Gerðir kirkjuþings - 1970, Síða 15
X970
7. Kirkjuþlng
7. mál
Tillaga til þingsályktunar
ura hæli fyrir áfengissjúklinga.
Flm. Jósefína Helgadóttir.
Kirkjuþing t&Ldið 1970 ályktar, að íslenzku kirkjunni
beri nú þegar í samvinnu við ábyrga aðila að hefjast
handa um byggingu hælis og endurhæfingarstöðvar fyrir
áfengissjúka, sem rekið verði í kristilegum anda, eins
og tíðkast víða erlendis.
Vísað til allsherjarnefndar. Frsm. sr. Sigurður Kristjánsson.
Nefndin varð sammála um að leggja fram eftirfarandi tillögu, og
var hún samþykkt:
Kirkjuþing 1970 ályktar að fela kirkjuráði að kanna, hvort
grundvöllur sé fyrir samvinnu þeirra aðila, sem vinna að
vandamálum áfengissjúkra, meðal annars með athugun á byggingu
hælis og endurhæfingarstöðvar fyrir áfengissjúka.
Jafnframt vekur Kirkjuþing athygli á hinni miklu hættu, sem
felst í vaxandi notkun eiturlyfja, og hvetur löggæzluna, sem
og sérhvern þjóðfélagsþegn til þess að vera þar vel á verði.