Náttúrufræðingurinn - 2011, Page 63
167
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
síðla sumars þrátt fyrir litlar breytingar í stofnstærð og
nú er svo komið að æ stærri hluti stofnsins gengur inn
á íslensk hafsvæði eftir hrygningu á sumrin. Athuganir
Hafrannsóknastofnunarinnar 2009 sýndu að makríl var
að finna á öllum svæðum innan landhelginnar nema
Norðvesturmiðum, sem ekki voru könnuð. Íslenski
veiðiflotinn hefur brugðist við breyttu göngumynstri
makrílsins og sótt með vaxandi þunga í stofninn. Hefur
aflinn innan lögsögunnar farið úr 20 þúsund tonnum
2002 í 112 þúsund tonn 2009.
Hryggleysingjar
Mikill straumur þistilfiðrilda (Vanessa cardui) upp-
hófst frá Suður-Evrópu norður eftir álfunni um miðjan
maí. Þann 30. maí sáust fiðrildi í þúsundatali í Fær-
eyjum og í byrjun júní náði straumurinn að einhverju
ráði til Íslands. Til að byrja með bárust flestar tilkynn-
ingar frá Reykjanesi og Reykjavík en þegar frá leið
fréttist af gestunum víðar. Í byrjun júlí höfðu þau sést
á nokkrum stöðum á Snæfellsnesi og 7. júlí sást fiðrildi
á flugi við Kringilsárrana norðan Vatnajökuls.
Árið reyndist trjágeitungum (Dolichovespula nor-
wegica) hagstætt og virtust þeir þrífast vel í hlýindum
og þurrkatíð sumarsins. Í ágúst voru trjágeitungsbú
mun fleiri en 2008 og farin að klekja út nýrri kynslóð
drottninga. Holugeitungar (Vespula vulgaris) voru
seinna á ferð, en lítið fór fyrir roðageitungum (Vespula
rufa) og húsageitungs (Paravespula germanica) varð
ekki vart á árinu, frekar en síðasta ár, og vera má að
tegundin sé horfin á braut eftir nokkur óhagstæð ár.
Hinn illræmdi nýbúi spánarsnigillinn hélt land-
námi sínu áfram og fundust nú tvö dýr í Vestmanna-
eyjum og hið þriðja í Mosfellsbæ. Í Kópavogi fannst
snigill um mitt sumar og í september fundust á sama
stað 14 spánarsniglar. Auk þessara tilfella barst til-
kynning frá Hofsósi, en þar fannst snigillinn í innfluttu
salati og verður það að teljast tilfallandi atvik.
Nýlegur landnemi vakti nokkurt umtal og kom
það ekki af góðu einu. Umræddur landnemi er
skógarmítillinn (Ixodes ricinus), sem er blóðsuga
á fuglum og spendýrum. Útbreiðslan hefur verið
að færast norðar á bóginn í Evrópu með hlýnandi
loftslagi, og virðist hann vera búinn að ná bólfestu
kenna um. Þarna urðu talsverðar skemmdir þegar stórt
bjarg féll beint á sjónvarpsendurvarpsstöð á Snjalleyri
og eyðilagði hana. Á vormánuðum varð vart við mikið
berghrun í Drangey, í nágrenni uppgöngunnar á eyjuna,
þar sem stórar blokkir, nokkur tonn á þyngd, höfðu
fallið niður. Þá má einnig geta þess að 29. maí varð vart
við grjóthrun úr Þverfellshorni í Esju og mátti rekja það
til snarps jarðskjálfta sem varð við Fagradalsfjall norð-
austur af Grindavík.
Gróðurfar
Vöktun Náttúrufræðistofnunar á frjómagni í andrúms-
lofti sýndi að heildarfjöldi frjókorna í Reykjavík var
3.911 í rúmmetra lofts, sem er yfir meðallagi síðustu
20 ára, en á Akureyri urðu frjókornin 2.330 í rúmmetra
lofts, eða um 14% undir meðallagi áranna 1998–2008.
Pípusveppurinn kornasúlungur (Suillus granulatus)
fannst í fyrsta sinn á Íslandi undir ungum stafafurum,
neðan við eldri barrtré, í Miðhálsstaðaskógi í Öxnadal
í ágúst. Sveppurinn vex með furu í frekar frjóum
jarðvegi í Skandinavíu og Finnlandi.
Ástand sjávar
Í samantekt Hafrannsóknastofnunarinnar á ástandi
sjávar kemur fram að hiti og selta í yfirborðslögum
sjávar umhverfis landið var um eða yfir meðallagi
og vel yfir því síðari hluta ársins. Síðari hluta maí
var vorhámark svifgróðurs yfirstaðið í Faxaflóanum.
Utar á landgrunninu vestan landsins og norður um
að Húnaflóa var vorkoma gróðurs vart hafin, en næst
landi var vöxtur gróðurs hins vegar kominn vel af
stað. Út af Norðurlandi, austan Húnaflóa og austur
um land var mikill þörungablómi og verulega farið
að ganga á næringarefnaforðann. Vestur með landinu
sunnanverðu var gróður í vexti, einkum næst landi, en
farið að ganga talsvert á næringarefnaforðann. Magn
átu var víðast hvar minna vorið 2009 en 2008.
Útbreiðsla margra sjávarfiska á Íslandsmiðum hefur
tekið umtalsverðum breytingum undanfarin ár í kjölfar
hækkandi sjávarhita. Ein umfangsmesta breytingin er
vafalaust sú sem orðið hefur á göngumynstri makríls
(Scomber scombrus). Frá árinu 1996 hefur hann sífellt
verið að færast norðar og vestar í fæðugöngum sínum
Pípusveppurinn kornasúlungur. Ljósm.:
Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir.
Þistilfiðrildi. Ljósm.: Erling Ólafsson. Roðageitungur. Ljósm.: Erling Ólafsson.
81_3-4_loka_271211.indd 167 12/28/11 9:14:27 AM