Náttúrufræðingurinn - 2011, Síða 42
Náttúrufræðingurinn
146
hitastigið lækkaði verulega. Hluti
af drifkrafti þessara strauma er árs-
tíðabundin ísmyndun og bráðnun
á norðurskautssvæðinu og samspil
hitastigs og seltu sem hefur áhrif
á eðlismassa sjávar.24,25 Hreyfing
vatnsmassa í tengslum við árstíða-
bundnar breytingar er hluti af hnatt-
rænu straumakerfi sem temprar
veðurfar milli heimshluta (3. mynd)
Þar sem kaldir og heitir hafstraumar
mætast hrærast upp næringarefni af
hafsbotni og frumframleiðni eykst;
því eru nokkur gjöfulustu fiskimið
jarðar milli Grænlands, Íslands og
Noregs.26
Lægðir myndast við austurströnd
Norður-Ameríku og taka venjulega
stefnuna í norðaustur. Þeim fylgir
hlýtt loft og raki og skipta þær
því sköpum fyrir gróðurfar og
orkulindir sem þrífast á úrkomu,
vindi og öldum. Nú gæti leikmaður
haldið að bráðnun jökla (1. mynd)
hefði áhrif á aðstæður við Græn-
land, þar á meðal veðurfar. Ýmsar
rannsóknir hafa verið gerðar á
áhrifum Grænlands á veðurkerfi í
Norður-Evrópu.27 Sýnt hefur verið
fram á að hálendi Grænlands hefur
áhrif á dýpt og hraða lægða og gætir
þeirra áhrifa langt suður af Hvarfi.
Þetta kemur skýrt fram ef Græn-
land er „tekið út af kortinu“, þ.e. ef
hermilíkönum er beitt til að fylgjast
með því hvaða áhrif það hefði á
gang lægða ef Grænlands nyti ekki
við.28 Þegar reynt er að spá fyrir um
langtímaáhrif bráðnunar á Græn-
landi í Norður-Atlantshafi29 og áhrif
þess að allur jökullinn hyrfi – sem
Dethloff telur ekki fyrirsjáanlegt
næstu 5.000 árin – ber líkönum
ekki saman um eina afdráttarlausa
niðurstöðu. Rannsóknum ber þó
saman um að hitastig fari hækk-
andi á Grænlandi, í Síberíu og
Barentshafi, einkum á veturna.29,30
Enn er þó ógerningur að segja til
um íshulu á sjó á hverjum tíma,
nákvæmt hitastig, hraða bráðnunar,
breytingar í hafstraumum eða flæði
fersks vatns og samverkandi áhrif
þessara þátta á framvinduna.
Woolings hefur tekið saman
yfirlitsgrein um breytingar sem
raunverulega hafa orðið á veður-
fari í Norður-Evrópu og segir afar
erfitt að spá fyrir veðri næstu
áratugi; veðurbreytingar séu alltaf
örar.30 Norður-Atlantshaf og löndin
umhverfis það eru hins vegar talin
sérlega áhugaverð með hliðsjón af
vöktun á viðbrögðum vistkerfa. Til
er sérlega heillegt gagnasafn um
veðurlýsingar á Íslandi meira en 200
ár aftur í tímann31 og jafnframt gefa
ískjarnar úr Grænlandsjökli vísbend-
ingar um veðurfar á jarðsögulegum
mælikvarða. Enn hafa ekki komið
fram óyggjandi sannanir fyrir því
að sveiflur séu öðruvísi nú en fyrr í
Norður-Evrópu, en óvenjumiklar af-
leiðingar nokkurra óveðra hafa verið
skráðar það sem af er 21. öld.9
Í fyrrnefndum sérfræðinga-
skýrslum, sem unnar voru fyrir
norræn yfirvöld, eru bæði lýsingar
á þeim breytingum sem við eigum í
vændum á tilteknum sviðum mann-
og atvinnulífs og heildarmynd af
væntanlegum umhverfisáhrifum.
