Fréttatíminn - 13.11.2015, Page 72
72 jólabjór Helgin 13.-15. nóvember 2015
Dökkir og
bragðmiklir
bjórar með
jólasteikinni í ár
Jólahátíðin gengur formlega í garð í dag hjá bjóráhugafólki þegar jóla-
bjórinn kemur í Vínbúðirnar. Fréttatíminn birtir sjötta árið í röð úttekt
á bjórunum og fengum við fjóra valinkunna sérfræðinga til að smakka.
Framboð á jólabjórum er raunar orðið slíkt að nauðsynlegt reyndist að
skipta úttektinni í tvennt. Hér birtist því íslenski hlutinn en sá erlendi
kemur að viku liðinni. Besti jólabjórinn þótti vera Einstök Doppelbock
en þetta er annað árið í röð sem hann ber sigur úr býtum.
Um smökkunina
Smökkunin var framkvæmd eftir kúnstarinnar
reglum og bjórar smakkaðir eftir hækkandi
alkóhólmagni og gefin stig fyrir útlit, lykt,
bragð og heildarstemningu.
91/100
Boli Dobbel
Bock jólabjór
Alc. 7,5% / 33 cl. 449 kr.
Mjög flottur jólabock. Ber
áfengisprósentuna mjög vel.
88/100
Pottaskefill
brúnöl nr. 36
Alc. 6,2% / 33 cl. 525 kr.
Gott brúnöl.
85/100
Giljagaur nr. 14
Alc. 10% / 33 cl. 767 kr.
Bragðmikið Barleywine frá Borg
brugghúsi sem áður hefur verið
í boði fyrir jólin.
80/100
Ölvisholt
jólabjór
Alc. 5% / 33 cl. 439 kr.
Hátíðarlager með
piparkökulykt.
90/100
JólaKaldi
súkkulaðiporter
Alc. 6% / 33 cl. 429 kr.
Virkilega vel heppnuð nýjung.
Skemmtilegur súkkulaðiporter.
95/100
Einstök
Dobbelbock
jólabjór
Alc. 6,7% / 33 cl. 449 kr.
Dökkur og bragðmikill.
Fullkominn jólabock.
83/100
Jóla Kaldi
Alc. 5,4% / 33 cl. 399 kr.
Jólaútgáfa af Kalda með
karamellutónum.
80/100
Víking
jólabjór
Alc. 5% / 33 cl. 309 kr.
Hefðbundinn jólalager.
79/100
JólaGull
Alc. 5,4% / 33 cl. 359 kr.
Hefðbundinn jólalager.
4
2
6
8
10 11
1214 1513
9
7
5
3
79/100
Gæðingur
jólabjór
Alc. 4,7% / 33 cl. 394 kr.
Jólalager með góðri lykt
og smá reyk.
79/100
Víking Jóla
Bock
Alc. 6,2% / 33 cl. 429 kr.
Fínn jólabock. Ekki eins bragð-
mikill og dobbelbockarnir og
þar með aðgengilegri.
71/100
Thule jólabjór
Alc. 5,4% / 33 cl. 359 kr.
Hefðbundinn jólalager.
69/100
Egils Malt
jólabjór
Alc. 5,6% / 33 cl. 379 kr.
Áfengt malt.
56/100
Steðji jólabjór
Alc. 5,3% / 33 cl. 395 kr.
Jólalager með lakkrístónum.
50/100
Steðji
Almáttugur
jólaöl
Alc. 6% / 33 cl. 534 kr.
Jólaöl með lakkrístón-
um. Fallega jólarauður.
DómnefnDin
Hrafnkell Freyr
Magnússon
33 ára eigandi
bruggverslunar-
innar Brew.is.
Viðar Hrafn
Steingrímsson
42 ára kennari.
Unnur Tryggvadóttir
Flóvenz
27 ára nemi og einn stofn-
enda Félags íslenskra
bjóráhugakvenna.
Ída Finnbogadóttir
25 ára meðlimur
í Félagi íslenskra
bjóráhugakvenna.
Höskuldur Daði Magnússon
Teitur Jónasson
ritstjorn@frettatiminn.is
1