Fréttatíminn - 13.11.2015, Qupperneq 84
Kór Langholtskirkju heldur sína
árlega hausttónleika á sunnudag.
Á efnisskrá kórsins að þessu sinni
verða verk eftir tvö norsk tón-
skáld. Eitt þekktasta tónskáld
Norðmanna, Knut Nystedt, lést
á síðasta ári en hann hefði orðið
100 ára þann 3. september síðast-
liðinn. Kórinn mun flytja nokkur
af hans þekktustu kórverkum og
einnig verk eftir Ola Gjeilo, en
hann fæddist 1978 og hefur vakið
heimsathygli fyrir verk sín. Gjeilo
skaust upp á stjörnuhimin kórtón-
skálda með verkum sínum Sanctus
og Agnus Dei sem eru samin á ár-
unum 2008 og 2009 og hafa slegið
rækilega í gegn og verið flutt af
kórum um víða veröld. Gjeilo lauk
námi í djass og klassískum píanó-
leik frá Tónlistarháskólanum í
Osló. Þaðan lá leiðin í Konunglega
tónlistarháskólann í London og
síðan í Julliard háskólann í New
York þaðan sem hann lauk meist-
aragráðu í tónsmíðum 2006. Kór
Langholtskirkju hefur áður flutt
verk eftir báða þessa höfunda, sér
og áheyrendum til mikillar gleði.
Tónleikarnir fara fram í Lang-
holtskirkju á sunnudag og hefjast
klukkan 17.
Ég skil-
greini rödd-
ina mína
sem cross-
over-sópr-
an, sem
flæðir því
yfir í þjóð-
lög, popp
og sálma.
Áhugasvið-
ið málar
þetta líka
svolítið.
„Ég á ekki beint heima á einum stað í tónlistinni. Ég sökkvi mér í margar stefnur og strauma sem klessast svo allar saman
á þessum diski,“ segir söngkonan Ágústa Sigrún. Ljósmynd/Hari
Í Kór Langholtskirkju eru 32 söngvarar
sem margir hverjir hafa alist upp í kóra-
starfinu innan kirkjunnar, en alls eru
sex kórar starfandi í Langholtskirkju.
Tónleikar: Árlegir hausTTónleikar kórs langholTskirkju
Heiðra norsk tónskáld
PlaTa sTjörnubjarT hjÁ ÁgúsTu sigrúnu
Björn og Benny gáfu leyfi
Söngkonan Ágústa Sigrún Ágústsdóttir gaf út sinn fyrsta geisladisk á dögunum. Hún hefur
sungið lengi og komið víða við og hefur í gegnum tíðina safnað að sér lögum sem saman eru
komin á disknum sem hún nefnir Stjörnubjart. Ágústa söng lengi vel hjá óperunni og starfar í
dag sem mannauðsstjóri, markþjálfi og leiðsögumaður. Tónlistin kemur úr öllum áttum en hún
hefur lengi haft dálæti á vísnatónlist frá Norðurlöndunum. Ágústa verður með útgáfutónleika í
Salnum í Kópavogi laugardaginn 21. nóvember.
P latan er komin út og í dreifingu. Ég var einmitt að fara með eintök í póstinn í þessum töluðu orðum,“
segir söngkonan Ágústa Sigrún Ágústs-
dóttir. „Tónlistin á plötunni er samsafn
af uppáhalds lögum mínum í gegnum
tíðina. Lög sem ég hef sungið þegar ég
hef verið að troða upp. Ég hef starfrækt
dúett með Sváfni Sigurðarsyni og við
höfum dustað rykið af allskonar lögum
sem við höfum viljað prófa. Ég misnotaði
hann um síðustu jól þegar ég vildi prófa
nokkur lög og svo var ég komin með 25
laga safn sem ég vinsaði svo úr á þessa
plötu,“ segir hún.