Sams konar skýrsla var tekin saman
fyrir íslenska umhverfisráðuneytið
árið 2008.31 Hópinn leiddi Halldór
Björnsson, sem einnig er höfundur
bókar um gróðurhúsaáhrif og lofts-
lagsbreytingar sem kom út sama
ár.19
Höfundar íslensku sérfræðinga-
skýrslunnar leggja áherslu á að
sumar breytingar geti gerst hægt
en aðrar hraðar og tekið skamman
tíma.31 Upphaf síðustu ísaldar náði
yfir 50 ára tímabil og henni lauk
með svipuðum hraða. Erfitt er að
fullyrða hvaða veðurbreytingar telj-
ast náttúrulegar sveiflur og hverjar
kunni að vera varanlegar breyt-
ingar. Hins vegar hafa síðustu 50 ár
verið að meðaltali hlýjasta tímabil
á síðustu 1300 árum. Venjan er að
bera saman 30 ár í senn til að sjá
langtímabreytingar og því þýðir
lítið að skoða aðeins veður næst-
liðins áratugar.
Á 20. öld voru hlýindi tíðust á
árunum milli 1930 og 1945 en árin
2003–2007 urðu sambærileg þeim
hlýjustu á því árabili.31 Nýjustu
gögn sýna breytilegt veður án
þess að met séu slegin að einu
eða öðru leyti þrátt fyrir smáhæk-
kandi meðalhita alla tíð frá 1790.
Meðaltalshlýnun hefur verið 0,7°C
á öld; hækkunin nemur +1,2°C á
veturna og +0,2°C á sumrin, sem
telst ekki tölfræðilega marktæk
breyting. Hlýnun að vetri er m.a.
talin komin til af því að minni
ís myndast norðan Íslands, sem
jafnframt þýðir að minna er um
bráðnandi rekís og sjávarhiti því að
jafnaði hærri en áður. Einnig hafa
jöklar hopað frá 1790. Á tímabilinu
1970–1990 var hiti undir meðallagi
og tilgátan sú að tengsl væru milli
þess og loftslagsbreytinga; frá 1990
hefur meðaltalið hins vegar hækkað
aftur.31 Þrátt fyrir umræður meðal
almennings um að skynja megi
breytt veðurfar sýna mælingar að
veður sé, og hafi verið, breytilegt á
Íslandi, án þess að óveður séu tíðari
eða verri en að jafnaði á liðinni
öld. Óstöðugt veður er vanalegt,
hlýrri og svalari tímabil skiptast á
og skemmdir af völdum krappra
lægða eru ekki meiri hér á nýhafinni
öld en á liðinni öld. Hins vegar
hafa lægðir sem gengið hafa yfir
Bretlandseyjar, Danmörku, Svíþjóð
og Finnland frá því um 1990 valdið
tjóni á aldagömlum mannvirkjum.9
Spám, byggðum á niðurstöðum
margra hermilíkana um tíðni slíkra
lægða eða langvarandi stöðugleika,
meðalloftþyngd, úrkomu og lægða-
gang, og þar með líkur á ákveðnu
veðurfari í Evrópu næstu áratugi,
ber ekki saman.30 Framtíðarveðurfar
á Íslandi er því óráðið, en hlýnun
verður að jafnaði minni yfir úthöfum
en á meginlöndum og innhöfum eins
og Eystrasalti. Búist er við mikilli
hlýnun á norðurheimskautinu.19
Afleiðingar hnattrænnar hlýnunar
eru hærra sjávarhitastig og hærri
sjávarstaða sem enn getur sveiflast
í samræmi við loftþrýsting, eins og
þekkt er til dæmis við Eystrasalt. Þar
er hætta á að saltvatn flæði inn og
komist upp eftir ám og í vatnsbólin,
eins og í Danmörku. Á sama hátt er
búist við að á Reykjanesi og suðves-
turhorni Íslands, þar sem byggð
er hvað þéttust, hækki sjávarstaða
verulega því þar er land enn að
síga frá því að ísöld lauk, og gæti
breytingin mest numið samtals um
1 metra á þessari öld.31 Hins vegar
81_3-4_loka_271211.indd 146 12/28/11 9:14:13 AM