Gerðir kirkjuþings - 1970, Side 4

Gerðir kirkjuþings - 1970, Side 4
Þingskrifarar voru kjörnir þeir Þórður Tómasson og Ástráður Sigursteindórsson. Þá flutti biskup skýrslu um störf kirkjuráðs og yfirlit yfir málefni kirkjunnar. Á þriðja fundi voru kjörnar tvær fastanefndir samkvæmt þingsköpum. 1 löggjafarnefnd voru kosnir: Sr. Bjarni Sigurðsson, sr. Sigurður Guðmundsson, Ástráður Sigursteindórsson, Ásgeir Magnússon, sr. Eiríkur J. Eiríksson, sr. jóhann Hannesson, sr. Gunnar Árnason. í allsherjarnefnd hlutu sæti: Sr. Sigurður Kristjánsson, Gunnlaugur Finnsson,, jósefína Helgadóttir, sr. Pétur Þ. Ingjaldsson, Margrét Gísladóttir, sr. Trausti Pétursson, Þórður TÓmasson. Formaður löggjafarnefndar var kosinn sr. Bjarni Sigurðsson, ritari Ásgeir Magnússon. Nefndarfundir voru 7- Formaður allsherjarnefndar var kosinn sr. Sigurður Krist- 'jánsson, ritari sr. Trausti Pétursson. Fundir nefndar- innar voru einnig 7. í þingfararkaupsnefna voru kosnir: sr. Sigurður Guðmundsson, Gunnlaugur Finnsson, Ástráður Sigursteindórsson. Nýkjörið Kirkjuþing skal samkvæmt lögum kjósa 4 menn í kirkjuráð. Kosning fór fram fimmtudaginn 5. nóvember. Kirkju- ráðsmennirnir sr. jón Þorvarðarson og Páll V.G. Kolka, sem átt hafa sæti í kirkjuráði um langt skeið, lýstu yfir þvx, að þeir gæfu ekki kost á sér til endurkjörs. Þökkuðu þeir gott samstarf og biskup flutti þeim þakkir fyrir störfin.

x

Gerðir kirkjuþings

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.