Gerðir kirkjuþings - 1970, Blaðsíða 7
1970
7. Kirk.juþlng
1. mál
Frumvarp tll laga um bálfarir.
1. gr.
Líkbrennsla skal leyfð hér á landi í stofnunum, bálstofum, sem
til þess eru löggiltar af dóms- og kirkjumálaráðherra og með þeim
hætti, sem hann samþykkir að fenginni umsögn skipulagsnefndar
kirkjugarða.
2. gr.
Hver lögráða maður getur ákveðið, að lík sitt skuli brennt en ekki
jarðsett. Nánustu vandamenn látins manns geta og gert sams konar
ráðstöfun fyrir líki hans^ ef eigi er vitað, að hann hafi annars
óskað.
gr.
Til þess að heimilt sé að brenna lík, skal auk lögskipaðs dánar-
vottorðs liggja fyrir yfirlýsing um dánarorsök frá útgefanda
dánarvottorðs eða þeim lækni, sem síðast stundaði hinn látna.
Viðkomandi lögregluyfirvald, í Reykjavík sakadómari, skal síðan
rita á vottorð þetta, að ekkert sé því til fyrirstöðu að líkið
verði brennt.
4. gr.
Að lokinni bálför skal svo með fara, sem segir í lögum um kirkju-
garða, l.nr. 21/1963., 17*gr. Nánari ákvæði um framkvæmd líkbrennslu
setur dóms- og kirkjumálaráðherra með reglugerð.
5* gr.
Með lögum þessum falla úr gildi lög nr. 4l, ^.nóvember 1915, um
líkbrennslu.