Gerðir kirkjuþings - 1970, Blaðsíða 8

Gerðir kirkjuþings - 1970, Blaðsíða 8
1970 7. Kirk.iuMng 2. mál Frv. um kirkjuorganlelk og söngkennslu í skólum. Flutt af kirkjuráði. Frsm. sr. Þorgrímur V. Sigurðsson. 1. gr. í hverju prestakalli skal starfa kirkjuorganleikari, er annist um kirkjusöng og hafi á hendi, eftir því sem við verður komið, kennslu í skólum byggðarlagsins, einkum þó og sér í lagi söngkennslu. 2. gr. Starfsskylda organleikara skiptist milli kirkju og skóla, eftir því sem hæfilegt þykir á hverjum stað, og skal það metið af kirkjumála- og fræðslumálastjórn, að viðhöfðu samráði við söngmálastjóra þjóð- kirkjunnar. 3- gr. Hverjum organleikara skulu laun greidd úr ríkissjóði fyrir kennslu- störf hans eftir því sem lög ákveða samkvæmt starfsmati, en hlut kirkjunnar greiðir sóknarnefnd, í hlutfalli við íbúafjölda, ef fleiri eru en ein í prestakallinu. 4. gr. Nú er prestakall svo víðlent aða aðstæður aðrar fyrir þendi þess háttar, að hentugra þyki að hafa fleiri en einn organleikara og skal það leyft í samráði við yfirvöld, sem um getur í 2. grein, enda skipti þeir með sér verkum og njóti hlutfallslegra launa hver þeirra. 5. gr. Lausar organleikarastöður skulu auglýstar sem venja er til um aðrar opinberar stöður. Umsóknir skulu stílaðar til kirkjumálaraðuneytisins, en sendar aðilum til umsagnar, eftir nánari ákvæðum í reglugerð. Umsækjendur skulu hafa lokið prófi frá Kennaraskóla íslands og Tónskóla þjóðkirkjunnar, eða aflað sér hliðstæðrar eða meiri mennt- unar eftir öðrum leiðum. Vísað til allsherjarnefndar. Frsm. nefndarinnar var sr. Sigurður Kristjánsson. Nefndin varð sammála um tillögur til breytinga á frv. og var það samþykkt eftir 2. umræðu í þeirri mynd, er hér fer á eftir

x

Gerðir kirkjuþings

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.