Valsblaðið - 01.05.2011, Blaðsíða 55

Valsblaðið - 01.05.2011, Blaðsíða 55
Valsblaðið 2011 53 mjög gaman. Eftirminnilegast persónu- lega fyrir mig var að lyfta bikarnum sem fyrirliði liðsins á Laugardalsvelli. Hins vegar voru vonbrigði að vinna ekki báða titlana.“ Áttu heilræði til ungra iðkenda í íþrótt- um? „Þau heilræði sem ég get gefið eru ekki neinar töfralausnir. Einungis það að æfa vel, setja sér markmið (langtíma- og skammtíma) og standa við þau. Heilsu- samlegt líferni, hugsa um hvað maður borðar, sofa vel o.fl. skiptir líka gríðar- lega miklu máli. Aukaæfingin skapar meistarann.“ Um yngri flokka starfið hefur Fríða ákveðnar skoðanir. „Kvenna- megin stöndum við vel að vígi og starfið þar er mjög gott. Ég er ekki nógu mikið inn í yngri flokka starfinu karlamegin til þess að hafa skoðun á því. Það þarf að halda vel utan um allt yngri flokka starf, hvort sem það er kvenna- eða karlameg- in, því þeir eru framtíð félagsins,“ segir Fríða ákveðið. Mottó í lífinu og í fótbolta? „Maður uppsker eins og maður sáir bæði í lífinu og í íþróttum.“ ánsdóttir og Kristín Ýr Bjarnadóttir höf- um spilað saman upp alla yngri flokkana í Val og enduðum svo saman í meistara- flokki. Erfitt er að taka svo einhvern sér- stakan úr þessu sigursæla liði frá 2004 til dagsins í dag, enda margir frábærir ein- staklingar og mínar bestu vinkonur,“ seg- ir Fríða. Hvers vegna fótbolti? „Þegar ég byrj- aði að æfa íþróttir var ég bæði í fótbolta og handbolta. Með tímanum varð svo fótbolti fyrir valinu. Bróðir minn, Jó- hannes Hafsteinn, var að æfa fótbolta í Val þegar ég byrjaði og ætli ég hafi ekki bara verið að herma eftir honum. Mamma gaf mér mikinn stuðning með því að mæta á alla leiki og í allar ferðir. Enn í dag mætir hún á alla leiki.“ Fríða segist hafa farið í Val þar sem það var hverfis- félagið hennar og bróðir hennar æfði hjá Val. Því hafi legið beinast við að fara að æfa þar. Margt skemmtilegt gerst á löngum ferli Aðspurð um skemmtilegar sögur frá ferl- inum hefur hún frá ýmsu að segja. „Mér dettur fyrst í hug þegar við allar í liðinu fórum saman á Þjóðhátíð í Eyjum árið 2004 og Gugga markmaður var stödd í hvítu heimatjaldi. Þá var einn svo al- mennilegur að bjóða henni reyktan lunda en hún svaraði um hæl: „Nei takk, ég borða ekki fisk“. Einnig er minnisstætt þegar Rakel Logadóttir fagnaði marki í Evrópukeppninni í Slóvakíu 2008 með því að leika það að hún væri að kúka og skeina sér. Dómararnir voru ekki hrifnir af þessu uppátæki Rakelar og boðuðu þjálfarateymið á fund strax eftir leik. Þar var þeim tjáð að þetta væri mikil óvirð- ing við leikinn og að félagið fengi refsi- stig frá UEFA. En sagan er samt mjög fyndin,“ segir Fríða kíminn. Vonbrigði í Evrópukeppninni í ár. Fríða er ekki ánægð með hvernig liðinu gekk í Evrópukeppninni í sumar og getur ekki leynt því. „Við áttum góðan leik úti og náðum fínum úrslitum. Það voru mik- il vonbrigði að tapa heimaleiknum því við töldum okkar möguleika á að fara áfram vera miklir. Við vorum því sár- svekktar með þann leik. Við verðum svo að vinna titilinn aftur á næsta ári til að komast á ný í Evrópukeppnina,“ segir Fríða ákveðin. Eftirminnilegast frá afmælisárinu? „Félaginu tókst vel upp með afmælið, margar minningar rifjaðar upp sem var brigðatímabil þrátt fyrir að við hefðum unnið bikarinn. Þá er um að gera að rífa liðið upp fyrir næsta tímabil og vinna alla titla sem þá eru í boði,“ segir Fríða. Fríða hefur mikinn metnað Fríða er meðal sigursælustu leikmanna hjá Val undanfarinn áratug og hefur unn- ið til u.