Náttúrufræðingurinn - 2011, Side 35
139
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
Mælingar sem gerðar hafa verið
á einum punkti við urðarranann
í frambrún jökulsins sýna að frá
2007 til 2009 hopaði jökullinn um
99 m, frá 2009 til 2010 um 38 m og
frá 2010 til 2011 um 78 m, eða um
215 m samanlagt. Þessi hörfun er
nokkru meiri en sporðamælingar
Odds Sigurðssonar og félaga benda
til, en samkvæmt þeirra mælingum
hopaði Morsárjökull um 108 m frá
2007 til 2010 (5. mynd), en þennan
mun má líklega rekja til þess að
mælingarnar voru framkvæmdar á
mismunandi mælistöðum við fram-
brún jökulsins.
Á þeim tíma sem liðinn er frá því
að bergflóðið féll hafa miklar breyt-
ingar átt sér stað á urðinni. Kantaða
stórgrýtið sem einkenndi urðina í
upphafi hefur molnað mikið niður
og víða myndað fíngerðan salla
sem sáldrast hefur niður í urðina.
Öll urðin hefur einnig sigið mikið
saman og þjappast.
Ástæður hrunsins
Morsárjökull, líkt og flestir ef ekki
allir jöklar landsins, hefur hörfað
umtalsvert á liðnum árum og
áratugum, eða nánast alla síðustu
öld, frá því hann stóð við ystu
garða um 1902–1904. Samfara því
að jökulsporðurinn hefur hopað
hratt hefur jökullinn einnig þynnst
mikið og víða skilið eftir sig óstöð-
ugar fjallshlíðar, sem hann áður
svarf úr. Á 4. mynd eru greinileg
ummerki um rof af þessu tagi, bæði
utan í hlíðinni sem bergflóðið féll
úr og lengra niður með jöklinum.
Veikleikar í berggrunni, eins og t.d.
misgengi og sprungur og mismun-
andi stæðni og styrkleiki berglaga
í jarðlagastaflanum í hlíðinni, er
önnur tveggja meginástæðna þess
að fjallshlíðin ofan við jökulinn
hrundi niður undan eigin þunga
og olli bergflóðinu. Hinnar ástæð-
unnar, og ekki minni, er að leita í
jökulrofi og undangreftri í hlíðinni
þegar Morsárjökull var stærstur
og því að ekkert heldur lengur
við hlíðina vegna þess hve mikið
jökullinn hefur hopað. Til að koma
bergflóðinu af stað virðist ekki
öðrum utanaðkomandi ástæðum til
að dreifa. Í því sambandi var farið
yfir veðurfarsgögn frá nærliggjandi
veðurstöðvum en ekkert benti til
óvenjumikilla rigninga eða leys-
inga um það leyti sem bergflóðið
féll. Sama má segja um gögn frá
nálægum jarðskjálftastöðvum en
í þeim fundust engir jarðskjálftar
sem hefðu getað komið bergflóðinu
af stað.
Lokaorð
Bergflóðið sem féll á Morsárjökul í
mars árið 2007 er án efa eitt af stærri
ofanflóðum sem orðið hafa á Íslandi
á undanförnum árum og áratugum,
en þó er það ekkert einsdæmi um
slíka atburði. Bergflóðið er talið hafa
orsakast af undangreftri Morsár-
jökuls þegar hann var stærstur á 19.
öld og í byrjun þeirrar 20. og síðan
hraðri hörfun hans á síðustu árum
og áratugum. Bergflóðsurðin, sem
hylur um 1/5 af yfirborði jökulsins
neðan ísfoss, hefur haft einangrandi
áhrif á jökulinn og veldur því að
jökulísinn undir urðinni bráðnar
ekki nándar nærri eins hratt og
ísinn umhverfis. Þetta leiðir til þess
að yfirborð urðarinnar hækkar hlut-
fallslega miðað við bráðnandi yfir-
borð jökulíssins umhverfis hana, og
9. mynd. Frá því að bergflóðið féll á Morsárjökul hefur jökullinn skriðið fram um 80–90 m
á ári og er heildarfærsla hans frá árinu 2007 um 340 m. – Since the rock avalanche fell
on the Morsárjökull outlet glacier, the accumulation lobe has moved forward with the
glacier ice some 80–90 m/year on the average, or a total of 340 m since the year 2007.
Mynd/Photo: C. Loftmyndir 2007.
81_3-4_loka_271211.indd 139 12/28/11 9:14:10 AM