Náttúrufræðingurinn - 2011, Síða 13
117
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
í hverjum potti. Mosahræringnum
var hellt eins jafnt og mögulegt var
yfir pottana. Allar hraungambra-
meðferðir voru endurteknar fimm
sinnum og var þeim raðað til-
viljanakennt í potta innan endur-
tekninga.19 Gegnsætt plast með
loftgötum var lagt yfir þrjár af
fimm endurtekningum til að halda
mosunum rökum.13 Í upphafi var
þó breitt yfir alla tilraunina, en
eftir um þrjár vikur flettist yfir-
breiðslan af tveim endurtekningum.
Mikil mygla hafði þá myndast í
pottunum og óttuðumst við að
tilraunin væri ónýt af þeim sökum.
Myglan virtist minni þar sem ekki
var yfirbreiðsla og því var ákveðið
að sleppa yfirbreiðslunni í tveimur
endurtekningum.
Til samanburðar við hraungam-
brann voru prófaðar tvær rækt-
unaraðferðir – heilar greinar og
mosahræringur eins og lýst var
hér að ofan – fyrir aðrar algengar
íslenskar mosategundir; mela-
gambra (Racomitrium ericoides
[Brid.] Brid.), tildurmosa og
engjaskraut (Rhytidiadelphus squar-
rosus [Hedw.] Warnst.). Vegna þess
að ræktunarrýmið var takmarkað
voru þessar tegundir einungis rækt-
aðar á mold og hver meðferð var
aðeins endurtekin þrisvar sinnum.
Glært plast með loftgötum var breitt
yfir alla potta í þessari tilraun. Upp-
haflega var prófað að nota súrmjólk
í hræringinn en þær meðferðir urðu
ónýtar eftir þrjár vikur vegna myglu.
Af þessum sökum voru tilrauna-
meðferðir með mosahræringi aðeins
gerðar í 75 daga en ekki 145 daga
eins og aðrar tilraunameðferðir.
Tilraunirnar voru lýstar með
flúrperu-gróðurlömpum (OSRAM,
FLUORA L58W/77) í tólf tíma á dag
frá klukkan 08:00 til 20:00. Hitastigið
í gróðurhúsinu var stillt á 10°C en
var í reynd á bilinu 9–15°C. Pott-
arnir voru vökvaðar eftir þörfum á
u.þ.b. tveggja vikna fresti.
Lifun og virkni greina og greina-
búta í tilrauninni var metin eftir 40,
75, 105 og 145 daga. Í hvert skipti
voru taldar lifandi og virkar greinar
eða greinabútar í hverjum potti.
Þegar lifun var mæld voru taldar
þær fjölgunareiningar sem litu út
fyrir að vera lifandi. Virkni var skil-
greind sem geta fjölgunareininga til
að mynda nývöxt (blöð og greinar).
Fjölgunareiningar gátu því verið
lifandi þrátt fyrir að þær væru ekki
virkar.
Mælingar í mosahræringi voru
frábrugðnar mælingum á öðrum
meðferðum. Í upphafi var fylgst
með því hvenær vöxtur hófst. Eftir
75 daga var tíðni virkra brota (brota
með nývexti) mæld með 7x7 cm
ramma sem lagður var í miðju
hvers potts. Rammanum var skipt
upp í 49 jafnstóra reiti (1 cm2) og
var tíðni skráð sem hlutfall reita þar
sem hægt var að greina vöxt. Að
auki voru valin úr hverjum potti
þrjú brot með lengstu sprotunum
og brotin og nývöxtur þeirra mæld
með reglustiku að næsta millimetra.
Pottarnir sem mosinn var rækt-
aður í voru tilraunaeiningin í öllum
tilfellum og voru notuð gildi fyrir
hlutfallslega lifun, virkni, tíðni eða
meðallengd mosabúta, -brota eða
greina í hverjum potti. Fyrir saman-
burð á mosahræringi úr hraun-
gambra á mismunandi undirlagi
voru aðeins notuð gögn úr með-
ferðum undir plastyfirbreiðslu, því
enginn nývöxtur varð þar sem ekki
var yfirbreiðsla. Þarafleiðandi voru
einungis notuð gögn úr þremur
endurtekningum fyrir hraun-
gambrahræringinn. Við samanburð
á mismunandi tegundum voru
notuð gögn fyrir hraungambra úr
moldarmeðferðum með yfirbreiðslu,
þar sem aðrar tegundir voru aðeins
ræktaðar við slíkar aðstæður. Fervika-
greining á endurteknum mælingum
(e. repeated measures) var notuð til
að kanna áhrif fjölgunareininga og
undirlags á prósentu lifandi eða
virkra greina og hraungambrabúta.
Einnig var gerð fervikagreining
fyrir hvort undirlag á gögnum fyrir
lokamælinguna, eftir 145 daga, og
voru meðaltöl fyrir mismunandi
fjölgunareiningar borin saman með
Tukey’s HSD (α=0,05). Gögnin voru
arcsin-umreiknuð fyrir fervikagrein-
ingarnar þar sem þau uppfylltu
ekki skilyrði um normaldreifingu
2. mynd. Tilraun með fjölgun hraungambra, melagambra, tildurmosa og engjaskrauts í
gróðurhúsi. Meðferðir með hraungambra voru endurteknar fimm sinnum (fjær á mynd)
en fyrir hinar tegundirnar þrisvar sinnum (nær á mynd). Plastyfirbreiðsla með loftgöt-
um var yfir allri tilrauninni, en flettist af fyrstu tveimur endurtekningunum með hraun-
gambra eftir þrjár vikur – A propagation experiment with Racomitrium lanuginosum,
Racomitrium ericoides, Hylocomium splendens and Rhytidiadelphus squarrosus
in a greenhouse. The R. lanuginosum treatments were in five replications (background),
but treatments with other species are in the foreground. The whole experiment was
covered with a plastic sheet with air holes, but the sheet blew off two R. lanuginosum
replications after three weeks and was not replaced. Ljósm./Photo: Magnea Magnúsdóttir.
81_3-4_loka_271211.indd 117 12/28/11 9:13:38 AM