Valsblaðið - 01.05.2011, Blaðsíða 17

Valsblaðið - 01.05.2011, Blaðsíða 17
2 Valsblaðið2011 Tvenn jólin Hugvekja á aðventu 2011 Tími ljóss og skugga Jólin snúast um ljósið sem færir heiminum birtu og yl í svartasta skammdeginu. Við sjáum í guðspjöllunum hvernig Betlehems- stjarnan lýsti upp nóttina og vísaði vitringunum veginn til Jesú- barnsins í jötunni. Í sænsku verðlaunakvikmyndinni Verka manna bústaðirnir – Svinalängorna, eftir Pernillu August, erum við minnt á hvernig ljósið og skuggarnir geta fylgst að. Myndin hefst á aðventu, á Lúsíudeginum, þegar dæturnar tvær koma ljósum prýddar í svefnherbergi foreldranna sem þykjast vera sofandi. Lúsíuhátíð- in minnir á að aðventan og jólin eru tími ljóssins. Ljósið skín líka á það ljóta í heiminum og varpar skugga. Við erum minnt á það í Svinalängorna. Aðalsöguhetjan Leena rifjar upp bernskujólin sín. Það er ekki falleg mynd. Ekkert jólabað og engir jólapakkar því pabbi eyddi öllum peningunum í vín. Jólatréð sem féll hálfskreytt um koll þegar foreldrarnir slógust í stað þess að skreyta það. Villt partý, drykkja og hávaði. Yfir- gangur og ofbeldi. Pabbi sem öskrar á mömmu og slær hana svo. Á meðan fela börnin sig. Þannig eru bernskujólin hennar Leenu og þeim vill hún helst gleyma. Tími sannleika og nærveru Ástin í raun – Love Actually er ein vinsælasta jólamynd síðari ára. Sambönd fólks eru viðfangsefni myndarinnar og bakgrunn- ur hennar eru jólin. Eftir því sem sögunum vindur fram kemur grunnafstaða persónanna til jólanna í ljós – og það er augljóst að jólin sjálf hafa áhrif á gang mála. Jólin í Love Actually snúast um tvennt: að segja það sem manni býr í brjósti – segja sannleikann – og að vera hjá þeim sem maður elskar. Þetta tvennt knýr myndina áfram, vegna þess að það eru jól. Þegar við förum að segja það sem okkur í brjósti býr, horfumst í augu við tilfinningar, brotna erfið og gömul sam- skiptamynstur upp og nýir hlutir fá rými í lífinu. Að viðurkenna hvernig manni líður og segja frá því getur valdið manni sjálfum og öðrum erfiðleikum, eins og sumar persónurnar reyna. En jól- in eru tími sannleikans og það er þess virði að mæta hindrunum til að uppfylla köllun jólastundarinnar. Tími öryggis og hlýju Í jólaguðspjallinu mætum við þrá okkar fyrir öryggi, skjól og hlýju. Í fjárhúsinu sem Jesúbarnið kom í heiminn brýst ljósið fram úr myrkviðum næturinnar. Jatan er tákn um næringu og umhyggju sem við þurfum til að lifa af og síðast en ekki síst er nýfædda barnið tákn um líf og upphaf, hreinleika og ást. Þessar frummyndir af ljósinu og jötunni hitta okkur í hjarta- stað og taka form í minningum okkar og reynslu. Það hvernig við höldum jólin tjáir þetta að einhverju leyti. Þörfin fyrir ör- yggi og næringu kemur fram í áherslunni á þægindi og góðgerð- ir sem einkennir hátíðahaldið. Köllunin til að sýna kærleika og veita umhyggju sýnir sig í því að við viljum gefa gjafir og gera öðrum gott. Verum ljósfólk Kristin trú er trú lífsins alls, trú heildarinnar. Hún nær bæði til dimmunnar í lífinu og til birtunnar. Áskorunin okkar er að dvelja aldrei í myrkrinu eða við það, heldur stíga þaðan yfir í ljósið. Kveikja ljós þar sem myrkur er. Á þann minna jólin okk- ur. Þau minna okkur á að horfast í augu við myrkrið og kveikja ljós. Þau minna á ljósþörfina í okkar lífi og annarra. Þau kalla okkur til að vera ljósfólk, sem kveikir ljós í eigin lífi og annarra. Guð gefi þér gleðileg jól Höfundar eru prestar. Árni Svanur er vefprestur og verkefnisstjóri á Biskupsstofu og Kristín Þórunn er héraðsprestur í Kjalarnessprófastsdæmi. Árni Svanur Daníelsson og Kristín Þórunn Tómasdóttir Valsmenn – bestu óskir um gleðileg jól og farsælt nýtt ár HENSON Valsblaðið2011 15 Starfiðermargt Gott starfsfólk hjá Val Að lokum vil ég þakka starfsfólki Knatt- spyrnufélagsins Vals undir stjórn fram- kvæmdastjóra fyrir vel unnin störf og gott samstarf á árinu. Sérstakar þakkir fá allir þeir fjölmörgu Valsmenn sem lagt hafa félaginu lið á 100 ára afmæli þess sem og allur sá fjöldi Valsmanna sem heimsótti Hlíðarenda og tók þátt í fjöl- breyttu starfi og þeim uppákomum sem verið hafa á allt árið. Ég vil fyrir hönd stjórnar Vals óska öllum