum í alls
konar útivist sem og öðru.“ Ragga
er með meirapróf sem nýtist vel
uppi á jökli þar sem trukkarnir eru
í stærra lagi. „Þó svo að það sé nóg
af fólki uppi á jökli finn ég samt
fyrir miklum frið og ró uppi á fjöll-
um. Ég losna við allt stress þegar
ég er komin upp á jökul og mun því
missa af öllu jólastressinu sem er
bara fínt,“ segir Ragga og hlær.
Ógrynni af græjum, fatnaði og
öðrum búnaði fylgir björgunar-
sveitastörfunum og fjallamennsk-
unni og þarf Ragga að útvega
margt sjálf, sérstaklega fatnað.
„Þegar maður starfar uppi á jökli
verður maður að eiga góða sokka,
skó, vettlinga, húfu og slíkt.“ Þó
svo að Ragga muni að mestu losna
undan jólastressinu í borginni
losnar hún ekki við jólagjafainn-
kaupin, en hún gaf sér líka tíma til
að setja saman lítinn óskalista með
nokkrum hlutum sem munu nýtast
henni í störfum sínum.
Erla María Markúsdóttir
erlamaria@frettatiminn.is
Óskalisti björgunarsveitar- og leiðsögumannsins
Gleðileg
útivistarjól
Ragga og sonur hennar, Elmar Óðinn,
eru iðin við að skella sér upp á hina
ýmsu fjallstoppa og segir Ragga lítið
mál að bera guttann á bakinu. Ljósmynd/
Úr einkasafni.
GPS tæki
„Ég hef augastað
á einu splunkunýju
frá Garmin.“
Dúnlúffur
„Góðar dúnlúffur eru
ofarlega á óskalistanum.“
Skíðagleraugu
„Góð skíðagleraugu
eru nauðsynleg uppi á
fjöllum þar sem er allra
veðra von.“
Gönguskór
„La Sportiva frá 66°
Norður eru ótrúlega
flottir.“
Jetboil Flash™
Gerir alla eldun í útilegum mun einfaldari.
Það tekur Flash™ einungis 2 mínútur að
sjóða vatn. Þegar vatnið hitnar þá sést það
á hlífinni utan á Flash™ því hlífin skiptir
um lit við hitabreytinguna. Síður 12 lítra
með aðeins 100grömmum af gasi. Þegar
brennarinn er ekki í notkun er hægt að
geyma brennarann ásamt gaskútnum og
aukahlutum ofan í bollanum. Á brennar-
anum er einnig neistakveikja og er því
óþarfi að ferðast með eldspýtur eða
kveikjara. Snilldar græja í allar ferðir hvort
sem er í jeppa-,veiði-, göngu- eða skíða-
ferðina.
Verð: 25.995,-
Petzl TIKKA RXP
Ljósið er mjög öflugt og gott höfuðljós.
Ljósið er 215 lúmen og er búið ljósnema
sem nemur birtustigið úti og stillir
ljósgeislann eftir því. Það hámarkar
afkastagetu ljóssins og endingartíma
rafhlöðunnar. Ljósið er með tveimur
perum, önnur með sterkum og mjóum
geisla, hin með breiðum geisla. Einnig
rautt ljós, með og án blikki. Ljósið er
búið lithium hleðslurafhlöðu og er
hlaðið með USB snúru. Hægt er að
sækja tölvuforrit til að stilla hvernig
notandinn vill að ljósið virki fyrir sig og
sína notkun.
Verð: 19.995,-
56 jólagjafir útivistarfólks Helgin 13.-15. nóvember 2015