Náttúrufræðingurinn - 2011, Page 68
Náttúrufræðingurinn
172
Frá afmælisfundi Hins íslenska náttúrufræðifélags. Við borðið sitja Ásborg Arnþórsdóttir, Jón Gunnar Ottósson, Svandís Svavarsdóttir,
Katrín Jakobsdóttir, Helgi Torfason, Eygló Friðriksdóttir og Hilmar J. Malmquist. Ljósm. Helgi Guðmundsson.
Afmælisfundur Hins
íslenska náttúrufræði-
félags
Hið íslenska náttúrufræðifélag var
stofnað þann 16. júlí 1889 og fagn-
aði félagið 120 ára afmæli árið 2009.
Stjórn félagsins ákvað að minnast
þessara tímamóta með málþingi
sem fjallaði um Náttúruminjasafn
Íslands, en allt frá stofnun hefur
félagið barist fyrir því að koma upp
veglegu safni fyrir almenning um
náttúru landsins. Afmælisfundur
Hins íslenska náttúrufræðifélags var
haldinn 28. desember 2009 í Bókasal
Þjóðmenningarhússins en í því húsi
starfaði Náttúrugripasafnið á fyrri
hluta síðustu aldar. Yfirskrift fund-
arins var „Náttúruminjasafn Íslands
– Hvernig safn viljum við eignast?“.
Fengnir voru þrír fyrirlesarar til að
velta fyrir sér þessari spurningu,
þau Guðmundur Páll Ólafsson, nátt-
úrufræðingur og rithöfundur, Sig-
urjón Baldur Hafsteinsson, lektor í
safnfræði við Háskóla Íslands, og
Ólöf Ýrr Atladóttir ferðamálastjóri.
Þá hélt formaður félagsins, Kristín
Svavarsdóttir, erindi um 120 ára
sögu HÍN. Eftir afmæliskaffihlé var
pallborðsumræða sem bæði Katrín
Jakobsdóttir menntamálaráðherra
og Svandís Svavarsdóttir umhverfis-
ráðherra tóku þátt í ásamt Ásborgu
Arnþórsdóttur, ferðamálafulltrúa
uppsveita Árnessýslu, Eygló Frið-
riksdóttur, skólastjóra Sæmundar-
skóla í Reykjavík, Helga Torfasyni,
safnstjóra Náttúruminjasafns Íslan
ds, Jóni Gunnari Ottóssyni, forstjóra
Náttúrufræðistofnunar Íslands, og
Hilmari J. Malmquist, ritara HÍN.
Tæplega 100 manns sóttu afmælis-
fundinn sem tókst vel.
Um höfundinn
Kristín Svavarsdóttir (f.
1959) hefur verið formað-
ur Hins íslenska náttúru-
fræðifélags frá 2002. Hún
lauk doktorsprófi í plöntu-
vistfræði frá Lincoln-
háskóla í Nýja-Sjálandi.
Kristín er sérfræðingur í
vistfræði hjá Landgræðslu
ríkisins.
Póstfang höfundar
Kristín Svavarsdóttir
Landgræðsla ríkisins
Keldnaholti
IS-112 Reykjavík
kristin.svavarsdottir@land.is
Guðmundur Páll Ólafsson, Sigurjón Baldur Hafsteinsson og Ólöf Ýrr Atladóttir fluttu erindi á afmælisfundi Hins íslenska náttúrufræðifélags.
Ljósm. Helgi Guðmundsson.
81_3-4_loka_271211.indd 172 12/28/11 9:14:36 AM