þ.b. 10% allra stóru titlana sem félagið hefur unnið frá upphafi og er það frábær árangur. Fríða á mikla möguleika á því að vinna til fleiri titla fyrir félagið, hún gæti átt mörg góð ár eftir í boltanum og Valsliðið er til alls líklegt á næstu árum, enda hópurinn firnasterkur og fullt af ungum leikmönnum að koma upp úr yngri flokkunum. Þegar spurt er um drauma um atvinnumennsku hefur hún þetta að segja. „Ég hef að sjálfsögðu leitt hugann að því eins og allir knattspyrnu- menn með metnað. Það er aldrei að vita hvað gerist í framtíðinni.“ Hún er jafn- framt fastamaður í íslenska landsliðinu og telur að möguleikar landsliðsins séu miklir, sérstaklega í ljósi síðustu úrslita í riðlinum og segir að þetta sé allt í hönd- um þeirra sjálfra. Flottur landsliðsferill Landsliðsferill Fríðu hófst árið 2000 þeg- ar hún lék fyrir U-17 ára landsliðið. Í kjölfarið var hún valin í U-19 og U-21 næstu ár á eftir. Fyrsta A-landsleikinn lék hún árið 2002 þegar hún kom inn á fyrir Rósu Júlíu Steinþórsdóttur Valsara í leik gegn Bandaríkjunum á þeirra heimavelli. „Það var mikill heiður og upplifun að koma inn á og fá strax það verkefni að dekka Miu Hamm, sem þá var besta knattspyrnukona heims,“ segir Fríða stolt. Hvað þarf til að þínu mati til að ná þessum árangri eins og Valsliðið hefur náð sl. ár? „Æfa betur en önnur lið og koma betur undirbúnar en nokkru sinni til leiks. Það skiptir miklu máli að liðs- heildin sé góð og það að hafa gaman af hlutunum. Lykillinn að velgengni hefur verið góð samvinna allra, þ.e. leikmanna, þjálfara, stjórnar og stuðningsmanna í Val.“ Frábær hópur og góðar vinkonur Þegar Fríða er spurð um eftirminnileg- ustu leikmennina í þessu sigursæla fót- boltaliði hjá Val hefur hún þetta að segja. „Ég, Dóra María Lárusdóttir, Dóra Stef- Fríða stoltur fyrirliði með bikarinn 2011 sem jafnframt var 10. stóri titillinn sem hún vinnur með kvennaliði Vals í knatt- spyrnu. Fríða, Rakel Logadóttir og Margrét Lára Viðarsdóttir í fyrstu Evrópukeppninni 2005. 60 Valsblaðið2011 Starfiðermargt og kenna stelpunum mikilvæg gildi t.d. hvernig er að vera hluti af hópi og koma vel fram hver við aðra. Afraksturinn af þeirri vinnu eru heilsteyptari einstakling- ar og sterkari liðsheild. Tímabilið var frá- bært í alla staði, stelpurnar tóku miklum framförum bæði sem einstaklingar og lið. Í hópnum eru mikil efni sem mikilvægt er að hlúa vel að. Hápunkturinn var að sjálfsögðu Íslandsmeistaratitilinn sem A- liðið vann en það var í fyrsta skipti síðan árið 1996 sem 5. fl. A-liða frá Val verður Íslandsmeistari. Þjálfarar flokksins voru Margrét Magnúsdóttir og henni til aðstoðar Krist- ín Ýr Bjarnadóttir og Sigurlaug Guðrún Jóhannsdóttir. Mestu framfarir: Eydís Arnarsdóttir Besta mæting: Diljá Hilmarsdóttir Liðsmaður flokksins: Ísold Kristín Rúnarsdóttir 5. flokkur karla Tímabilið 2010–2011 byrjaði brösuglega og í raun byrjaði það ekki fyrr en í mars. Góð mæting var um veturinn þrátt fyrir misjafnt veður. Um það bil 40 strákar mættu yfir allt tímabilið. Farið var norð- ur á Akureyri í lok febrúar á Goðamót Þórs. Ferðin gekk vel þó að árangurinn inn á vellinum hefði ekki verið sá sem vonast var eftir. Reykjavíkurmótið tók við í mars og skráð voru 5 lið frá flokkn- um til keppni. Öll lið stóðu sig með prýði og var það þetta góð upphitun fyrir sum- arið. N1-mótið á Akureyri hefur alltaf verið frábært mót og var engin breyting á því. Hápunktur mótsins var án efa þegar græna liðið frá nágrannasveitafélagi Reykjavíkur var lagt af velli. B-liðið í Ís- landsmótinu náði að vinna sinn riðil og komst þar með í úrslitakeppnina. Spilað var á Álftanesi og náðust sigrar gegn KA og FH-2, dugði það til að komast í und- anúrslitin þrátt fyrir tap gegn KR. Spilað var í Vesturbænum þar sem liðið keppti á móti Fjölni. Eftir frábæran leik í venju- legum leiktíma var staðan 2-2 og kom þá að framlengingu þar sem bæði lið skor- uðu eitt mark. Liðið vann í vítaspyrnu- keppni og sauð allt upp úr. Úrslitaleikur- inn