Valsblaðið - 01.05.2011, Blaðsíða 48

Valsblaðið - 01.05.2011, Blaðsíða 48
Valsblaðið 2011 35 Starfið er margt Frábærir yngri flokkar Vals 46 Valsblaðið 2011 Starfið er margt Árið 2011 var að sönnu viðburðarríkt í starfi Fálka. Árið hófst með hefðbundn- um nýjársfundi þar sem tekist var á um málefni líðandi stundar og málin rædd til mergjar. Aðalfundur félagsins var svo að venju spyrtur saman við þorrablót félags- ins. Á fundinum var stjórn félagsins ein- róma endurkosin fyrir utan það að Magn- ús Guðmundsson vék úr stjórn vegna anna og tók Georg Páll Skúlason sæti hans. Vill stjórn félagsins þakka Magga fyrir vel unnin störf. Eins voru gerðar nokkrar breytingar á lögum félagsins til hægðarauka fyrir stjórn og eins til að auðvelda aðkomu nýrra félaga. Þegar hefðbundnum aðalfundarstörfum lauk tók við frábært þorrablót þar sem félagar og gestir skemmtu sér hið besta saman og gerðu vel við sig í mat og drykk. Pylsusala á heimaleikjum Í mars var síðan hefðbundinn félagsfundur og var þar tekinn ákvörðun um að halda áfram með pylsusölu á heimaleikjum meistaraflokka Vals í knattspyrnu. Er óhætt að segja að pylsusala þessi sé eitt af viðameiri verkefnum sem Fálkar taka sér fyrir hendur á hverju ári og til gamans má geta þess að okkur reiknast til að tæplega fjögurþúsund pylsur hafi runnið ofan í stuðningsmenn Vals og gesti í sumar. Vorfagnaður Fálka með mökum Í apríl var svo blásið til vorfagnaðar Fálka sem var einum mánuði á undan áætlun vegna stórafmælishátíðar Vals í maí. Á vorfagnaði er venja að bjóða mökum félaga til veislu og var svo sann- arlega engin undantekning gerð á því í þetta skipti. Þrjátíu og sex manns voru mætt og skemmtu sér við heimasmíðuð skemmtiatriði og nutu stórkostlegra veit- inga frá hirðkokki Fálka, Lárusi Loftsyni. Var það mál manna að þetta hefði verið frábærlega vel heppnað í alla staði og full ástæða til að endurtaka leikinn í sem mest óbreyttri mynd á næsta ári. Skemmtilegustu leikir sumarsins Fálkar fjölmenntu svo á 100 ára afmæl- ishátíð Vals í maí. Í sumar var svo lögum samkvæmt enginn fundur haldinn en við sátum þó aldeilis ekki auðum höndum, pylsusalan var í fullum gangi og eins stóðum við fyrir skemmtilegustu leikjum sumarsins. Þar fá allir leikmenn 4. og 3. flokks kvenna og karla að spreyta sig í alvöru umgjörð á Vodafonevellinum með fánaborgum, vallarþul o.s.frv. Í sumar var gerð sú breyting á að 3. flokkur kvenna atti kappi við 3. flokk karla í stór- kostlegu veðri og frábærri stemningu. Hylltu strákarnir nýorðna Íslandsmeist- ara kvennaliðsins með heiðursverði og rósaafhendingu og var gerður góður róm- ur að riddaramennsku drengjanna. Heilsuræktarátak í haust Þegar haustaði tóku Fálkar svo að sér að sjá um pylsusölu á hverfahátíð/Valsdegin- um og vorum við einnig með kynningar- bás þar sem við kynntum starfsemi félags- ins og dreifðum boðsmiðum á opinn fund í september. Það skilaði sér svo með 3 nýjum félögum sem gengu umsvifalaust til liðs við ört stækkandi hóp og bjóðum við þá velkomna í félagið. Eins og oft vill gerast höfðu einhverjir félagar bætt á sig nokkrum grömmum yfir sumarið og var því blásið til heilsuræktarátaks sem 8 Fálkar tóku þátt í. Að loknum 8 vikum höfðu þessar hetjur fækkað