Náttúrufræðingurinn - 2011, Qupperneq 43
147
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
má búast við því að land rísi víða
þegar jökulfargi léttir af því.
Framkvæmdastjórn Evrópusam-
bandsins hefur gefið út stefnu um
aðlögun samfélagsins að veðurfars-
breytingum32 eftir víðtækt sam-
ráðsferli við aðildarlöndin. Lögð er
áhersla á að styrkja viðnámsþrótt
í Evrópu að því er varðar heilsu
manna, strandrof, mannvirki og
eignir og viðhalda frjósemi lands
meðal annars með því að vernda
vistkerfi og vatnsbúskap álfunnar. Í
stefnunni er hvatt til þess að orku-
og samgöngustefna landanna verði
tengd annars vegar aðgerðum til
að draga úr útblæstri og hins vegar
stefnu í aðlögun.
Breytingar í lífríkinu
Vart hefur orðið við breytingar í
lífríkinu af völdum hærri meðal-
hita.33 Fuglar hafa leitað norður á
bóginn, en ekki er víst að stofn-
stærðir hafi breyst.34 Hér verður
þó mest litið til þeirra tegunda
sem maðurinn nýtir beint, því að
aðlögunaráætlanir eru miðaðar við
hagkerfi mannsins. Í sérfræðinga-
skýrslunum fyrrnefndu10,12,14,15,16
er talið að landbúnaður flestra
Norðurlandaþjóðanna njóti þess
að vaxtartími lengist og uppskera
aukist. Ef frumframleiðsla gróðurs
verður örari gæti það einnig þýtt
fjölbreyttari ræktunarmöguleika til
manneldis. Norðmenn minnast til
dæmis á ræktun á apríkósum og
ferskjum.15 Í Skandinavíu er nytja-
skógur mikilvægur í pappírsiðnaði
og eru nú bundnar vonir við að
lífrænt eldsneyti, unnið úr skógar-
úrgangi, verði einnig mikilvæg
framleiðsluvara.
Í norsku fiskeldi er einnig gert
ráð fyrir hraðari vexti og betri
fóðurnýtingu vegna hærra hitastigs,
en á móti kemur að minna leysist af
súrefni í hlýrra vatni, sýkingarhætta
vex og blómi eitraðra svifþörunga
gæti orðið tíðari.15 Dönskum sjó-
mönnum er bent á að vera viðbúnir
því að fiskigengd breytist þannig
að þorskur hverfi úr Skagerak en
aðrar veiðanlegar tegundir komi
væntanlega í staðinn.12
Hér á landi hefur fjölbreytni í
ræktun aukist að undanförnu, bygg
þroskar fræ flest haust og innflutn-
ingur á kjarnfóðri sparast; verið
er að rækta repju í tilraunaskyni
og vetrarhveiti er komið í gagnið.
Vorið 2011 var hins vegar kalt og
repjan (sem sáð er til að hausti árið
á undan) náði sér ekki á strik. Vafa-
samt er að repjuolíu geti komið í stað
eldsneytis, einkum vegna lélegrar
orkunýtni. Ef öll plantan er notuð
í fóður og olían notuð til mann-
eldis (Gísli Viggósson, munnl. uppl.)
horfir málið hins vegar öðruvísi við.
Íslensk stefnumörkun í loftslags-
málum tekur mið af því að binda
kolefni með skógrækt. Á Grænlandi
hefur áhugi á skógrækt einnig
vaxið.36 Í Noregi hefur gróðursetning
nýrra skóga verið gagnrýnd fyrir að
taka ekki með í losunarreikningana
það magn kolefnis sem losnar úr
jarðvegi þegar hann er plægður
áður en tré eru gróðursett.36 Fyrstu
árin er því sá koltvísýringur sem
losnar meiri en sá sem binst og þarf
áratuga vöxt til að hefja raunveru-
lega koltvísýringsbindingu.
Ódýrasta aðgerðin á Íslandi til
að draga úr losun koltvísýrings
og binda hann er þó endurheimt
votlendis þar sem gróðurleifar rotna
síður í köldu og súru vatni en safnast
fyrir í jarðvegi.37 Viðbúnaður getur
tekið á sig margar myndir, rétt eins
og aðferðir við að draga úr útblæstri,
og sums staðar geta aðgerðir hald-
ist í hendur. Endurheimt votlendis
getur dregið úr flóðahættu vegna
árstíðabundinna úrkomusveiflna
og hækkun vatnsborðs í mýrum
getur hægt á rofi af völdum yfir-
borðsvatns.
Nýjar tegundir skordýra og
sveppa, sem leggjast á nytjajurtir,
hafa sest að á norðlægum slóðum
í Skandinavíu38 og Íslandi.39 Land-
nemar sem gerðu vart við sig á
liðinni öld eru orðin lífseigari vegna
mildari vetra eða tímgast örar vegna
hærri hita um sumur, og ógna þessir
nýbúar jafnvægi í náttúrulegum
vistkerfum. Vísindamenn hafa verið
fengnir til að kortleggja hættu af
völdum nýrra skordýra og stinga
upp á leiðum til að nýta lífrænar
varnir gegn tjóni af þeirra völdum.38
4. mynd. Far makríls á sumrin. Rauðir punktar norðan og norðvestan Íslands sýna hvar
makríls hefur orðið vart á undanförnum tíu árum. Þrír meginstofnar makríls hrygna við
Íberíuskaga, vestan Írlands og í Norðursjó, en hann hrygnir einnig umhverfis Ísland. –
Area where Mackerel migrates during summer season. Stars North and West of Iceland
show places where the species has been detected over the last decade. The three major popu-
lations spawn near Iberia, west of Ireland and in the North Sea although spawning also
occurs around Iceland.40
81_3-4_loka_271211.indd 147 12/28/11 9:14:14 AM