iðkendum, félagsmönnum, starfsmönnum félagsins og fjölskyldum þeirra gleðilegra jóla og farsæls komandi árs með von um gott og farsælt samstarf á nýju ári. Valskveðja, Hörður Gunnarsson formaður. stækkandi hóps eldri borgara sem kallar eftir aukinni hreyfingu, félagslegu sam- neyti og vill gjarnan nýta krafta sína og reynslu með því að leggja félagsstarfinu lið. Blómlegt félagsstarf Félagsstarf innan Vals er með miklum blóma þó að mikil orka hafi farið í að gera afmælisárið sem glæsilegast úr garði. Haldið var árlegt golfmót og eins og svo margt annað á afmælisárinu var það hið fjölmennasta og glæsilegasta sem haldið hefur verið hingað til. Brids- og skákmót voru einnig haldin og með veg- legri hætti en oft áður og voru fjölsótt. Valskórinn hélt úti þróttmiklu starfi á árinu, hélt glæsilega afmælistónleika ásamt því að koma fram við ýmis tæki- færi tengd afmælisárinu auk annarra upp- ákoma. Fjölmennasta herrakvöld í sögu félagsins var haldið á haustmánuðum og tókst með miklum ágætum. Vil ég þakka skipuleggjendum þessara viðburða fyrir þeirra aðstoð. Fulltrúaráðið stafar nú af miklum þrótti og heldur reglulega fundi ásamt því að koma að stuðningi við ýmis verkefni innan félagsins. Hverfadagur að Hlíðarenda og aukin tengsl við nágrennið Í ár var Hverfadagurinn haldinn hér að Hlíðarenda og ég vona að sá dagur hafi aðeins verið upphafið að enn öflugra samstarfi íbúa og félagasamtaka á félags- svæði Vals. Knattspyrnufélagið Valur á ætíð að vera opið fyrir nýrri nálgun og nýjum leiðum þegar kemur að starfi með fólki á öllum aldri. Við eigum að vera óhrædd við að víkka sjóndeildarhringinn og tilbúin til samstarfs við fagfólk á sviði lýðheilsu og þjálfunarfræða. Fjölmargar kannanir hafa sýnt að það á að vera keppikefli að bjóða börnum og ungling- um upp á fjölbreytilegt starf sem heldur þeim virkum í leik og starfi. En með virkni er átt við allt skipulagt starf eða þátttöku í íþrótta- og æskulýðsstarfi sem börn og unglingar stunda með námi. Margar kannanir sýna að börn og ungt fólk sem eru virkir þátttakendur í leik og starfi hafa jákvæðari sjálfsmynd en jafn- aldrar þeirra sem ekki taka þátt. Þá má segja að ávinningurinn sé endalaus; já- kvæðari andleg og líkamleg líðan, auk heilbrigðari lífsvenja sem tengjast svefni, hreyfingu og mataræði. Þessir krakkar standast betur álag, þeir tileinka sér oftar gott skipulag, aukna félagsfærni og mynda jákvæðari félagstengsl. Meðal barna og unglinga sem eru virk í skipu- lögðu íþrótta- og tómstundastarfi er minni hætta á sjálfskaðandi hegðun, ein- angrun og neikvæðum félagsskap. Af þessum upplýsingum má ráða að Valur á að leggja hér eftir sem hingað til mikla áherslu á að sinna vel skyldum sínum þegar kemur að börnum og unglingum og er það mitt mat að okkur hafi miðað vel fram á veginn undir stjórn Ragnhild- ar Skúladóttur íþróttafulltrúa Vals. Þjálf- arar og foreldrar verða að taka höndum saman og halda vel utan um hópinn og fylgja þeim vel eftir. Við verðum á öllum tímum að vera vakandi fyrir áhugaverð- um þróunarverkefnum, sjá starfið blómstra og vera alltaf tilbúin til að sjá nýjar leiðir og sóknarfæri. Í því sambandi er rétt að horfa til breyttra áherslna í þjálfun yngstu barnanna, horfa til fjöl- greinaþjálfunar sem hefur sýnt sig að eykur áhuga og fjölbreytta færni hjá börnum sem skilar sér margfalt í ánægju, vellíðan og árangri. Ekki má gleyma því að afreks- og meistaraflokkar hafa einnig mjög gott af fjölbreyttri þjálfun sem reynir á ólíka þætti. Jafnframt langar mig til þess að við á Hlíðarenda horfum til ört Elísabet Gunnarsdóttir þjálfari var mætt á gamlársdag á Hlíðaranda til að vera viðstödd val á íþróttamanni Vals 2010 ásamt Brynjólfi Lárentínusarsyni og fjölda annarra gesta. Elísabet var meðal þeirra 44 sem á árinu var sæmd gullmerki Vals. Guðmundur Sigurgeirsson er einn ótal margra sjálfboðaliða sem standa vaktina ár eftir ár á Hlíðarenda til að halda fjöl- breyttu starfi gangandi og var í hópi 44 einstaklinga sem voru sæmdir gullmerki Vals á afmælisárinu. 1B B la ck Y el lo w M ag en ta C ya n 11 12 27 6 V al ur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164

x

Valsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.