Náttúrufræðingurinn - 2011, Side 29
133
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
almenns jökulhops hafi sá sem kom
úr austri, og Ives nefnir Birkijökul,
algerlega slitnað frá Morsárjökli. Á
ljósmyndum sem Sigurður birtir í
grein sinni sést að árið 1937 voru
báðir hinir ísstraumarnir samhang-
andi við megin jökul inn. Á mynd frá
árinu 1952 sést að sá eystri þeirra er
algerlega slitinn frá meginjöklinum
og staðhæfir Sigurður að það hafi
gerst fyrir árið 1942.
Síðan um miðja síðustu öld hefur
Jack D. Ives, í félagi við ýmsa
samstarfsmenn, unnið að rann-
sóknum á jöklum í Öræfasveit, þar
á meðal Morsárjökli.4 Samkvæmt
rannsóknum Ives og félaga hefur
Morsárjökull verið að þynnast
undanfarna öld og miklar breyt-
ingar orðið á honum frá því að hann
náði hámarksútbreiðslu á árunum
1902–1904. Á herforingjaráðskortinu
sem mælt var 1904 sést að Morsár-
jökull hefur þá þegar hopað frá
fremstu görðum. Hann virðist því
hafa náð mestri sögulegri útbreiðslu
um 1890, eins og flestir aðrir jöklar
landsins.5 Mest áberandi var hop
Birkijökuls, en talið er að hann hafi
slitnað frá Morsárjökli um 1934.4
Talsverðar breytingar urðu einnig
á hinum tveimur ísstraumunum. Á
árunum 1937–1938 slitnaði eystri
ísstraumurinn frá meginjöklinum
2. mynd B. Austari ísfossinn í Morsárjökli. Í dag er ísfossinn alger-
lega slitinn frá meginjöklinum fyrir ofan og falla stór ísstykki niður
í tilkomumiklum íshrunum. Leysingarvatnsfoss fellur undan ís-
stálinu líkt og að vestanverðu. – The eastern icefall of Morsárjökull.
Today the icefall is completely separated from the main glacier
above and the outlet glacier is feed by impressive ice avalanches.
A large waterfall can be seen on the eastern side of the glacier.
Ljósm./Photo: Þorsteinn Sæmundsson 2007.
neðst, líkt og hann er nú, en tengd-
ist meginjöklinum í þremur bröttum
ísstraumum eða ísfossum sem voru
samfelldir á þessum tíma. Tveir
ísstraumar féllu niður frá meg-
injöklinum, eins og ísfossarnir nú,
og einn til viðbótar féll niður úr
austri fram undan Skarðatindi, rétt
sunnan við fellið sem bergflóðið
féll úr árið 2007 (1. og 4. mynd).
Rúmlega 50 árum síðar var Sigurður
Þórarinsson á ferð við jökulinn.3
Sigurður lýsir m.a. urðarrananum
sem gengur niður miðjan jökulinn
og getur þess að sitt hvorum megin
við hann sé jökulyfirborð bárótt og
líkast þvottabretti. Þá getur hann
þess, eins og Þorvaldur, að áður hafi
þrír ísstraumar fætt Morsárjökul
en vegna hlýnandi loftslags og
3. mynd. Jökullónið fyrir framan Morsárjökul er um 1,5 km á lengd og allt að 400 m breitt.
Fyrir framan það er jökulgarður sem markar hámarksútbreiðslu Morsárjökuls, en henni
náði jökullinn um 1890. – The ice lake in front of the Morsárjökull glacier is about 1,5 km
long and up to 400 m wide. In front of the ice lake an end moraine zone marks the max-
imum extent of the glacier around 1890. Ljósm./Photo: Matthew Roberts 2007.
2. mynd A. Vestari ísfossinn í Morsárjökli er að hluta til enn tengdur
við meginjökulinn með um 200 m breiðum ísstraumi, en að öðru leyti
fellur jökullinn fram í ísfoss. Að vestanverðu við ísstrauminn fellur
leysingarvatn í tilkomumiklum fossi, en að austanverðu seytlar leys-
ingarvatn niður undan ísstálinu og fellur niður klettabeltið. – The
western icefall of Morsárjökull is still partly connected to the main
glacier by a 200 m wide ice stream. A large waterfall flows from under-
neath the western part of the ice. On the eastern side numerous small
waterfalls occur. Ljósm./Photo: Þorsteinn Sæmundsson 2007.
81_3-4_loka_271211.indd 133 12/28/11 9:14:02 AM