Fréttatíminn - 13.11.2015, Side 64
64 Helgin 13.-15. nóvember 2015
Þ að mætti halda það þegar við erum að horfa á einstaklinga sem glíma við þann erfiða sjúkdóm sem sykursýki
er að þeir hefðu einhvern sérstakan áhuga á
sykri eða borðuðu hann óhóflega, en því fer
auðvitað fjarri. Orðið er í raun mjög gott og
lýsir krankleikanum við að vinna úr orku-
efnum sem í daglegu tali eru nefnd sykur.
Eðlilegra er í raun að tala um kolvetni sem
eru hluti af grunnorkuefnum þeim sem lík-
aminn þarfnast og svona til einföldunar eru
hinir kallaðir fita og prótein.
Við heyrum þessum orðum fleygt býsna
oft en vitum flest hver ekki nákvæmlega
hvað þau þýða né heldur í hvaða vörum hvað
kann að leynast í sjálfu sér. Það breytist hratt
þegar einstaklingar greinast með vanda þar
sem ein megin stoð meðferðar er fólgin í að
passa mataræði sitt. Það á til dæmis við um
sykursýki af tegund 2 eða svokallaða áunna
sykursýki. Við heyrum hana oft nefnda í
tengslum við aðra sjúkdóma, sem áhættuþátt
til dæmis fyrir hjarta- og æðasjúkdómum eða
nýrnabilun, taugavanda og jafnvel blindu. Þá
er orðið algengt að við tengjum saman offitu
og líkurnar á að þróa sykursýki, sérstaklega
á meðgöngu og þannig mætti lengi telja.
Sykursýki er eitt alvarlegasta og jafnframt
að verða eitt algengasta heilsufarsvanda-
mál í heiminum. Ef við skoðum tölurn-
ar þá eru þær sláandi og hræða mann
í raun og veru, vegna þess að megin-
vandinn á bak við þróun þessa sjúk-
dóms byggir á lífsstílsþáttum og
neyslumynstri. Talið er að ríf-
lega 400 milljón manns glími
við sjúkdóminn á heimsvísu.
Gögn frá WHO (World Health
Organization) áætla að tæp-
lega 200 milljónir manna viti
ekki af sjúkdómnum sem
einnig er gríðarlega há
tala. Einkenni geta komið
fram hægt og rólega og
einstaklingurinn finnur
jafnvel lítið fyrir vand-
anum fyrr en hann er
kominn á fleygiferð,
en þá getur hann líka
reynst lífshættu-
legur.
Ýmsar tölur eru
til um það hversu
margir látast af
völdum sjúkdóms-
ins á hverju ári, en
áætlanir gera ráð
fyrir að minnsta kosti 5 milljónir falli frá í
heiminum af þessum orsökum. Ríki heims
og einstaklingar eyða rúmlega 500 milljörð-
um dollara á ári í meðferð fyrir þá sem eru
með slíka greiningu. Um helmingur þeirra
sem deyr er yngri en 60 ára. Þróunin á næstu
20 árum sýnir tvöföldun þessara talna. Það
er því óhætt að segja að við erum að glíma
við faraldur.
En eins og ég kom inn á í upphafi þá hef-
ur sykursýki ekki neitt að gera með neyslu
á sykri í þeim skilningi, heldur er það svo
að innkirtlastarfsemi okkar er veikluð eða
biluð og því tekst ekki að vinna úr þeim nær-
ingarefnum sem við innbyrðum á eðlilegan
hátt. Brisið leikur þarna lykilhlutverk en
ákveðnar frumur í því framleiða insúlín sem
er hormón og hefur það verkefni að hjálpa
frumum að taka til sín glúkósa, en einnig
að ýta undir forðasöfnun í lifrinni. Þá hefur
insúlín talsverð áhrif á blóðfitu- og prótei-
nefnaskipti okkar en einnig saltbúskap og
gerir það þannig að einu mikilvægasta horm-
óni líkamans.
Sykursýki sem sjúkdómur er aftur á móti
skilgreindur í tvær tegundir sem eru nefndar
1 og 2 og svo einnig það sem kalla má forstig.
Þeir sem eru með tegund 1 framleiða ekk-
ert insúlín, greinast yfirleitt ungir og eru á
milli 5-10% af öllum tilfellum. Ástæðan getur
verið margvísleg, ættgengi, umhverfisþættir
og veirusjúkdómar og oft vitum við ekki af
hverju í raun. Þeir sem eru með tegund 1
þurfa að fá insúlín í sprautuformi alla jafna
ævilangt. Hinn hópurinn sem er margfalt
stærri og fellur undir tegund 2 er sá þar sem
framleiðsla á insúlíni er ekki nægjanleg, eða
nýting þess skert. Ástæðurnar eru mjög
margar en sú algengasta að talið er byggir á
lífsstílsvanda, offitu, lélegu mataræði, lítilli
hreyfingu, streitu og slíkum þáttum. Þó er
þekkt að ákveðin ættlægni er til staðar auk
þess sem ákveðnir sjúkdómar geta ýtt undir
þróun slíkrar sykursýki.
Greiningin er einföld í báðum tilvikum, hún
felst í læknisviðtali og blóðrannsókn sem all-
ir ættu að fara í með reglubundnu milllibili.