grömmunum það mikið að í heild vorum við orðnir því sem samsvarar einum Fálka fátækari. Flott ráðstefna um þjálfun barna og unglinga Í október tók svo ráðstefnunefnd félags- ins til starfa af miklum móð og stóðu Fálkar fyrir einni flottustu ráðstefnu um þjálfun barna og unglinga sem haldin hefur verið á Íslandi. Mikill sómi fyrir félagið og ekki spurning um að þetta verður endurtekið í einhverju formi á næsta ári. Nánar er sagt frá þessari ráð- stefnu annars staðar í blaðinu og birtir nokkrir fyrirlestrar eftir Valsþjálfara. Fjölbreytt starfsemi og félagsstarf Í nóvember var samkvæmt venju ekki hefðbundinn félagsfundur, í staðinn fjöl- menntu félagar á herrakvöld Vals og skemmtu sér vel eins og hefð er fyrir. Í desember var svo haldinn veglegur jóla- og afmælisfundur í tilefni af 2ja ára af- mæli félagsins. Þar heiðruðum við sér- staklega Stefán Karlsson fyrrverandi framkvæmdastjóra Vals sem reyndist okk- ur mikill og góður bakhjarl þegar stofnun félagsins stóð yfir og ekki síður á fyrstu mánuðunum þegar að hið nýfædda félag var að reyna að fóta sig í veröldinni. Eins höfðu Fálkar í desember veg og vanda af rúmfatasölu þar sem við vorum í hlutverki heildsala fyrir foreldrafélög og vorum einnig með sölu á Hlíðarenda þar sem því var við komið. Loks má geta þess að Fálk- ar styrktu þá yngri flokka félagsins sem tóku á árinu þátt í mótum erlendis. Hér hefur aðeins verið stiklað á stærstu atrið- um í starfsemi Fálka og í raun ekki hægt að gera tæmandi lista yfir allt sem við ger- um og afrekum á einu ári þar sem félagar hafa sýnt sig vera með eindæmum frjóir og vinnufúsir þegar Valur er annars vegar. F.h Fálka, Benóný Valur Jakobsson formaður Viðburðaríkt Fálkaár 2011 Fálkar eru stoltir Valspabbar sem tóku sig saman og stofnuðu félagsskapinn árið 2009 til að styðja við bakið á barna- og unglingastarfi Vals Benóný Valur Jakobsson formaður Fálkanna afhendir Ragnhildi Skúladóttur yfirmanni barna- og unglingasviðs dýnu frá Fálkunum til notkunar í íþróttastarfi Vals. Á myndinni eru einnig nokkrir aðrir Fálkar frá vinstri: Sigurður Ásbjörnsson, Sævar Gunnleifsson og Sigþór Sigurðsson. – FULLT HÚS ÆVINTÝRA REYKJAVÍK • Fiskislóð 1 • Sími 580 8500 • mánud.–föstud. 10–18 • laugard. 10–16 AKUREYRI • Tryggvabraut 1–3 • Sími 460 3630 • mánud.–föstud. 8–18 • laugard. 10–16 • ellingsen.is Leitaðu ráða hjá okkur. Hjá Ellingsen starfa sérfræðingar í öllum deildum. Við veitum faglega og vandaða ráðgjöf og finnum réttu vörurnar sem uppfylla þínar þarfir. Við seljum eingöngu þrautreyndar hágæðavörur sem henta fyrir íslenskar aðstæður. PI PA R\ TB W A • S ÍA • 1 12 8 86 DEVOLD FYRIR ÍÞRÓTTAFÓLK 9.490 KR.9.490 KR. 9.490 KR. 8.990 KR. DEVOLD ACTIVE BOLUR DEVOLD EXPEDITION BOLUR DEVOLD EXPEDITION BUXUR DEVOLD ACTIVE BUXUR KK og KVK, einnig til án renniláss KK og KVK, margir litir KK og KVK, margir litir KK og KVK Devold ullarnærfatnaðurinn hentar íþróttafólki sérstaklega vel við úti­ æfingar í kulda og bleytu. Devold heldur á þér hita þótt hann blotni og andar vel þegar líkaminn hitnar. 3B B la ck Y el lo w M ag en ta C ya n 11 12 27 6 V al ur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164

x

Valsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.