Náttúrufræðingurinn - 2011, Síða 33
137
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
mæld rétt austan við urðarranann
(4. mynd). Þar reyndist þykkt
urðarinnar vera um 3 m en lítil
bráðnun hafði þá orðið á jökulísnum
umhverfis hana (8. mynd A). Í júlí
sama ár hafði jökulísinn umhverfis
urðina bráðnað um 7 m (8. mynd B).
Í ágúst 2008 höfðu bráðnað 12 m til
viðbótar (8. mynd C), um 11 m enn í
ágúst 2009 (8. mynd D), síðan um 9 m
í viðbót í ágúst 2010 (8. mynd E) og
loks höfðu 5 m bæst við í ágúst árið
2011 (8. mynd F). Heildarbráðnun
á yfirborði Morsárjökuls umhverfis
urðina nemur því um 44 m frá því
að bergflóðið féll. Ekki er hægt að
áætla hvort einhver bráðnun eigi
sér stað á ísnum undir sjálfri urðinni,
en ljóst er að urðin hefur mjög ein-
angrandi áhrif á ísinn sem liggur
undir henni. Út frá þessum mæl-
ingum má áætla að rúmmál íssins
sem urðin hlífir og orðið hefur eftir
þegar jökullinn umhverfis bráðnaði
sé um 33 milljónir rúmmetra, eða
tæplega 28 milljónir tonna.
Framskrið jökulsins hefur einnig
verið mælt, bæði með beinum mæl-
ingum á frambrún urðarinnar og
með því að fylgjast með einstaka
stórgrýti í sjálfri urðinni. Frá árinu
2007 hefur frambrún urðarinnar
verið mæld; hefur skriðhraði jökuls-
ins mælst að meðaltali um 80–90 m
á ári og nemur heildarframskrið
jökulsins á þessu tímabili um 340 m
frá landlíkaninu er talið að heildar-
rúmmál bergmassans sem féll á
jökulinn sé um 4 til 4,5 milljónir
m3, eða um 10–12 milljónir tonna.
Urðin féll fyrst þvert efst á jökulinn
og þaðan beygði hún niður undan
halla yfirborðs jökulsins og náði
nokkuð yfir urðarranann rétt neðan
við neðri hluta brotsársins (1. og
4. mynd). Meðallengd urðarinnar
er um 1500 m en hámarkslengd
um 1600 m. Að meðaltali er breidd
urðarinnar um 480 m en hleypur frá
því að vera um 125 m upp í 650 m.
Flatarmál urðarinnar er um 720.000
m2. Urðin féll á jökulinn í um 520 m
hæð og stöðvaðist í um 352 m hæð
og er meðalþykkt hennar um 6–7
m. Jaðrar urðarinnar eru skarpir og
brattir og þar er mikið um stórgrýti
og björg sem eru upp í nokkur
hundruð tonn á þyngd.
Almennt séð er urðin grófkornótt
og bergbrotin köntuð, en stærstu
bergbrotin í henni eru talin vera allt
að 800 tonn að þyngd (7. mynd). Í
fyrstu var lítið fínefni sjáanlegt í
urðinni og sumarið 2007 sást víða í
jökulísinn gegnum hana. Áberandi
straumlínumynstur er á urðinni (4.
mynd) og liggja allt að 3–4 m háir
hryggir í flæðistefnu hennar. Svona
straumlínumynstur hefur komið
fram í öðrum bergflóðum sem fallið
hafa á jökla, t.d. á Sherman-jökl-
inum í Alaska25 og á Little Tahoma
Peak-jöklinum í Washingtonríki í
Bandaríkjunum.30 Fyrsta árið sáust
tvö ketillaga landform í miðhluta
urðarinnar en þvermál þeirra var
um 15 m og dýpt um 7 m. Þessir
katlar voru veggbrattir og í botni
þeirra var ekkert set, einungis
hreinn jökulís. Svipuðum ketillaga
landformum hefur meðal annars
verið lýst í bergflóðsurð í Pamir í
Tíbet,31 en ennþá hefur ekki tekist
að skýra myndun slíkra landforma.
Breytingar á bergflóðs-
urðinni
Árið 2007 voru farnar tvær athug-
unarferðir á Morsárjökul til að kort-
leggja bergflóðið og kanna ummerki
þess. Þá var sérstaklega leitað eftir
því hvort jökulísinn undir urðinni
hefði orðið fyrir einhverju rofi eða
aflögun þegar bergflóðið féll yfir
hann. Ekki sáust nein ummerki rofs
eða aflögunar eða þess að urðin
hefði ýtt á undan sér íshröngli eða
öðru efni af yfirborði jökulsins.
Ekki verður betur séð en að urðin
hafi flotið yfir jökulinn án þess að
valda neinu rofi á yfirborði hans og
er þetta sambærilegt við lýsingar
á bergflóðinu sem féll á Sherman-
jökulinn í Alaska árið 1964.24,25
Í maí árið 2007, um tveimur
mánuðum eftir að bergflóðið féll,
var þykkt frambrúnar urðarinnar
7. mynd. Mjög gróft efni er í
bergflóðsurðinni og margra
tuga tonna björg sjást víða í
frambrún hennar. Þetta bjarg,
um 800 tonn að þyngd, er í
vesturjaðri urðarinnar um 700
m frá brotsárinu. – Very coarse
material is found in the acc-
umulation lobe and boulders up
to several tenths of tons occur
in the frontal part and around
the edges of the lobe. This boul-
der weighs about 800 tons and
is located in the western edge of
the lobe, approximately 700 m
from the fracture zone. Ljósm./
Photo: Þorsteinn Sæmundsson
2007.
81_3-4_loka_271211.indd 137 12/28/11 9:14:04 AM