Gerðir kirkjuþings - 1970, Qupperneq 7

Gerðir kirkjuþings - 1970, Qupperneq 7
1970 7. Kirk.juþlng 1. mál Frumvarp tll laga um bálfarir. 1. gr. Líkbrennsla skal leyfð hér á landi í stofnunum, bálstofum, sem til þess eru löggiltar af dóms- og kirkjumálaráðherra og með þeim hætti, sem hann samþykkir að fenginni umsögn skipulagsnefndar kirkjugarða. 2. gr. Hver lögráða maður getur ákveðið, að lík sitt skuli brennt en ekki jarðsett. Nánustu vandamenn látins manns geta og gert sams konar ráðstöfun fyrir líki hans^ ef eigi er vitað, að hann hafi annars óskað. gr. Til þess að heimilt sé að brenna lík, skal auk lögskipaðs dánar- vottorðs liggja fyrir yfirlýsing um dánarorsök frá útgefanda dánarvottorðs eða þeim lækni, sem síðast stundaði hinn látna. Viðkomandi lögregluyfirvald, í Reykjavík sakadómari, skal síðan rita á vottorð þetta, að ekkert sé því til fyrirstöðu að líkið verði brennt. 4. gr. Að lokinni bálför skal svo með fara, sem segir í lögum um kirkju- garða, l.nr. 21/1963., 17*gr. Nánari ákvæði um framkvæmd líkbrennslu setur dóms- og kirkjumálaráðherra með reglugerð. 5* gr. Með lögum þessum falla úr gildi lög nr. 4l, ^.nóvember 1915, um líkbrennslu.

x

Gerðir kirkjuþings

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.