Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 2011, Side 6

Náttúrufræðingurinn - 2011, Side 6
Náttúrufræðingurinn 110 Starfsfólk vinnuskólans í Vogum gerði árið 2010 tilraun til að upp- ræta lúpínu við vegkant þar sem ekið er inn í þorpið. Árið eftir kom þar upp mikið af lúpínu á öllum þroskastigum svo vinnu- skólabörnin höfðu þar ekki erindi sem erfiði. Tilraunir benda til að árangurs- ríkast sé að slá lúpínu á tímabilinu frá 20. júní til miðs júlí, en þá er lágmarks næringarforði í rótunum.2 Það má deila um hvort rétt sé að útrýma þessari lúpínu í þéttbýlinu í Vogum. Kirkjuholtið er vel gróið og þar vex m.a. krækilyng (Empetrum nigrum) og er eftirsóknarvert að börn geti tínt ber þar innanbæjar. Fengi lúpínan að ráða sér sjálf á Kirkjuholt- inu er líklegt að hún myndi þekja það á rúmum áratug og útrýma berjalynginu. Öðrum máli gegnir um vegkantinn við Vogabraut. Hann mætti að skaðlausu klæðast lúpínu, yrði traustari fyrir vikið og að flestra mati fallegri. Landið umhverfis er skipulagt byggingarsvæði og því ljóst að mestallur náttúrulegur gróður þar er dauðadæmdur hvort eð er. 5. mynd. Það er erfitt og jafnvel hættulegt að ganga í lúpínubreiðu ef undirlagið er óslétt og grýtt. Þar er ógerningur að fylgja götu. Ef ekkert verður að gert mun lúpínan loka þeim hluta fornu Stapagötunnar sem myndin sýnir. Ljósm.: Þ.Ö.Á., júlí 2010. Dæmi frá Vogastapa og Voga- heiði, anddyri Íslands Norðaustan í Vogastapa fyrir ofan Reiðskarð er lúpínan að leggja undir sig Stapagötuna, sem er gamla þjóð- leiðin milli Voga og Njarðvíkur (5. mynd). Þar ryðst hún m.a. yfir gullkoll (Anthyllis vulneraria), fallega plöntu sem vex óvíða á landinu annars staðar en á Reykjanesskaga. Gullkollur er einnig með niturbind- andi bakteríur í rótarhnúðum og framleiðir nituráburð líkt og lúpínan, en í minna mæli. Hann er hins vegar lávaxinn og kæfir ekki annan gróður. Norðurhlíð Stapans, sem er bæjar- fjall Vogabúa, er hverfisvernduð í nýju aðalskipulagi og m.a. friðuð fyrir ágengum aðskotaplöntum. Lúp- ínan flæðir nú yfir hábungu Stapans inn á það svæði á nokkrum stöðum og enn bólar ekki á skipulegum aðgerðum sveitarfélagsins til að framfylgja skipulagsákvæðum þar. Hverfisverndarákvæðin í aðal- skipulaginu eru svohljóðandi: H-2: Vogastapi að Vogavík Vogastapi er mikilvægt útivistarsvæði og hluti útsýnis frá Vogum. Hann hefur álíka gildi fyrir íbúa Sveitarfélagsins Voga og Esjan fyrir Reykvíkinga. Hann er að vísu lægri en Esjan en hefur það framyfir að ganga í sjó fram. Þetta frið- aða belti nær yfir hábungu Vogastapa frá Vogavík að mörkum Reykjanes- bæjar. Innan þess er Stapagatan, gamla þjóðleiðin milli Voga og Njarðvíkur en gamli akvegurinn til Keflavíkur, sem lagður var snemma á 20. öld lendir rétt sunnan þess.6 Skilmálar hverfisverndar H-2 • Engar byggingar verða leyfðar á þeim hluta Vogastapa sem sést úr Vogum, né heldur undir hlíð hans í Vogavík. • Svæðið verði friðað gegn raski og framandlegum áberandi plöntum, t.d. lúpínu. • Stapagatan verði merkt og notuð í óbreyttri mynd sem gönguleið. Um tugur vinnuskólakrakka vann við að reyta og slá lúpínu í um tvær vikur í júlí og ágúst 2010 á Voga- stapa, en varla sá högg á vatni og ljóst að það þarf mun meira til að stöðva útbreiðslu þar. Í suðurhlíð Vogastapa er lúp- ína að nema alla hlíðina niður að Reykjanesbraut, eins og sjá má þegar ekið er eftir brautinni. Þar var mikil gróður- og jarðvegseyðing og var búið að kosta miklu til í áburði og fræi sem sáð var úr flugvél á 9. og 10. áratugnum. Einnig var sett þar lúpína sem klæðir nú þetta land kraftmiklum en einhæfum gróðri. Höfundur sér ekki ástæðu til að hefta útbreiðslu þessarar lúpínu. Það yrði gríðarlega kostnaðarsamt og auk þess eru þarna enn opin jarðvegssár sem gott er að lúpínan loki. Það verður tilkomumikil sjón fyrir ferðamenn að berja þarna augum nokkra ferkílómetra þakta skær- blárri blómstrandi lúpínu þá tvo mánuði sem flestir koma til landsins. Um leið verður mikilvægt að halda eftir heillegu landsvæði sem þakið er upprunalegum gróðri sem blasi 4. mynd. Lúpínuungviði leynist í sverðinum eftir slátt. Ljósm.: Þ.Ö.Á., júlí. 2011. næstu árin hvernig gengur að halda lúpínunni í Kirkjuholtinu niðri. 81_3-4_loka_271211.indd 110 12/28/11 9:13:31 AM

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.