Náttúrufræðingurinn - 2011, Side 27
131
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
Þann 20. mars árið 2007 féll bergflóð á ofanverðan Morsárjökul í Öræfum
í Austur-Skaftafellssýslu. Bergflóðið er talið með stærri skriðuföllum sem
orðið hafa hér á landi á umliðnum árum og áratugum. Talið er að það hafi
fallið í tveimur hlutum; meginhlutinn féll 20. mars en viðbótarhrun varð
þann 17. apríl 2007. Bergflóðið féll við efri brún jökulsins að austanverðu
og urðin eftir hrunið hylur þar allt að 1/5 af yfirborði jökulsins, eða um
720.000 m2. Urðin er að meðaltali 1500 m löng og um 480 m breið. Brotsár
bergflóðsins í fjallinu ofan við jökulinn er um 330 m hátt. Nær það frá
um 620 m upp í um 950 m hæð yfir sjó og er breidd þess að meðaltali
um 480 m. Heildarmagn þess efnis sem hrundi niður er áætlað um 4–4,5
milljónir m3, eða um 10–12 milljónir tonna. Miklar breytingar hafa orðið
á bergflóðsurðinni og jöklinum eftir að bergflóðið féll. Grófkornótt berg-
flóðsurðin hefur sigið mikið saman og stórgrýti molnað niður. Jökulísinn
undir bergflóðsurðinni er einangraður frá lofthita og geislun og bráðnar
því mun hægar en ísinn umhverfis. Þess vegna hefur orðið eftir þykkur
ísbunki undir urðinni og er þar sístækkandi bunga að myndast á jöklinum.
Talið er að jökulrof og hröð hörfun Morsárjökuls á undanförnum árum og
áratugum, ásamt veikum jarðlögum í berggrunni, sé meginorsök bergflóðsins.
Bergflóðið sem féll á
Morsárjökul 20. mars 2007
Þorsteinn Sæmundsson, Ingvar A. Sigurðsson, Halldór G. Pétursson,
Helgi Páll Jónsson, Armelle Decaulne, Matthew J. Roberts og
Esther Hlíðar Jensen
Inngangur
Þann 20. mars 2007 féll stórt berg-
hlaup á ofanverðan Morsárjökul í
Öræfum í Austur-Skaftafellssýslu (1.
mynd). Þetta berghlaup er af þeirri
tegund skriðufalla sem flokkast sem
bergflóð (e. rock avalanche) og er án
efa eitt af stærstu skriðuföllum sem
orðið hafa hérlendis á síðustu árum
og áratugum.1 Í upphafi var talið
að bergflóðið hefði fallið klukkan
12:31 þann 17. apríl, en þá urðu
menn varir við mikla skruðninga
frá jöklinum og einnig kom fram
órói á skjálftamælum. Seinna kom
í ljós að ferðamenn, sem voru á
ferð um Skeiðarársand, höfðu tekið
ljósmyndir af urðinni þann 5. apríl,
og því er ljóst að bergflóðið var
fallið fyrir þann tíma. Á skjálfta-
mælum kemur fram órói á þessu
svæði þann 20. mars og er talið að
hann megi rekja til bergflóðsins. Af
ummerkjum á vettvangi er auk þess
greinilegt að bergflóðið hefur fallið í
a.m.k. tveimur meginhlutum og þá
dagana 20. mars og 17. apríl eins og
rökstutt hefur verið hér að framan.
Frá því í maí 2007 hafa árlega verið
farnar könnunarferðir að jöklinum
og fylgst með hvaða breytingar hafa
orðið á honum og hrunurðinni í
kjölfar bergflóðsins.
Landslag og staðhættir
Niður úr sunnanverðum Vatnajökli,
milli Skaftafellsjökuls í austri og
Skeiðarárjökuls í vestri, gengur lítill
skriðjökull sem nefnist Morsár-
jökull. Jökullinn gengur niður á
aura Morsár sem fellur frá jöklinum
um samnefndan dal, Morsárdal,
sem umgirtur er allt að 1000–1400
m háum og bröttum fjöllum. Að
austanverðu er Skaftafellsheiði í
um rúmlega 1100 m hæð við Krist-
ínartinda en rís hæst upp í 1385
m við Skarðatind og 1343 m hæð
við Þorsteinshöfða. Að vestanverðu
rísa Skaftafellsfjöll í um og yfir 1000
m hæð og hæst skagar Austur-
hnúta í Miðfelli, upp í um 1084 m
(1. mynd). Um flatan dalbotninn
flæmist Morsá um á eyrum, sem
þaktar eru litríkum rhýólíthnull-
ungum og -steinum, frá því að hún
fellur úr litlu jökullóni innan við
ystu jökulgarða Morsárjökuls og
þar til hún rennur í farveg Skeið-
arár úti á Skeiðarársandi. Morsár-
dal tengja margir við fallegt og
hrikalegt landslag í þjóðgarðinum í
Skaftafelli. Þá er svæðið þekkt fyrir
mikla gróðursæld, sérstaklega gróð-
urvinina í Bæjarstaðarskógi. Svæðið
er vinsælt til útivistar og liggja
nokkrar gönguleiðir um það.
Sjálfur Morsárjökull er um 4 km
langur og 750–900 m breiður neðan
ísfossanna, eða um 3,3 km2 að flatar-
máli. Jökullinn er svonefndur fall-
jökull og sjá tveir ísfossar/ísstraumar
um að fæða hann (2. mynd A og B).
Að vestanverðu er jökullinn enn
tengdur við meginjökulinn með
um 200 m breiðum ísstraumi, en
stór hluti hans fellur fram í miklum
Ritrýnd grein
Náttúrufræðingurinn 81 (3–4), bls. 131–141, 2011
– hverjar hafa afleiðingar þess orðið?
81_3-4_loka_271211.indd 131 12/28/11 9:13:59 AM