Ægir

Volume

Ægir - 01.10.2011, Page 19

Ægir - 01.10.2011, Page 19
19 S J Ó F E R Ð A M I N N I N G A R ið í löngum saltfisktúrum en það varð aldrei ónýtt hjá okk- ur,“ segir Jón Hjaltason, fyrsti matsveinn. Mjólkin er líka geymd í kæliklefanum þar sem henni hættir til að krapa. Hún end- ist í tíu til tólf daga en eftir það munu karlarnir nota þynnta dósamjólk í kaffið og út á morgungrautinn. Þeir eru mishrifnir af henni en eiga ekkert val. Einhver kallar: „Glói, er heitt á könnunni?“ Allir eiga sitt viðurnefni. Kyndarinn, Pétur Kristjánsson Grímseyingur, er aldrei kall- aður annað en Pétur Þjóð- verji. Enginn veit af hverju. Annar er kallaður Tarsan. Sá heitir réttu nafni Ingólfur Guðmundsson og er Siglfirð- ingur og bróðir hins alþekkta Guðmundar skíðakóngs. Ing- ólfur er vissulega vel að manni en skipsfélagar hans segja hávaðann í honum og fyrirganginn minna þá á þessa frægustu sögupersónu heimsbókmenntanna og það sé skýringin á nafninu. Ann- ars varast þeir að ergja Ingólf, ekki vegna krafta hans heldur hinnar beittu tungu sem hann býr yfir. Glói er sjálfur fyrsti kokk- urinn. Fæstir skipsfélagar hans vita hvaðan auknefnið er komið en hann er aldrei kallaður Jón, aðeins Glói. Sumir vita jafnvel ekki hvað hann heitir réttu nafni. „Þetta var raunar stytting á glókollur,“ útskýrir Jón. „Þeg- ar ég var fimm ára patti byrj- aði ég að flækjast á sjóinn með Manga gamla heyrnar- lausa sem bjó á Oddeyrinni. Hann reri á smáhorni og fór oftast aðeins út á Pollinn en þegar vel viðraði fórum við stundum út fyrir Tanga. Gamli maðurinn var með handfæri og línuspotta en aflann setti hann á kerru og seldi á götuhorninu þar sem Norðurgata og Gránufélags- gata mætast. Hann kallaði mig aldrei annað en glókoll- inn sinn. Þegar tímar liðu styttist nafnið og varð Glói.“ Á meðan kokkarnir kepp- ast við að gera sjóklárt er Harðbak lagt að olíubryggj- unni, fyrir framan frystihús KEA, og olíunni dælt út í skipið úr tönkunum sem standa á kambinum norðan við frystihúsið. Klukkan er að verða fimm síðdegis. Skipstjórinn, Áki Stefáns- son, færir í skipsbókina: „Brottför ákveðin kl. 18.00.“ Var ekki „blautur“ Á meðan hásetarnir hreiðra um sig tekur Áki stefnuna út fjörðinn. Þetta er fyrsti túrinn hans í skipstjórastólnum á Harðbak. Kallinn, Vilhelm Þorsteinsson, liggur veikur heima í rúmi. Áki horfir hugsandi út um brúargluggann. Hann veit að hann er með gott skip í höndunum. Tækjabúnaður skipsins er þó ekki merkileg- ur miðað við það sem á síðar eftir að verða en þó síst verri en tíðkast á 6. áratugnum. Tveir dýptarmælar og ein fisksjá eru geymdar í kassa í brúnni. Þegar siglt er nærri ströndinni stýrir hann eftir vitum, landsýn og ratsjánni en þegar kemur á úthafið hefur Áki ekki annað til að ákvarða stöðu skipsins en kompás og logg, sem skipið dregur á eftir sér, og sextant sem er þó aðeins hægt að nota í góðviðri þegar sér til himins. Á fjögurra stunda fresti færir Áki inn í leiðar- bókina, loggið, sem mælir sigldar mílur, veðrið og stefn- una. Eftir þessum upplýsing- um þarf hann að hitta á mið- in við Nýfundnaland og svo Okkar bestu jóla- og nýárskveðjur Kafli úr bókinni Upp á líf og dauða segir frá undirbúningi veiðiferðar Harðbaks á Nýfundnalandsmið í upphafi árs 1959. Tafir sem urðu á brottför skipsins frá Akur- eyri gætu hafa skipt sköpum um að skipið var ekki komið með meiri afla en raun bar vitni þegar óveðrið á Nýfundnalandsmiðum skall á. Málin rædd á heimstími af Nýfundnalandsmiðum. Karlarnir standa aftur í gangi undir bátadekkinu þar sem allt fylltist af ís, meira að segja á milli stoðanna hægra megin sem héldu dekkinu uppi. Íshellirinn náði fram að bobbingunum en hitinn úr eldhúsinu kom í veg fyrir að ísinn hlæðist á vegginn upp af þeim og gluggann, sem sést örlítið í, næst okkur á myndinni.

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.