Ægir - 01.10.2011, Síða 34
34
N E Y T E N D U R
568-0100 • stolpi@stolpiehf.is • www.stolpiehf.is
Frystigámar • Sala & leiga • 20 & 40 ft.
Vantar þig
frystirými ?
Seljum einnig gáma hús, geymslu gáma og sal ernis hús í
ýms um stærðum og gerð um. Útvegum sérlausnir, sniðnar
að þörf um viðskiptavina okkar. Hafðu samband!
stolpi-aegir-A4-augl-3.indd 1 8.9.2011 17:36:23
Út er komin skýrsla Matís
með niðurstöðum úr rannsókn
sem sett var upp með það að
markmiði að kanna neyslu-
venjur og viðhorf tengd sjávar-
fangi hjá Íslendingum á aldr-
inum 18-80 ára.
Könnun var sett var upp á
netinu og bréf send til úrtaks
frá Hagstofu Íslands í júní
2011 og bárust svör frá 525
manns. Markmiðið var jafn-
framt að skoða breytingar
sem orðið hafa á viðhorfum
og fiskneyslu Íslendinga frá
því síðustu tölur voru birtar
árið 2006 fyrir fólk á aldrin-
um 18-26 ára. Viðhorf og
neysla Íslendinga voru greind
eftir kyni, aldri, búsetu,
menntun, mánaðartekjum
heimilis fyrir skatt, fjölda í
heimili og fjölda barna undir
18 ára í heimili.
Að meðaltali borða Íslend-
ingar fisk sem aðalrétt um
tvisvar sinnum í viku. Ýsa er
vinsælasta tegundin á borð-
um landsmanna og er neytt
um einu sinni í viku, en næst
á eftir er þorskur. Að jafnaði
taka Íslendingar lýsi um fjór-
um sinnum í viku, en alls
tekur um helmingur lands-
manna lýsi daglega og 62%
þrisvar í viku eða oftar. Al-
mennt virðast Íslendingar oft-
ar borða ferskan en frosinn
fisk og afar lítið er keypt af
tilbúnum fiskréttum kældum
eða frosnum. Viðhorf til þess
að borða fisk eru almennt
mjög jákvæð og langflestir
telja fisk hollan og góðan.
Flestir telja að fjölskylda hafi
mest hvetjandi áhrif varðandi
neyslu fisks og að rýmri fjár-
hagur, auðveldara aðgengi að
ferskum fiski og meira úrval
af fiski gæti haft áhrif til auk-
innar fiskneyslu.
Mikill munur er á fisk-
neyslu og viðhorfum karla og
kvenna. Konur kaupa frekar í
matinn og leggja meiri
áherslu á hollustu, ferskleika,
aðgengi og verð. Þær eru
jafnframt frekar þeirrar skoð-
unar að það sé dýrt að borða
fisk. Verulegur munur reynd-
ist á aldurshópum, bæði hvað
varðar heildar fiskneyslutíðni,
neyslu mismunandi fiskaf-
urða og viðhorf. Fiskneysla
eykst með aldri, sem og lýsis-
neysla. Áhersla á hollustu er
minni meðal yngra fólks.
Munur kom fram í neyslu-
hegðun og neyslu mismun-
andi fisktegunda og afurða
eftir búsetu sem líklega má
að stórum hluta útskýra með
hefðum og ólíku framboði af
fiski. Flestir, sérstaklega fólk í
eldri aldurshópum, telja frem-
ur dýrt að borða fisk. Hins
vegar finnst þeim fiskur frek-
ar peninganna virði en þeim
sem yngri eru. Svo virðist þó
sem yngsti hópurinn sé jafn-
vel tilbúinn til að borga meira
fyrir fisk, þar sem þeirra
skoðun er að meira úrval af
tilbúnum fiskréttum og fisk-
réttum á veitingastöðum gæti
haft áhrif til aukinnar fisk-
neyslu.
Jákvæðar breytingar hafa
átt sér stað í fiskneyslu og
viðhorfum fólks á aldrinum
18-26 ára á síðustu fimm ár-
um. Þessi hópur er nú meira
fyrir fisk og fiskneyslutíðni
hefur aukist nokkuð sem
skýrist helst af aukinni fisk-
neyslu utan heimilis. Lýsis-
neysla og fjölbreytni í vali
sjávarfangs virðist hafa aukist.
Í þessum aldurshópi hefur
orðið aukning í neyslu á
ferskum fiski, sushi, saltfiski
og á kældum hálf-tilbúnum
réttum.
Fiskveiðiþjóðin farin að
borða meiri fisk!
Ýsa er vinsælasti matfiskurinn á Íslandi og fiskur er að jafnaði aðalréttur tvisvar í
viku.