Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.10.2011, Qupperneq 56

Ægir - 01.10.2011, Qupperneq 56
56 „Ármann Sigurðsson var dæmigerður sjómaður hvað líkamlegt ástand varðaði en áhugasamari en flestir aðrir og afar fróðleiksfús. Hann skar sig líka úr með því að fylgja öllum leiðbeiningum, ekki bara svona nokkurn veg- inn heldur alveg bókstaflega! Fólk með svo einbeittan vilja til að breyta lífstíl sínum nær verðskulduðum árangri,“ segir Sonja Sif Jóhannsdóttir, for- varnarfulltrúi TM, um „tilfell- ið“ Ármann á Vilhelm Þor- steinssyni, sem hún nefndi al- veg sérstaklega í ávarpi á málþingi Sjávarklasans í Mar- el í nóvember síðastliðnum. Hún skrifaði upphaflega meistaraprófsritgerð um heilsufar sjómanna og var af því tilefni um borð í togara Brims hf., Guðmundi í Nesi, í veiðiferð, fylgdist með um mannlífinu og mataræðinu um borð og ræddi við skip- verjana í hópum eða eins- lega. Ritgerðin varð síðar til þess að TM bauð henni starf sem forvarnarfulltrúi og hún hefur ekki síst beint athygli að sjómönnum og heilsu þeirra. Rannsóknir benda til þess að þrír af hverjum fjór- um íslenskum sjómönnum séu of þungir, sem er umtals- vert hærra hlutfall en hjá þjóðinni í heild. Stutt á milli líkamslegs og andlegs ástands „Séu menn ekki þokkalega á sig komnir líkamlega hefur það jafnan neikvæð áhrif á andlega ástandið líka eða öf- ugt. Stundum er talað um að karlmenn eigi erfitt með að tjá sig um líðan sína en ég upplifði allt annað í einka- samtölum við sjómenn. Þeir lýstu því til dæmis opinskátt ef þeim leið ekki vel og þeir voru kvíðnir eða daprir. Svefnleysi kom líka við sögu og þar með skortur á hvíld. Eftir að ég dvaldi um borð í Guðmundi í Nesi var ákveðið að lengja vaktir skipverja úr sex tímum í átta og þá hvíld- ust menn betur á frívaktinni. Þannig má breyta hugsunar- hætti og ýmsu í daglegu lífi, sem hefur jafnvel mikil já- kvæð áhrif á mannskapinn og líðan hans. Mataræði og hreyfing skipta þar höfuðmáli en fleira getur komið til. Að- alatriðið er að greina vand- ann, fara vel yfir málið í hópnum og að fullvissa menn um að vera sjálfir reiðbúnir að breyta lífstílnum eða við- teknum venjum. Þá lætur ár- angurinn ekki á sér standa.“ AVS rannsóknasjóður hefur að markmiði að styrkja verkefni, sem stuðla að auknu verðmæti íslensks sjávarfangs og styrkja samkeppnishæfni íslensks sjávarútvegs og fiskeldis. Sjóðurinn auglýsir nú eftir umsóknum í verkefni með þetta að markmiði. Skilafrestur umsókna er til kl. 17, 1. febrúar 2012. Umsóknum ber að skila rafrænt á netfangið avs@avs.is og bréflega á póstfangið AVS rannsóknasjóður í sjávarútvegi, Háeyri 1, 550 Sauðárkrókur Styrkir sem sjóðurinn veitir falla undir þrjá flokka: a. Styrkir til rannsókna- og þróunarverkefna Styrkir til afmarkaðra rannsókna- og/eða þróunarverkefna, sem falla að markmiðum sjóðsins. Veittur er styrkur til eins árs í senn og skal í umsókn gera grein fyrir verkþáttum og fjármögnun. Hver styrkur getur numið allt að átta milljónum króna. Hægt er að sækja um styrki til umfangsmeiri verkefna (framhaldsverkefna), sem unnin eru á lengri tíma, eða allt að þremur árum, en sækja þarf um styrk á hverju ári. Hafi verkefnið áður verið styrkt, þarf að gera grein fyrir fullnægjandi framvindu verkefnisins áður en styrkumsókn er afgreidd. b. Smá- eða forverkefni Hægt er að sækja um styrki til smærri verkefna eða verkefna til undirbúnings stærri verkefna á sviði rannsókna og/eða þróunar. Styrkupphæð er allt að einni milljón króna og skal verkefninu lokið innan tólf mánaða frá úthlutun. c. Atvinnuþróun og nýsköpun í sjávarbyggðum Veittir eru styrkir til verkefna, sem stuðla að nýjum störfum og aukinni verðmætasköpun í sjávarbyggðum. Horft er til ýmissa verkefna, sem geta tengst t.d. framboði á sjávarfangi, ferðaþjónustu, nýjum vörum eða þjónustu. Hámarkstími verkefna er 12 mánuðir og hámarksupphæð styrkja er þrjár milljónir króna. Um alla styrki gildir að framlag sjóðsins má ekki fara fram yfir 50% af heildarkostnaði og sjóðurinn tekur ekki þátt í að styrkja fjárfestingar. Nánari upplýsingar og umsóknarblað er að finna á heimasíðu sjóðsins www.avs.is. AVS rannsóknasjóður í sjávarútvegi starfar á vegum sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins og veitir styrki til rannsókna- og þróunarverkefna sem auka verðmæti sjávarfangs. AVS rannsóknasjóður í sjávarútvegi ∙ Háeyri 1 ∙ 550 Sauðárkrókur ∙ sími 453 6767 ∙ www.avs.is AVS rannsóknasjóður í sjávarútvegi auglýsir eftir umsóknum H E I L S A S J Ó M A N N A Dæmigerður sjómaður Sonja Sif segir Ármann hafa verið fróðleiksfúsan hvað bætt líferni varði og hafa fylgt öllum leiðbeiningum nákvæmlega. „Fólk með svo einbeittan viljan nær verð- skulduðum árangri,“ segir Sonja Sif sem sagði sögu Ármanns á málþingi Sjávar- klasans nú í haust.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.