Valsblaðið - 01.05.2011, Blaðsíða 26
24 Valsblaðið 2011
Starfið er margt
Meistaraflokkur karla
Tímabilið 2010–2011 reyndist meistara-
flokki karla í Val mjög lærdómsríkt, erfitt
og einnig gleðilegt. Byrjunin reyndist
liðinu erfið og fóru margir leikmenn og
meiðsli lykilmanna gerði það að verkum
að stigasöfnunin gekk illa. Þegar liðið
hafi náð að spila sig saman og vinna úr
vandamálum þá var 5.–6. sætið niður-
staðan í deildinni og því komst liðið ekki
í úrslitakeppnina en var þó nálægt því
sem fáir Valsmenn gátu dreymt um í lok
nóvember 2010.
Það sem stendur upp úr á þessu keppn-
istímabili var án efa bikarúrslitaleikurinn
gegn Akureyri en þar sigruðu Valsmenn í
hörkuleik og unnu því fyrsta stóra bikar
félagsins á 100 ára afmæli Vals. Því
fengu leikmenn að upplifa allan tilfinn-
ingaskalann á þessu tímabili.
Eftir veturinn fór Ernir Hrafn Arnarsson
í atvinnumennsku til Þýskalands, Jón
Björgvin hætti, Fannar Örn Þorbjörnsson
sem kom inn og hjálpaði liðinu mjög mik-
ið hætti, Heiðar Aðalsteinsson fór heim til
Akureyrar og Alexander Jedic hætti. Þess-
um leikmönnum er þakkað þeirra framlag
til félagsins. Ernir Hrafn var síðan valinn
leikmaður ársins og Einar Örn var sérstak-
lega heiðraður en hann kom mjög sterkur
inn í vörnina eftir áramót.
Fyrir tímabilið 2011–2012 fengu Vals-
menn til liðs við sig Gunnar Harðarson,
Sigfús Sigurðsson, Magnús Einarsson og
Andra Stefan. Andri sleit krossbönd síð-
astliðinn vetur og mun koma inn í liðið
eftir áramót. Byrjunin á vetrinum hefur
verið upp og niður en margir fínir kaflar
litið dagsins ljós.
Tímabilið byrjaði með sigri á Opna
norðlenska mótinu þar sem úrslitaleikur
var við Hauka og vannst sá leikur 26-22
og var Sturla Ásgeirsson valinn maður
mótsins og Hlynur Morthens markmaður
mótsins. Svo næst var það leikur meistari
meistaranna þar sem við mættum liði FH
í einum magnaðasta handboltaleik síðari
Tveir stórir titlar á afmælisárinu
og starf yngri flokka að stóreflast
Skýrsla handknattleiksdeildar 2011
Bikarmeistarar meistaraflokks karla í handknattleik 2011. Efri röð frá vinstri: Óskar Bjarni Óskarsson þjálfari, Konni Kóngur, Atli
Már Báruson, Finnur Ingi Stefánsson, Orri Freyr Gíslason, Einar Örn Guðmundsson, Sigfús Sigurðsson, Anton Rúnarsson, Gunnar
Harðarson og Heimir Ríkarðsson aðstoðarþjálfari. Neðri röð frá vinstri: Gunnar Kristinn Þórsson, Sturla Ásgeirsson, Hlynur
Morthens, Sigurður Ingiberg Ólafsson, Sveinn Aron Sveinsson, Magnús Einarsson og Agnar Smári Jónsson.
Valsblaðið 2011 25
Starfið er margt
staklega sjúkraþjálfara liðsins Valgeir
Viðarsson. Liðið varð fyrir öðru áfalli
þegar einn sterkasti leikmaður liðsins
Hildigunnur Einarsdóttir meiddist og
Ágústa Edda varð ófrísk en sem betur fer
kom það ekki að sök fyrir liðið.
