Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 2011, Qupperneq 17

Náttúrufræðingurinn - 2011, Qupperneq 17
121 Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags Hraungambri er mjög þurrkþolinn10 og er áberandi í hraunum hér á landi.11 Gljúpur gjallvikur virðist henta hraungambra vel, enda hefur hann yfirburði í samkeppni við aðrar plöntur í hraunum5 og á þar auðvelt með að vaxa upp af mosabrotum.9 Við frágang eftir rask í hraunum ætti að huga að þessu og gæti betri árangur náðst ef gjallvikur væri not- aður fremur en mold, til að mynda við frágang vegfláa. Myndun nýrra sprota náði mis- munandi langt niður eftir greinum eftir tegundum. Á engjaskrauti mynduðust sprotar alls staðar á greinunum og bendir það til þess að allir bútar engjaskrauts- greina gætu myndað nývöxt ef þeir væru klipptir líkt og gert var við hraungambrann. Á tildurmosa uxu nývaxtarsprotar einnig nokkuð neðarlega, á melagambra einungis ofan við miðja grein en á hraun- gambra aðeins á efsta hluta greina (5. mynd). Vel tókst að fjölga hraun- gambra, melagambra, tildurmosa og engjaskrauti með mosahræringi (9. mynd, 7. mynd). Árangurinn var sístur hjá hraungambra, bæði hvað varðar tíðni og lengdarvöxt en engjaskrautssprotarnir uxu best. Ræktunarárangur virðist því mis- munandi eftir tegundum og er það í samræmi við niðurstöður annarra rannsókna.15 Landnám mosa í hraunum er talið gerast á þann veg að mosabrot festast á ósléttu yfirborði; mosaþúf- urnar vaxa síðan smátt og smátt og mynda að lokum nær samfellda mosaþekju.4 Þetta ferli getur tekið marga áratugi.5 Að mati Ágústar H. Bjarnasonar9 getur nýr stöng- ull auðveldlega myndast á 5 mm löngum brotum af fremsta hluta greina og jafnvel af knöppum með einungis fimm laufblöðum við réttar aðstæður. Í tilraun okkar voru þau hraungamrabrot er höfðu myndað lengstu sprotana í mosahræringi 2–4 mm löng og mögulega hafa þar verið enn minni brot sem voru virk. Þessi tilraun sýndi að hægt var að fjölga algengum mosategundum á árangursríkan hátt í gróðurhúsi með flestum af þeim aðferðum sem próf- aðar voru. Það gefur vísbendingar um að unnt sé að nota mosagreinar, mosabrot eða mosahræring til að flýta endurheimt mosagróðurs eftir rask af virkjunarframkvæmdum, vegagerð, utanvegaakstri eða vegna annars konar skemmda. Hins vegar gefa gróðurhúsatilraunir ekki rétta mynd af þeim aðstæðum sem ríkja á röskuðum svæðum, sérstaklega ekki þegar komið er upp á hálendi. Sumarið 2010 voru því lagðar út til- raunir á röskuðu landi á Hellisheiði, byggðar á þeim niðurstöðum sem hér eru settar fram. Þar var prófað að nota heilar greinar, 1 cm búta efst af greinum og mosahræring til að fjölga sömu tegundum og notaðar voru í þessari tilraun. Ef þær tilraunir skila sambærilegum 9. mynd. Nývöxtur í mosahræringi með melagambra eftir 75 daga. – New growth in a slurry with Racomitrium ericoides after 75 days. Ljósm./Photo: Magnea Magnúsdóttir. 8. mynd. Nývöxtur mosabrota úr mosahræringi eftir 75 daga ræktun. A. hraungambri. B. tildurmosi. – New growth on moss fragments from a slurry after 75 days. A. Racomitrium lanuginosum. B. Hylocomium splendens. Ljósm./Photos: Magnea Magnúsdóttir. A B 81_3-4_loka_271211.indd 121 12/28/11 9:13:48 AM
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.