Valsblaðið - 01.05.2011, Blaðsíða 71
Valsblaðið 2011 69
Af spjöldum sögunnar
Leit jeg í gegnum leikinn bragna
Listum týgjaða veröld nýja.
Leikur er mynd af lífi stundar,
Lærdóm bak við sjá má spakan.
Leikur er skóli að læri halir
Að lifa rjett og forðast pretti.4
Hér gefst ekki tóm til að gera hinni stór-
merku drápu Friðriks þau skil sem vert
væri en tilgangi hennar, hvað knattspyrn-
una varðar, lýsir Friðrik ágætlega í bréfi
til ungs vinar síns, Páls Kolka, í ágúst
1911. Þá hafði Friðrik þegar samið rúm-
tröllshætti með Liljulagi um sumarlífið í
KFUM, þar á meðal um knattspyrnuna
og gildi hennar í víðu samhengi. Þar lýsir
Friðrik á listilegan hátt hvernig hann sér
fyrir sér að knattspyrnan geti gert menn
að betri mönnum og sér í raun knatt-
spyrnuvöllinn, og það sem þar gerist,
sem smækkaða mynd af leikvangi lífsins.
Þetta kemur meðal annars ljóslega fram í
versi 46, sem svo hljóðar:
Hugarsjón jeg sá mjer skína
Síðast í kvöld í leikjum völdum;
hinu fótboltafélaginu sem stofnað var
innan KFUM sama sumar. Sameiginlega
ruddu piltarnir í þessum tveimur félögum
fyrsta fótboltasvæði KFUM úti á Melum,
skammt vestan við núverandi aðalbygg-
ingu Háskóla Íslands. Það svæði vígði
séra Friðrik síðan 6. ágúst 1911 og ræðan
sem hann flutti af því tilefni er merk
heimild um þær fjölþættu hugsjónir sem
hann tengdi knattspyrnuiðkun pilta í
KFUM.2
Áður en sjálf ruðningsvinnan við fót-
boltasvæðið hófst, að fengnu leyfi bæjar-
stjórnar Reykjavíkur, varð séra Friðrik
eitt sinn vitni að fótboltaæfingu drengj-
anna úti á grýttum og holóttum Melun-
um. Enginn völlur hafði verið markaður
en nokkrir steinar í hrúgu voru ígildi
markstanga og þar stóð markvörður sem
Friðrik hélt í fyrstu að væri hafður útund-
an í leiknum! En svo fékk hann piltana
til að raða sér upp í stöður og útskýra fyr-
ir sér leikinn. Þóttist hann þá sjá ýmis
líkindi með skipulagi hans og því skipu-
lagi sem fylkingar Rómverja nýttu sér til
forna og sá í hendi sér að leikur þessi
gæti verið „stórfenglegt uppeldis- og
tamningameðal“ ef vel væri að honum
staðið.3
Þegar vinnan við vallarsvæðið hófst lá
Friðrik ekki á liði sínu og tók jafnframt
að yrkja 100 erinda drápu í hrynhendum
Upphaf elstu laga íslensks knattspyrnufélags frá júní 1900, rituð með hendi Friðriks
Friðrikssonar.
Ljóðaflokkurinn „Úti og inni“ var
endurútgefinn í viðhafnarútgáfu skömmu
fyrir 1950. Ritið skreyta fallegar tré-
skurðarmyndir og á þessari sjást Vals-
piltar í knattspyrnu úti á Melum í
nágrenni við loftskeytastöðina sem þar
reis. Keilir í baksýn.
76 Valsblaðið 2011
Starfið er margt
ári þar sem allir æfa saman. En ég reyni
að fylgjast með öllum leikjum strákanna
í 2. og 3. flokki. Enda legg ég línurnar
um þjálfun þeirra þó svo að þjálfarar
þeirra hafi sitt svigrúm. En það eru eins
og ég gat um áður mun lengri leiðir upp í
meistaraflokk. Besti leikmaður 2. flokks
á í raun mjög langt í land með að komast
í meistaraflokkshópinn. Stökkið er mjög
langt.”
Dagur stefnir hátt með Füshe Berlín
En hvernig meturðu stöðu ykkar í
deildinni á þessu tímabili?
„Við stefnum að því að vera við topp-
inn sem er harla gott m.v. hvað þetta er
ungt og nýtt allt saman. Við búum samt
að mörgu leyti vel. Við erum með 9.000
manna höll og það eru að meðaltali um
8.000 manns á leikjunum hjá okkur sem
er líklega næst eða þriðja besta aðsóknin
í deildinni. En liðið var í 2. deild fyrir 6
árum en við fórum upp á tveimur árum
og þetta er fjórða árið okkar í efstu deild.
