Valsblaðið - 01.05.2011, Blaðsíða 24
22 Valsblaðið 2011
Framtíðarfólk
værum eins leikmenn. Þann dag hætti ég
að hata Lee Bowyer.
Fullkomið laugardagskvöld: Vinna
lottóið, horfa á Man Utd slátra Liverpool
í úrslitaleik í meistaradeildinni, fara
snemma að sofa og vakna ferskur.
Fyrirmynd þín í fótbolta: Ronaldo feiti
var fyrsta fyrirmyndin. Gaman að sjá
boltameðferðina hjá Zidane og Iniesta
líka, annars er engin fyrirmynd núna
þannig séð.
Draumur um atvinnumennsku í fót-
bolta: Draumurinn er að spila á Englandi
í efstu deild, verða einhver goðsögn þar
og lifa rólegu lífi eftir það ef þjálfun mun
ekki heilla mig.
Landsliðsdraumar þínir: Spila með
landsliðinu til fertugs, slá leikjametið og
markametið og vinna öll stórmót.
Besti söngvari: Sigfús Pétursson stór-
söngvari í Álftagerðisbræðrum.
Besta hljómsveit: Rolling Stones, dína-
mísk hljómsveit.
Besta bíómynd: The Departed kom fyrst
upp í hugann.
Besta bók: Ævisagan hans George Best
var góð og skrautleg, frábær fyrirmynd
þar.
Besta lag: Mýrdalssandurinn.
Uppáhaldsfélag í enska boltanum:
Manchester United.
Eftir hverju sérðu mest: Að hafa ekki
skorað fleiri mörk gegnum tíðina. Senni-
lega með þeim bestu að koma mér í færi
en ömurlegur að klára þau.
Nokkur orð um núverandi þjálfara:
Sniðugur, gáfaður, ástríðufullur, snickers.
Ef þú værir alvaldur í Val hvað mynd-
ir þú gera: Byggja knattspyrnuhöll þar
sem æfingasvæðið er og koma skuldinni
yfir á einhvern annan.
Nokkur orð um aðstöðuna á Hlíðar-
enda: Hún er frábær, stórkostleg þegar
potturinn í klefanum er í góðum gír.
Hvernig viltu sjá Val þróast á næstu
árum: Vil sjá Val í góðum málum fjár-
hagslega séð og að moka inn titlum, ekki
flókið.
Kærasta: Stefanía Jakobsdóttir.
Af hverju Valur: Stærsti klúbbur lands-
ins, allt við Val heillaði mig, auðveld
ákvörðun.
Hjá hvaða liðum hefur þú verið í fót-
bolta, hvar varstu í yngri flokkunum?
Uppalinn á Sauðárkróki og spilaði þar til
17 ára aldurs, meðal annars í 2. og 3.
deildinni. Fór þaðan til HK og spilaði
fyrsta árið með 2. flokki og Ými í 3.
deildinni, svo 1 tímabil í efstu deild og
svo eitt í 1. deild, svo kom ég í Val.
Hvernig hafa foreldrar þínir stutt þig í
fótboltanum: Þau hafa stutt mig það
mikið að það er nánast fáránlegt. Mamma
býr fyrir norðan en sér alla þá leiki sem
eru í sjónvarpinu og kemur reglulega
suður til að horfa á. Pabbi mætir á alla
leiki, það er bara þannig.
Hvað gætir þú aldrei hugsað þér að
verða: Munkur.
Af hverju fótbolti: Það kom í rauninni
aldrei neitt annað til greina, það var alltaf
sú íþrótt sem mér fannst skemmtilegust.
Var lengi vel í körfubolta en það datt út
þegar ég hætti að stækka.
Helstu afrek í öðrum íþróttagreinum:
Vann til verðlauna á skíðum einu sinni á
Andrésar Andarleikunum á Akureyri. Var
í öllum úrtakshópum fyrir yngri landslið
í körfubolta á sínum tíma, var svo valinn
í lokahóp en þá hætti ég. Hver hefur
landsliðsæfingar í körfubolta á sumrin.
Eftirminnilegast frá 100 ára afmælisári
Vals: Held að það sé undirbúningstímabil-
ið. Reykjavíkurmeistarar og Lengju-
bikarmeistarar.
Ein setning eftir tímabilið: Klúðruðum
þessu sjálfir.
Markmið fyrir næsta tímabil: Skora
meira og enda ofar.
Hvernig líst þér á hópinn í meistara-
flokki núna: Bara nokkuð vel, fínir leik-
menn sem hafa komið og ef við byggjum
ofan á það sem við gerðum gott á síðasta
tímabili þá er maður bara bjartsýnn.
Sakna Bjössa samt hrikalega.
Besti stuðningsmaðurinn: Pabbi.
Skemmtilegustu mistök: Ekkert
skemmti legt við að gera mistök.
Erfiðustu samherjarnir: Jón Vilhelm
Ákason, gat aldrei skorað þegar ég gaf á
hann, óþolandi.
Fyndnasta atvik: Þegar Þórir Guðjóns-
son (Tóti rauði) settist ofan á steinana í
saununni út á Spáni í æfingarferðinni.