Meðferðin á tegund 2 sykursýki byggir lyfjum
í töfluformi og jafnvel insúlíni í erfiðum til-
vikum en fyrst og fremst á að breyta og bæta
lífsstíl viðkomandi einstaklings til hins betra
í öllum tilvikum og gefast aldrei upp við það
verkefni. Vanastjórnun og lífsstílsbreyting er
ódýrasta og besta leiðin til að glíma við þenn-
an tröllvaxna vanda sem við stöndum frammi
fyrir í aukningu á þeim sjúkdómi á heimsvísu
og því má aldrei gleyma!
Ertu sjúk/ur í sykur?
PISTILL
Teitur
Guðmundsson
læknir
Unnið í samstarfi við Doktor.is.
Þekktu
einkenni
sykursýki
Einkennin geta verið lítil sem engin um langan
tíma, en í flestum tilvikum verður vart við:
Í versta falli geta komið upp
alvarleg einkenni eins og:
n Truflun á öndun n Kviðverkir n Krampar og dá sökum alvar-
legra salt- og sykurtruflana
Aukinn
þorsta
Þyngdartap
og einbeit-
ingarskort
Aukin
þvaglát
Hungur-
tilfinningu
Munnþurrk
Þreytu og
slappleika
Hvernig er best að forðast sykur í mat?
Hvað er svengd?
Í heilanum eru tvær aðskildar stöðvar
sem stjórna matarlyst okkar, svengdar-
stöðin og saðningarstöðin. Þessi svæði
í undirstúku heilans voru uppgötvuð á
sjötta áratug síðustu aldar en síðan hafa
verið gerðar fjölmargar rannsóknir á
því hvernig matarlystinni er stjórnað.
Andstæða svengdar er að vera saddur
og ljóst er að margir lífeðlisfræðilegir
þættir virka á svengdar- og saðningar-
stöðvarnar og þeir standa í flóknu inn-
byrðis samspili. Það eru samanlögð áhrif
þessara þátta og næmi okkar á þau boð
sem þeir bera með sér sem ráða því
hvenær við verðum svöng, hversu svöng
við verðum og hversu mikið við þurfum
að borða til þess að verða södd.
Sísaddur eða sísvangur?
Sumir framkalla mörg tákn um að þeir
séu saddir eða eru sérstaklega næmir
fyrir þeim boðefnum sem heilanum eru
send. Þeir verða því ekki eins svangir og
aðrir og eiga auðveldara með að halda
sér grönnum. Ástæða þess að sumum
finnst þeir sífellt vera svangir getur verið
sú að þeir borði mat sem gefur einungis
frá sér veik saðningarboð til heilans, til
dæmis matur með hátt fituhlutfall en er
fátækur af trefjum. Einnig er hugsanlegt
að þetta fólk sé af náttúrunnar hendi
ónæmara fyrir hinum margbreytilegu
saðningarboðum líkamans.
Sykursýki og sárir fætur
Fótasár er algengasti fylgisjúk-
dómur sykursýki. Meiri líkur
eru á að sykursjúkir þurfi að
leggjast inn á sjúkrahús vegna
fótasára en nokkurra annarra
fylgisjúkdóma sykursýki.
Sykursýki getur leitt til
lélegrar blóðrásar og
skerts sársaukaskyns í
fótum. Mikilvægt er að skilja
hvernig fótasár myndast, þannig
að hægt sé að koma í veg fyrir
þau eða meðhöndla með sem bestum
árangri.
Til að koma í veg fyrir fótasár er mikilvægt að:
n Meðhöndla sykursýk-
ina samviskusamlega.
n Hætta að reykja.
n Borða hollan mat og
sérfæði fyrir sykursjúka.
n Varast að ofkælast á
fótum og fara í of heit
böð.
n Stunda reglulega lík-
amsþjálfun, t.d. rösklega
göngutúra.
n Gæta þess að sokkar og
skór séu ekki of þröngir,
því það getur orsakað
blöðrur og sár, sem erfitt
getur verið að græða.
n Koma í reglubundið
eftirlit til fótaaðgerða-
fræðings, sem getur
skoðað og meðhöndlað
fæturna og gefið góð
ráð. Hjá yngra fólki nægir
að koma einu sinni á ári
ef engin fótasár eru til
staðar.
n Lesa innihaldslýsingu matvæla.
n Nota sykur sparlega, til dæmis með
því að nota sætindi og sætabrauð
eingöngu spari eða á hátíðis-
og tyllidögum.
n Hætta alfarið að
kaupa sætindi og
sætabrauð. Ef
það er ekki til
þá freistar
það ekki
eins mikið.
n Velja
hollan og
prótein-
ríkan mat
og ávexti,
grænmeti
og gróft korn
í máltíðir og
millibita
n Drekka vatn
og sleppa sykruðum
drykkjum. Íslenska vatnið
er með því besta í heimi og alveg
óþarft að bragðbæta það.
n Draga úr neyslu á unninni matvöru.
Slíkar vörur innihalda gjarnan ekki bara
viðbættan sykur heldur líka of mikið af
fitu og salti.
n Hægt er að finna uppskriftir sem inni-
halda lítinn sykur þegar verið
er að baka eða nota aðra
hluti í stað sykurs
svo sem ósykrað
eplamauk.
n Eins er hægt
að prófa
að minnka
sykur-
magnið í
uppáhalds
upp-
skriftum
og sjá hvort
það breyti
miklu.
n Ekki setja
sykur á morgun-
kornið. Hægt er að
nota niðurbrytjaða
ferska ávexti í staðinn.
n Velja sykurlausar sultur.
n Sleppa sykri í te og kaffi eða reyna að
minnka magnið.