En við erum komnir í fyrsta skipti í
meistaradeildina og erum í öðru sæti í
deildinni. Peningarnir sem við höfum úr
að spila eru líklega um 40% af því sem
Kiel, Hamburg og Rhein Neckar Löwen
hafa til umráða. En við njótum þess að
vera í flottri borg sem trekkir að fólk og
leikmenn.
Valsblaðið kveður Dag með ósk um
áframhaldandi velgengni með Füshe
Berlín. Jafnframt þakkar blaðið strákun-
um í 2. og 3. flokki fyrir að leggja fram
spurningar sem viðtalið byggir á.
kaupa aðra. En á sama tíma erum við
með annan og þriðja flokk og við viljum
koma okkar strákum áfram inn í meist-
araflokksliðið. Við höfum smátt og smátt
verið að koma einum og einum inn. Núna
í fyrradag var t.d. einn 18 ára strákur að
spila fyrsta meistaraflokksleikinn sinn
gegn Grosswaldstadt. Það er stefna
félagsins að kaupa fullmótaða góða leik-
menn, landsliðsmenn, þegar þess þarf.
En gefa ungum efnilegum strákum innan
félagsins sem hafa farið í gegnum ung-
lingastarfið okkar séns á að spila fremur
en að sækja efnilega menn til Íslands eða
Norðurlandanna. Við erum ekki eins og
stóru ríku fótboltaliðin sem kaupa
kannski 10 unga stráka en af þeim verða
í besta falli 2 meistaraflokksleikmenn.
Við viljum fremur búa til 5 efnilega
þýska stráka í þeirri von að 2 geti orðið
meistaraflokksleikmenn.”
Hvert er hlutfall uppalinna leik-
manna í meistaraflokkshópnum hjá
Füshe Berlín?
„Við erum með 15 manna meistara-
flokkshóp og þar eru tveir að koma upp
úr unglingastarfinu. En hafa ber í huga
að Füshe Berlín er bara 6 ára. Þetta þykir
fremur gott í því ljósi. En þessi strákur
sem spilaði með okkur í fyrradag er ekki
í þeim hópi því hann æfir ekki með okk-
ur, heldur eingöngu með öðrum flokki.”
Æfið þið aldrei saman, þriðji, annar
og meistaraflokkur?
„Við erum með æfingabúðir á sumrin
þar sem ég er með alla flokkana og líka
B-lið meistaraflokks. En B-lið meistara-
flokks er millibil milli annars flokks og
meistaraflokks. En þetta er bara vika á
ir leikmenn í hættu við að dragast aftur
úr. Deildin byrjar seint og leikirnir eru
fáir. Þetta þarf að passa betur upp á.”
Hvað er það sem yngri leikmenn á
Íslandi mega bæta? Og hver er megin
munurinn á ungum íslenskum og
þýskum leikmönnum? Þetta leiðir líka
hugann að umhverfi ungra leikmanna
að öðru leyti. Á Íslandi er þorri strák-
anna í skóla, en hvernig er þessu hátt-
að í Þýskalandi? Eru menn komnir á
einhvers konar atvinnumannasamning
í öðrum og þriðja flokki?
„Nei alls ekki. Við erum með aðgang
að skóla sem er íþróttaskóli. Þar fara
strákarnir inn og geta mætt á eina æfingu
á skólatíma. Þar fá þeir mat, geta síðan
klárað skólann og mætt síðan á seinni æf-
inguna. En einmitt talandi um vinnusemi
þá eru strákarnir í öðrum og þriðja flokki
farnir að bæta við æfingum með þessu
fyrirkomulagi. En heima er eina leiðin að
taka kannski æfingu sjálfur aukalega og
ég veit að það oft eru þeir gera það. En
hafi menn sjálfsaga til að gera þetta á
eigin forsendum verður einmitt forskotið
sem þeir hafa síðar meir.”
Füshe Berlín stefnir að því að ala
upp fleiri leikmenn
Hvernig er annars þitt starf hjá Füshe
Berlín sem þjálfari? Ertu líka að fylgj-
ast með efnilegum leikmönnum annars
staðar?
„Ég kem líka að því að kaupa leik-
menn til að styrkja hópinn. Þetta er auð-
vitað nokkuð í föstum skorðum hérna.
Við missum eina skyttu og þurfum að
5A
B
lack
Y
ellow
M
agenta
C
yan
5
1112276 V
alur