Ægir

Årgang

Ægir - 01.10.2011, Side 27

Ægir - 01.10.2011, Side 27
27 Í S I G L I N G U M Hafnarstræti 99-101 600 Akureyri s. 461-3006 Gleðileg jól og farsælt komandi ár! www.janus.no Laugavegi 25 101 Reykjavík s. 552-7499 100 % Merino ull tvo daga, en ég fer í leyfi til Malmö, enda á ég þar fjölda vina en auk þess eru börn mín tvö stödd þar í atvinnu- leit. Nú ganga bara flugbát- arnir milli Kaupmannahafnar og Malmö en stóru ferjurnar eru hættar. Það er tap á fleiru en flugfélögunum. Eftir leyfið er ég aftur um borð; allir hafa í nógu að snúast, það er tek- inn kostur og tollur, varahlut- ir og viðhaldsgögn. Skipið liggur, eins og vant er, segja sumir, „úti í rassgati“, þar er með öðrum orðum langt í bæinn, en lítil krá, Sundakro- gen, er í nálægri götu og þar fá menn sér einn og einn eða fleiri bjóra og Jagermester eða Álaborgarákavíti sem er svo skolað niður með meiri bjór. Það er svo með ánægju sem menn leysa landfestar og stefnan er tekin á Svendborg. Það er víða fallegt í dönsku sundunum og vissu- lega er leiðin inn til Svend- borgar falleg, margt sem gleður augað. Í landi gefur að líta falleg lítil og stór gömul hús, græna velli og skógar- reiti alveg niður í sjó, á sjón- um hraðbáta, róðrarbáta, sigl- ara, skemmtisnekkjur, gamlar skonnortur og kúttera auk fjölda annara fleytna sem erf- itt er að gefa nöfn. Uppi í dokk sjáum við kunnuglegt skip, Arnarfellið, þar er pússað, slípað og mál- að og gert við og okkur er sagt að væntanlega verði það afgreitt á undan okkur. Það er svo sem í lagi. Svendborg er ágætur staður. Sambandsmenn eru hér nán- ast á heimaslóðum, svo mikil viðskipti hefur Sambandið í Svendborg og svo oft komum við hingað, sjómenn Sam- bandsins. Mælifellinu er lagt upp að biðkaja. Og viti menn; þarna trónar stór sandbingur. Svo oft hefur Mælifellið tekið sand, malar- eða grjótfarma að undanförnu, að áhöfnin er farin að hafa það sér til gam- ans að benda á grjót eða mal- arbingi í landi og segja sem svo; Ætli þeir á skrifstofunum hafi ekki frétt af þessari hrúgu? Og svo lendum við hjá þessari hrúgu í Svend- borg. Farmurinn héðan verður hinsvegar fóður, bæði laust og sekkjað, en þar sem við komum um hádegi á laugar- degi er ekkert lestað fyrr en eftir helgi. Í vélinni er aftur á móti unnið mikið. Ráðist er í að þvo og mála vélarreisnina, keisinn, en það er verk sem ekki verður unnið nema við land, því það þarf að klifra upp um rjáfur og rafta og ganga línudans eftir bitum og plönkum. Dekkliðið hamast við að þrífa lestarnar, því illa bland- ast saman danskt fóður og kríolít frá Grænlandi og vafa- samt um nytina í eyfirskum kúm ef þærr ættu að bryðja grænlenskt grjót með fóðrinu. Jói bátur stjórnar liði sínu við hreinsunina og svo er stillt upp skilrúmum fyrir lausa fóðrið og loks er allt orðið svo fínt að halda mætti ball. Við erum sex daga í Svendborg, því svo fór að Arnarfellið var lestað á undan okkur. En dagarnir eru vel notaðir. Eftir hreinsunina í lestunum, málar dekkliðið ut- anborðs allt niður að sjólínu, en vélarliðið málar, tekur upp dælur og gerir við ljós. Á kvöldin eiga menn frí og það er farið í könnunar- ferðir í verslunarhverfið, farið í bíó, á bjórbúllur eða diskó- tek, allt með heiðri og sóma, en einstök atvik krydda til- veruna. Einn félaginn er svo upp- tekinn að hann gáir ekki að sér, gengur á gosbrunn og fellur marflatur ofan í vatnið. Þegar hann rís upp situr önd á höfði hans. Og svo flýgur allur flokkurinn upp með fjaðraþyt og söng, en vinur- inn reynir að komast upp úr gosbrunninum – og fellur þá ofan í aftur. Félagi hans er þá Mælifellið við „bryggjuna“ í Ivigtut á Grænlandi.

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.