Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2011, Síða 4

Náttúrufræðingurinn - 2011, Síða 4
Náttúrufræðingurinn 108 Inngangur Alaskalúpína (Lupinus nootkatensis), oftast nefnd lúpína, var flutt inn frá Alaska um miðja 20. öld. Lengi vel breiddist hún hægt út, því henni var aðallega fjölgað á mjög sein- legan hátt með því að stinga upp rótarhnausa og gróðursetja. Um 1980 var byrjað að sá henni og hefur útbreiðslan verið hröð eftir það; alaskalúpínu er nú að finna allvíða um allt land. Hún hefur verið notuð með góðum árangri til að græða upp stór svæði, t.d. meðfram veg- inum á Mýrdalssandi til að hefta sandfok, sem iðulega skemmdi bíla og hefti umferð um þjóðveg 1. Mun ódýrara er að græða slík svæði upp með lúpínu en grasi, því ekki þarf að bera á lúpínuna. Lúpína fjölgar sér aðallega með fræi sem myndast þegar frævurnar breytast í fræbelgi (1. mynd). Belg- irnir harðna þegar þeir þroskast síðsumars og springa með smelli svo fræin þeytast úr þeim. Þess vegna er nýjar plöntur aðallega að finna nálægt móðurplöntu. Ung- plönturnar lifa ekki af nema þær smitist af bakteríum sem annað- hvort berast með fræinu eða eru í moldinni kringum móðurplöntuna. Aðallega breiðist lúpínan hægt út frá móðurplöntu, um einn metra á ári – en kemst þótt hægt fari. Hún breið- ist mun hraðar út niður brekkur og niður með ám og lækjum, og fuglar virðast geta borið hana á nýja staði auk mannsins. Á fyrsta ári er lúpínuplantan aðeins með einn lítinn stöngull. Hún blómstrar venjulega og setur fræ á 3. ári, og eru stönglarnir þá venjulega 3–5 talsins. Hver planta getur myndað yfir 100 stöngla, orðið 20 ára gömul og árlega myndað þúsundir fræja sem geta geymst í jarðveginum í mörg ár.1 Styrkur lúpínunnar liggur í sam- býli hennar við rótarbakteríur sem binda köfnunarefni (nitur) úr and- rúmslofti í amínósýrur, ammoníak og nítröt, þ.e. efni sem plöntur geta nýtt sér. Þess vegna þarf lúpína ekki köfnunarefnisáburð og vex mjög vel þar sem skortur er á bundnu köfn- unarefni í jarðvegi, eins víða er hér á landi. Ef lúpínufræ spírar án þess að því fylgi bakteríur vex upp af því vesæl planta sem varla lifir veturinn af. Þegar rót smitast af bakteríum myndast stórar vörtur (1. mynd) sem bakteríurnar lifa og dafna í og launa vistina ríkulega með ókeypis köfnunarefnisáburði. Lúpínan hefur öflugt rótarkerfi og hefur nokkurra ára gömul planta margar, langar og gildar rætur. Á 2–3 ára plöntum eru ræturnar um 60 cm, langar og mjóar með fáum vörtum, en gildna með árunum um leið og vörtunum fjölgar. Hluti af fræi lúpínunnar spírar ekki strax heldur geymist í jarðvegi árum og jafnvel áratugum saman. Það er vel þekkt meðal plantna og er í því sambandi talað um fræforða eða fræbanka. Fræbanki lúpínu og Þorvaldur Örn Árnason Að hemja alaskalúpínu á Íslandi Í grein þessari er fjallað um lúpínuna á auðskilinn hátt. Þessi öfluga jurt er mjög gagnleg uppgræðslujurt en getur orðið mikill skaðvaldur í íslenskri náttúru ef hún breiðist stjórnlaust út. Gerð er grein fyrir niðurstöðum rannsókna og nefnd dæmi í máli og myndum af áhrifum hennar til góðs og ills og tilraunum til að hefta útbreiðslu hennar. Settar eru fram hugmyndir um forgangsröðun aðgerða til að stjórna útbreiðslu með hámarksárangri og lágmarkstilkostnaði. Náttúrufræðingurinn 81 (3–4), bls. 108–114, 2011 1. mynd. Fræbelgir lúpínu og rót hennar smituð rótarbakteríum (Rhizobium). 81_3-4_loka_271211.indd 108 12/28/11 9:13:28 AM

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.