„Ég fékk svo þrjú ný lög til þess að
syngja, svo þetta er svona góð blanda af
lögum sem eiga sér rætur í sálmum og
þjóðlögum og svo er pínulítill sænsku
halli á þessari plötu. Ég veit ekki af
hverju það er, en sænskar lagasmíðar
hafa alltaf átt vel við mig. Meira að segja
fékk ég leyfi til þess að nota lagið Like An
Angel Passing Through My Room eftir
þá Björn og Benny úr ABBA,“ segir hún.
„Eftir smá eftirgang fékk ég leyfi til þess
að gefa það út með íslenskum texta.
Textarnir á plötunni eru eftir ýmsa höf-
unda og ég hef dreift álaginu á marga.
Hörður Sigurðarson á eina fimm texta á
disknum sem hann hefur gert að minni
ósk í gegnum tíðina. Valgerður Bene-
diktsdóttir á einn og Hallgrímur H.
Helgason á tvo, svo þetta dreifist svolítið.
Ég réð mér upptökustjórann Harald V.
Sveinbjörnsson eftir síðustu jól og sum-
arið fór í það að melta og kasta á milli
hugmyndum,“ segir hún.
„Í ágúst byrjaði hann að útsetja og svo
hófust upptökur í september. Þetta hefur
því átt sér rúmt ár í aðdraganda og undir-
búning. Ég söng lengi vel við óperuna en
þessi tónlist er fjarri þeim söng. Þeir sem
hafa hlustað á diskinn áttu kannski ekki
von á þessu frá mér. Ég skilgreini röddina
mína sem crossover-sópran, sem flæðir
því yfir í þjóðlög, popp og sálma. Áhuga-
sviðið málar þetta líka svolítið. Ég á ekki
beint heima á einum stað í tónlistinni. Ég
sökkvi mér í margar stefnur og strauma
sem klessast svo allar saman á þessum
diski,“ segir hún. „Þetta er kannski ekki
beint fyrsta platan mín því ég kom að
útgáfu á plötu árið 2001 sem heitir Hitt-
umst heil. Það var plata með lögum eftir
Ágúst Pétursson, föður minn, sem hefði
orðið áttræður um það ár, en þetta er mín
fyrsta plata í mínu nafni,“ segir Ágústa
Sigrún söngkona.
Útgáfutónleikar Ágústu verða í Salnum
þann 21. nóvember.
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
MEÐ VIRÐINGU
OG KÆRLEIK Í 66 ÁR
Útfarar- og lögfræðiþjónusta
www.útför.is
TVEIR HRAFNAR
listhús, Art Gallery
Baldursgata 12 101 Reykjavík
+354 552 8822 +354 863 6860 +354 863 6885
art@tveirhrafnar.is www.tveirhrafnar.is
Opið/Open Fim-fös; 12-17/Thu-Fri; 12pm-5pm. Lau;13-16/Sat;
1pm-4pm & eftir samkomulagi/& by appointment
HÚBERT NÓI
JÓHANNESSON
Mælipunktar / Measuring points
23. október - 21. nóvember 2015
October 23 - November 21 2015
Valshlaupið 2015 verður haldið 21. Nóvember kl: 11.00.
Boðið er upp á tvær vegalengdir 3 km og 10 km. Bæði hlaupin ræst
samtímis. Þetta eru sömu hlaupaleiðir og í hlaupinu í fyrri ár þar sem
allmargir hafa náð sínum bestu tímum enda brautirnar mjög góðar til
þess að bæta tímann sinn.
Valshlaupið
2015
Allir karlar sem ná undir 38 mínútur og allar konur sem ná undir 42
mínútur í 10 km hlaupinu fá endurgreitt á marklínu 1.000 kr
Skráning er á hlaup.is. Í Valsheimilinu föstudaginn 20. nóvember frá
kl 17:00-19:00. og á keppnisdegi í Valsheimilinu að Hlíðarenda.
84 menning Helgin 13.-15. nóvember 2015