Hann má þakka Arnari Sveini að hann sé
á lífi. Fyndið eftir á.
Stærsta stundin: Ætli það sé ekki fyrsti
u-21 árs leikurinn á móti Englendingum.
Athyglisverðasti leikmaður í meistara-
flokki kvenna hjá Val: Elín Metta og
Hildur gætu náð hrikalega langt.
Athyglisverðasti leikmaður í meistara-
flokki karla hjá Val: Það er Sindri Snær
Jensson án nokkurs vafa, ótrúlegur.
Hvernig líst þér á yngri flokkana í fót-
bolta hjá Val: Held að kvennaflokkarnir
vinni allt án þess að hafa mikið fyrir því
svo þar er verið að vinna gott starf. Eftir
því sem ég best veit vantar töluvert upp á
yngri flokkana hjá strákunum, helsta
vandamálið er held ég að það eru bara of
fáir iðkendur.
Hvað lýsir þínum húmor best: Kald-
hæðinn, er einnig fljótur að aðlaga mig
að húmor annarra.
Fleygustu orð: „Ekkert fokk!“ – Sigur-
björn Hreiðarsson.
Mottó: Ef einhver tæklar þig, tæklaðu
hann.
Leyndasti draumur: Djöfull sem mig
langar að vera rokkstjarna.
Við hvaða aðstæður líður þér best:
Líður fáránlega vel þegar ég er inn á
miðjunni og hitt liðið á ekki séns í okkur,
elska það.
Hvaða setningu notarðu oftast: Hvað
eigum við að éta?
Hvað er það fallegasta sem hefur verið
sagt við þig: Það er þegar Atli Sveinn
Þórarinsson sagði að ég og Lee Bowyer
Allt við Val heillaði mig
Rúnar Már Sigurjónsson er 21 árs og leikur
fótbolta með meistaraflokki og var valinn efnilegasti
leikmaður flokksins á uppskeruhátíðinni í haust
Lífsorka
með nýtingu náttúruaflanna
Skráðu þig í Vinaklúbbinn og njóttu betri kjara af fjölbreyttri þjónustu
http://www.bluelagoon.is/Badstadur/Vinaklubbur-Blaa-Lonsins/
A
N
T
O
N
&
B
E
R
G
U
R
Valsblaðið 2011 27
Starfið er margt
Sveinn Aron Sveinsson,
Aron Daði Hauksson,
Alexander Júlíusson,
Daði Laxdal Gautason,
Gunnar Malmquist Þórsson.
Uppskeruhátíð yngri flokka í
handbolta og viðurkenningar
Uppskeruhátíðin í handboltanum fór að
þessu sinni fram í stóra íþróttasalnum í
afmælisvikunni í maí og var hún haldin
sameiginleg með körfuboltanum. Um-
gjörð uppskeruhátíðarinnar var öll sú
glæsilegasta, enda nýtt glæsileg aðstaða
sem komið hafði verið upp vegna hátíð-
arhalda í tengslum við 100 ára afmæli
félagsins. Í lokin voru veitingar á hlað-
borði en foreldrar sáu um að koma með
veitingar en Valur bauð upp á kaffi og
safa. Uppskeruhátíðin var afar fjölmenn
og gekk vel fyrir sig og vel þótti til fund-
ið að hafa báðar uppskeruhátíðirnar á
sama tíma.
3. flokkur karla
Þjálfarar: Heimir Ríkarðsson og
Maksim Akbachev
Flokkurinn tók þátt í Reykjavíkur- og
Íslandsmóti auk bikarkeppni HSÍ. Flokk-
urinn komst í úrslit í Reykjavíkurmótinu
en úrslitaleikurinn fór aldrei fram. Þá lék
flokkurinn til úrslita í bikarkeppni HSÍ
en tapaði þeim leik. Í Íslandsmótinu féll
liðið úr keppni í 8 liða úrslitum.
Mestu framfarir: Valdimar Sigurðsson
Besta ástundun: Agnar Smári Jónsson
Leikmaður flokksins: Bjartur Guð-
mundsson
3. flokkur kvenna
Þjálfarar: Karl Guðni Erlingsson og
Jóhannes Lange
3. flokkur kvenna var sögulega fá-
mennur þetta árið enda var eingöngu ein
stúlka sem var á þriðja flokks aldri í
flokknum og því var ákveðið að sameina
þriðja og fjórða flokk í vetur. Árangur
flokksins í vetur var þokkalegur en liðið
spilaði í annarri deild og eins og fyrr seg-
ir var flokkurinn borinn uppi af stelpum í
fjórða flokki og því voru sumar stelpurn-
ar að spila við andstæðinga sem eru fjór-
um árum eldri. Liðið spilaði 14 leiki,
unnu 3, gerðu 2 jafntefli og töpuðu 9.
Mestu framfarir: Kristín Yuxin Bu
Besta ástundun: Sólveig Lóa Höskulds-
dóttir
Leikmaður flokksins:Rakel Jóhanna
Ragnarsdóttir
2B
B
lack
Y
ellow
M
agenta
C
yan
1112276 V
alur