fór fram næsta dag á móti KR. Náði liðið forystu en náði ekki að halda henni og unnu KR-ingar 5-1 sigur. Frábær ár- angur hjá liðinu og gat sumarið ekki end- að betur. Þjálfarar flokksins voru Agnar Krist- insson og honum til aðstoðar þeir Breki Bjarnason og Valdimar Árnason. Mestu framfarir: Hrólfur Eyjólfsson Eyjum en þangað fóru 40 strákar í 5 lið- um. Einnig voru með í för fararstjórar og aðrir foreldrar. Árangurinn á mótinu var góður en 3 lið komust í úrslit og unnu þar 2 bikara. Það sem stóð þó upp úr voru framfararnir sem öll liðin sýndu í mótinu. Þjálfarar flokksins voru Agnar Krist- insson og honum til aðstoðar þeir Breki Bjarnason og Valdimar Árnason. 5. flokkur kvenna 5. flokkur kvenna samanstóð af 25 stelp- um sem fæddar eru 1999–2000. Hópur- inn æfði mjög vel allt tímabilið og lagði mikið upp úr því að mæta vel á æfingar og leggja sig fram bæði á æfingum og fyrir utan þær. Stelpurnar æfðu þrisvar sinnum í viku og höfðu svo val um að mæta á fjórðu æfinguna. Flokkurinn spil- aði svo að meðaltali einn æfingarleik í mánuði yfir vetrartímann. Það skilaði sér í því að 5. flokkur kvenna átti lið á verð- launapalli á öllum mótum sem flokkur- inn tók þátt í á tímabilinu. Flokkurinn var til að mynda Reykjavíkurmeistari í A-, B- og C-liðum. Stelpurnar tóku þátt í Goðamótinu, Reykjavíkurmótinu, Pæjumótinu í Vest- mannaeyjum, Símamótinu og að sjálf- sögðu í Íslandsmótinu þar sem B-liðið vantaði tvö stig upp á að komast í útslit, C-liðið lenti í 2. sæti og A-liðið fór tap- laust í gegnum mótið og stóð uppi sem Íslandsmeistari eftir glæsilegan 2-0 sigur á KA. Stelpurnar gerðu margt skemmtilegt saman fyrir utan æfingarnar. Mikil áhersla var lögð á að efla félagsleg tengsl æfingaleiki eða á mót allt tímabilið. Stærri mót sem stelpurnar tóku þátt í voru Hnátumótið sem haldið var á Vals- velli, Goðamótið á Akureyri, Símamótið í Kópavogi og Vísmótið í Laugardal. Stelpurnar stóðu sig glæsilega og skiluðu mörgum verðlaunapeningum og bikurum í hús fyrir Val. Þó má nefna það sem stendur hvað mest upp úr hjá flokknum að B-lið flokksins sem einungis er skipað stelpum af yngra ári vann Hnátumót KSÍ með glæsilegum árangri. Það sem helst stendur upp úr á af- stöðnu tímabili er félagslífið. Annan hvorn mánuð gerði flokkurinn eitthvað félagslegt þar sem foreldrar, leikmenn og þjálfarar komu saman og styrktu tengsl sín. Til að mynda var farið nokkrum sinnum í sund, spilað á gítar og Valslög sungin og horft á DVD mynd. Allir þeir sem standa að flokknum, hvort sem það eru foreldrar eða þjálfarar, eru sammála um að stelpurnar hafa tekið gríðarlegum framförum á tímabilinu. Þær mættu vel á æfingar í allan vetur þó svo að veðrið væri ekki gott og uppskáru eftir því í sumar. Þjálfari flokksins var Birkir Örn með Steinunni Söru sér til aðstoðar. 6. flokkur karla Það voru u.þ.b. 50 strákar sem mættu reglulega á æfingar hjá 6. fl. karla tíma- bilið 2010–2011. Það var ljóst frá byrjun að hópurinn samanstóð af áhugasömum einstaklingum. Flokkurinn fór á nokkur minni mót yfir árið og ber þar helst að nefna Haustmótið og Íslandsmótið. Stóra mót ársins var hins vegar Shellmótið í Íslandsmeistarar 5. flokks kvenna 2011 A lið. Oft hefur 5. fl. kvenna hjá Val verið nálægt því að verða Íslandsmeistari á undanförnum árum en þetta er fyrsti titill 5. fl. A liða hjá Val í kvennaflokki í fótbolta. Frá vinstri: Harpa Karen Antonsdóttir, Rannveig Karlsdóttir, Eva María Jónsdóttir, Hlín Eiríksdóttir ofan á og Eydís Arnarsdóttir, Ísold Kristín Rúnarsdóttir, Rakel Leósdóttir, Auður Ester Gestsdóttir markvörður undir. 4A B lack Y ellow M agenta C yan 4 1112276 V alur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164

x

Valsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.