Gerðir kirkjuþings - 1970, Page 21

Gerðir kirkjuþings - 1970, Page 21
1970 7. Kirk.juþlng 12. mál Frh. Þá samþykkti nefndin að leggja eftirfarandi tillögu fyrir þingið: Kirkjuþing 1970 lýsir fullum stuðningi sínum við Presta- félag íslands varðandi kröfur þess um réttlát launakjör presta, og um leið og þingið ítrekar fyrri tillögu sína um embættisbústaði presta, lítur það svo á, að það telur eðlilegt, a.ð prestar fái greiödan útlagðan embættiskostnað til samræmis við aðra embættismenn. Allar þessar tillögur voru samþykktar eins og nefndin lagði þær fyrir. Við 1. umræðu kom fram viðbótartillaga frá sr. Eiríki J. Eiríkssyni um kennslu í kirkjurétti. Nefndin lagði til, að hún væri tekin upp sem sérstök ályktun svohljóðandi: Kirkjuþing felur kirkjuráði að hlutast til um, að kirkjuréttur verði prófnámsgrein í guðfræðideila og telur rétt að guðfræðingur með sérþekkingu í kristnirétti og prestsreynslu annist kennsluna. Tillagan var samþykkt. Við afgreiðslu þessa máls var samþykkt að fresta kjöri þeirrar nefnaar, sem ályktun þessi gerir ráð fyrir. Að tillögu löggjafar- nefndar voru þessir menn síðan kjörnir í nefndina: Sr. Sigurður Guðmundsson, Ásgeir Magnússon, sr. Jónas Gíslason.

x

Gerðir kirkjuþings

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.