Fréttatíminn


Fréttatíminn - 13.11.2015, Síða 88

Fréttatíminn - 13.11.2015, Síða 88
Bíldshöfða 18 - 110 Reykjavík sími: 557 9510 - www.patti.is Opið virka daga kl. 10-18 laugard. 11-15 TILBOÐ Á TUNGUSÓFUM Basel Torino HavanaRoma Kansas Rín SÓFAR Í ÖLLUM STÆRÐUM SNIRÐIR AÐ ÞÍNUM ÞÖRFUM MÁL OG ÁKLÆÐI AÐ EIGIN VALI U ndirbúningur gengur afskap-lega vel og ég er um þessar mundir að hengja upp í Gall- erí Fold,“ segir Þorgrímur Andri list- málari. „Það er pínu stress að raða upp og skipuleggja og slíkt, en um leið mjög skemmtilegt. Ég hef tekið þátt í fjölda samsýninga en þetta er önnur einkasýningin mín,“ segir hann. „Sú fyrsta í þessu galleríi. Sýningin samanstendur af tveimur seríum. Annarsvegar þar sem ég fókusera á íslenska hestinn, og hins- vegar á hrafninn. Þessar seríur spila svolítið vel saman þó þær séu ólíkar,“ segir hann. „Þetta eru allt olíumyndir og svo eru líka nokkrar kolamyndir sem fá að fljóta með, svona til að auka fjölbreytnina. Ég byrjaði að fást við að mála í kringum 2010, svo ég hef ekki verið svo lengi í þessu,“ segir hann. „Ég var í námi erlendis þar sem ég var að læra tónsmíðar og datt óviljandi inn á þessa listmálun. Ég féll bara svo algerlega fyrir því og hef einbeitt mér mikið af því síðan. Tón- listin hefur nánast lagst af hjá mér síðan. Ég tek að mér nokkur áhuga- verkefni í tónlistinni, og þá helst ein- hverjum samstarfsverkefnum eins og dansverkum og slíku. Annars á listmálunin allan minn fókus og er vinnan mín í dag. Umhverfið í listmáluninni hefur breyst held ég að undanförnu,“ segir Þorgrímur. „Það er mjög mikið um það að fólk kaupi mín verk í gegnum heimasíðuna mína. Áður fyrr þá var eini sénsinn fyrir málara að selja, að halda sýningu eins og ég er að gera  Málverkasýning ÞorgríMUr andri í gallerí Fold Seríur um hesta og hrafna spila vel saman Listmálarinn Þor- grímur Andri Einars- son opnar sýningu í Gallerí Fold á morg- un, laugardag, sem hann kallar Hestur- inn og hrafninn. Þorgrímur ætlaði sér alltaf að verða tónskáld og byrjaði í námi í tónsmíðum en leiddist svo út í myndlist. Hann lagði tónlistina á hilluna og hefur einbeitt sér að myndlistinni sem er ákvörðun sem hann sér ekki eftir. Á sýningunni í Fold um helgina sýnir hann olíumyndir þar sem viðfangsefnið eru hestar og hrafnar, eins og nafnið gefur til kynna. Þorgrímur Andri Einarsson lagði tónlistina á hilluna og féll fyrir myndlistinni. núna. Ég fæ mikið af heimsóknum í gegnum heimasíðuna, sem og á Facebook og Instagram,“ segir hann. „Fólk kemur svo í heimsókn og skoðar og oftast kaupir það mynd. Sýningar eru ekki eins mik- ilvægar og áður, þó þær séu auð- vitað mjög skemmtilegar. Mark- aðurinn er bara orðinn svo opinn,“ segir Þorgrímur Andri Einarsson listmálari. Sýningin Hesturinn og hrafninn opnar á laugardaginn klukkan 15. Á heimasíðu Þorgríms www.thorgrimur.com er hægt að skoða verk hans. Hannes Friðbjarnarson hannes@frettatiminn.is Ég byrjaði að fást við að mála í kringum 2010, svo ég hef ekki verið svo lengi í þessu. Lj ós m yn d/ H ar i 88 menning Helgin 13.-15. nóvember 2015
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.