Gerðir kirkjuþings - 1970, Blaðsíða 9

Gerðir kirkjuþings - 1970, Blaðsíða 9
1970 7. Klrk.juþlng 2. mál Frumvarp tll reglugerðar um kirk.juorganleik og söngkennslu í skólum. l.gr. 1 hverju prestakalli starfi kirkjuorganleikari er annist um kirkjusöng. Hafi hann á hendi kennslu í skólum byggðarlagsins, einkum þó og sér í lagi söngkennslu* eftir því, sem við verður komið. 2.gr. Starfsskylda organleikara skiptist milli kirkju og skóla, eftir því sem hæfilegt þykir á hverjum stað^ og ekal það metið af söngmálastjóra og fræðslumálastjóra í samráði við sóknarnefndir og skólanefndir eða fræðsluráð. 3-gr- Hverjum organleikara skulu laun greidd úr ríkissjóði fyrir kennsl; - störf hans* eftir því sem lög ákveða, en hlut kirkjunnar greiða sóknarnefndir í hlutfalli við íbúafjölda, ef fleiri eru en ein í prestakallinu. Sama máli gegnir um ferðakostnað vegna starfa. 4. gr. Nú er prestakall svo víðlent, eða aðstæður aðrar fyrir hendij þess háttar^ að hentugra þyki að hafa fleiri en einn organleikara^ og skal það heimiltj enda skipti þeir með sér verkum og njóti hlutfallslegra launa hver þeirra. 5. gr. Lausar organleikarastöður skulu auglýstar sem venja er til um opinberar stöður. Umsóknir skulu stílaðar til söngmálast jóra eða frasðslumálast jóra, eftir því hvort organista- eða kennslustarfið er aðalstarf. Starfið veitist að fenginni umsögn sóknarnefnda, presta og skóla- nefnda. Umsækjendur skulu hafa lokið prófi frá Kennaraskóla íslands og Tónskóla þjóðkirkjunnar, eða aflað sér hliðstæðrar eða meiri menntunar eftir öðrum leiðum.

x

Gerðir kirkjuþings

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.