Leikmenn og aðstandendur liðsins
mega vera stoltir af árangri liðsins með
þrjú gull og ein silfurverðlaun. Anna Úr-
súla Guðmundsdóttir sem spilaði frábær-
lega fyrir liðið var kosin besti leikmaður-
Meistaraflokkur kvenna
Meistaraflokkur kvenna varð Íslands-
meistari annað árið í röð eftir frábært úr-
slitaeinvígi við Fram sem vakti mikla at-
hygli fyrir góðan handbolta og skemmt-
anagildi og varð það toppurinn á frábæru
tímabili hjá flokknum. Liðið vann Fram
3-0 í úrslitaeinvígi og mun síðasti leikur-
inn verða lengi í minnum manna og
kvenna, leikurinn varð tvíframlengdur og
endaði síðan í vítakeppni þar sem fyrir-
liðinn Hrafnhildur Ósk skoraði úr síðasta
víti Vals við mikla hrifningu Valsáhorf-
enda, leikmanna og Jóa Lange sem stökk
hæð sína í loft upp af fögnuði í nýju
Hummel stuttbuxunum sínum.
Liðið varð líka deildarmeistari annað
árið röð og liðið sigraði líka í Deildarbik-
arkeppni HSÍ sem haldin er á síðustu
dögum ársins. Einnig lék liðið til úrslita í
bikarnum eftir að hafa lagt Fylki og
Stjörnuna að velli og mætti þar Fram.
Bikarúrslitaleikurinn var góð skemmtum
en því miður tapaðist leikurinn sem voru
mikil vonbrigði fyrir leikmenn og sér-
ára og endaði með sigri FH 39-38 eftir
tvær framlengingar og vítakeppni og átti
Sturla stórleik og skoraði 11 mörk en
brást bogalistin í síðasta víti okkar og
setti í slána.
Er þetta er skrifað erum við í 5. sæti en
þó skilja aðeins 4 stig við fyrsta sæti og
hefðum við mátt vera með 2–4 stigum
meira í þessari erfiðu baráttu um að kom-
ast í úrslitakeppnina. Valdimar Fannar
Þórsson hefur lítið leikið með liðinu
vegna bakmeiðsla og tók ákveðinn tíma
að finna rétta flæðið á sóknarleikinn sem
er þó vonandi allt að koma. Liðið er
varnarlega sterkt með reyndasta mark-
mann deildarinnar og marga hæfileika-
ríka sóknarmenn.
Þjálfari Valsmanna ásamt því að vera
yfirþjálfari félagsins er hinn kunni Óskar
Bjarni Óskarsson og honum til aðstoðar
er Heimir Ríkarðsson sem er einnig þjálf-
ari 2. og 3. flokk félagsins. Liðsstjóri er
Finnur Jóhannsson, sjúkraþjálfari er Val-
geir Viðarsson, liðslæknir Ingvar Þor-
steinn Sverrisson og sálfræðingur er Er-
lendur Egilsson.
Íslands- og deildarmeistarar meistaraflokks kvenna í handknattleik 2011. Neðri röð frá vinstri: Heiðdís Guðmundsdóttir,
Arnheiður Guðmundsdóttir, Sigríður Ólafsdóttir, Guðný Jenný Ásmundsdóttir, Sunneva Einarsdóttir, Arndís María Erlingsdóttir,
Karólína Bæhrenz Lárudóttir. Efri röð frá vinstri: Anna Úrsúla Guðmundsdóttir, Þórunn Friðriksdóttir, Ragnhildur Rósa Guðmunds-
dóttir, Þorgerður Anna Atladóttir, Nataly Sæunn, Kristín Guðmundsdóttir, Dagný Skúladóttir, Ágústa Björnsdóttir og Hildur Marín
Andrésdóttir. Fyrir framan: Hrafnhildur Ósk Skúladóttir. Á myndina vantar Hildigunni Einarsdóttur og Jóhannes Lange.
2A
B
lack
Y
ellow
M
agenta
C
yan
2
1112276 V
alur