Gerðir kirkjuþings - 1970, Qupperneq 9
1970
7. Klrk.juþlng
2. mál
Frumvarp tll reglugerðar um
kirk.juorganleik og söngkennslu í skólum.
l.gr.
1 hverju prestakalli starfi kirkjuorganleikari er annist um
kirkjusöng. Hafi hann á hendi kennslu í skólum byggðarlagsins,
einkum þó og sér í lagi söngkennslu* eftir því, sem við verður
komið.
2.gr.
Starfsskylda organleikara skiptist milli kirkju og skóla, eftir
því sem hæfilegt þykir á hverjum stað^ og ekal það metið af
söngmálastjóra og fræðslumálastjóra í samráði við sóknarnefndir
og skólanefndir eða fræðsluráð.
3-gr-
Hverjum organleikara skulu laun greidd úr ríkissjóði fyrir kennsl; -
störf hans* eftir því sem lög ákveða, en hlut kirkjunnar greiða
sóknarnefndir í hlutfalli við íbúafjölda, ef fleiri eru en ein í
prestakallinu. Sama máli gegnir um ferðakostnað vegna starfa.
4. gr.
Nú er prestakall svo víðlent, eða aðstæður aðrar fyrir hendij
þess háttar^ að hentugra þyki að hafa fleiri en einn organleikara^
og skal það heimiltj enda skipti þeir með sér verkum og njóti
hlutfallslegra launa hver þeirra.
5. gr.
Lausar organleikarastöður skulu auglýstar sem venja er til um
opinberar stöður.
Umsóknir skulu stílaðar til söngmálast jóra eða frasðslumálast jóra,
eftir því hvort organista- eða kennslustarfið er aðalstarf.
Starfið veitist að fenginni umsögn sóknarnefnda, presta og skóla-
nefnda.
Umsækjendur skulu hafa lokið prófi frá Kennaraskóla íslands og
Tónskóla þjóðkirkjunnar, eða aflað sér hliðstæðrar eða meiri
menntunar eftir öðrum leiðum.